Frjáls verslun - 01.10.2005, Page 23
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5 23
FORSÍÐUGREIN • GRÁÐUSNOBB
eða 30 eininga rannsóknarritgerð. MS nám í hagfræði sem veitir MS
gráðu í hagfræði
MS nám í heilsuhagfræði Heilsuhagfræðin fæst við að greina
hvernig takmörkuðu fjármagni er best skipt á meðal sjúklinga,
hvernig hin ýmsu rekstrarform reynast, einkum með tilliti til hag-
kvæmni, og hvernig starfsumhverfi og rekstrarform hefur áhrif á
starfsfólk í heilsugæslu. Meðal námskeiða á námslínunni er heilsu-
hagfræði, stjórnun og rekstur heilbrigðisstofnana og kostnaðar- og
nytjagreining. Námið er þriggja missera nám sem lýkur með 15 eða
30 eininga rannsóknarritgerð. MS nám í heilsuhagfræði sem veitir MS
gráðu í heilsuhagfræði.
MBA nám MBA nám við Háskóla Íslands er hagnýtt og vandað
stjórnunar- og viðskiptafræðinám á meistarastigi. Náminu er
ætlað að auka verulega þekkingu, færni og getu þátttakenda
til að ná árangri í stjórnun og rekstri fyrirtækja og stofnana.
MBA námið er mjög sambærilegt MBA námi erlendis og þróað
með hliðsjón af alþjóðlegum viðmiðum um MBA nám. Þá hefur
námið mikla sérstöðu sem fólgin er í tengingu við íslenskt
atvinnulíf. Námið skiptist í kjarna og valnámskeið, auk loka-
verkefnis. Með sérhæfingu í valnámskeiðum og lokaverkefni
geta nemendur lokið MBA námi með tiltekinni sérhæfingu,
t.d. í fjármálum, verkefnastjórnun eða mannauðsstjórnun svo
eitthvað sé nefnt. Auk þess ljúka nemendur 200 vinnustunda
hagnýtu verkefni sem unnið er í samstarfi við aðila í atvinnulíf-
inu. Námstíminn er 19 kennslumánuðir á 21 mánaðar tímabili,
vinnan dreifist á fjögur misseri. MBA námið svarar til 45 ein-
inga háskólanáms á meistarastigi.
Doktorsnám Doktorsnám í viðskipta- og hagfræðideild byggist að
mestu á sjálfstæðum rannsóknum nemenda undir handleiðslu kenn-
ara. Ekki er boðið upp á sérstök námskeið fyrir doktorsnemendur
en gert er ráð fyrir að þeir sæki þau eftir þörfum til erlendra háskóla
sem deildin er í tengslum við. Nemendur þurfa að hafa lokið meistara-
prófi í viðskiptafræði eða hagfræði til að fá inngöngu og þurfa þeir að
hafa sýnt afburða námsárangur. Jafnframt er mikilvægt að fyrirhug-
aðar rannsóknir þeirra falli vel að áhugasviði og þekkingu eins eða
fleiri kennara við deildina. Samþykki leiðbeinanda er forsenda fyrir
inngöngu í doktorsnám.
Nám erlendis Algengt er að nemendur taki hluta af námi sínu
erlendis. Um 60% þeirra sem fara erlendis fara til Danmerkur
og þá verða Viðskiptaháskólinn í Kaupmannahöfn (CBS) eða
Viðskiptaháskólinn í Aarhus (Handelshojskolen i Aarhus) oftast
fyrir valinu.