Frjáls verslun - 01.10.2005, Blaðsíða 56
56 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5
Gagnvirkir möguleikar
Mikilvægt er að vefsíður fyrirtækja bjóði upp á
gagnvirk samskipti. Að fólk geti kynnt sér þá
valkosti og möguleika sem í boði eru og sinnt
sínum viðskiptum. Einkar vel hentar að kynna og
selja flugþjónustu á Netinu, enda er nú svo komið
að fjórðungur af sölu Icelandair fer einmitt fram
netleiðis og hækkar það hlutfall stöðugt, segir
Halldór Harðarson.
Heimsóknum á vefsetur Icelandair er jafn-
framt sífellt að fjölga, þær eru nú á milli 500 og
600 þúsund í hverjum mánuði og hefur fjölgað
um fjórðung frá í fyrra. Þá eru félagar í Netklúbbi
Icelandair nú orðnir rúmlega 600 þúsund; það er
fólk víða um lönd sem fær reglulega sendan tölvu-
póst um áhugaverð tilboð félagsins. „Þeir sem fá
tölvupóstinn eru kannski ekki endilega á leiðinni
til að ferðast, en með góðum tilboðum getum við
kveikt áhuga viðkomandi. Þá skiptir miklu að við-
mót vefsetursins sé persónulegt, að talað sé við
hvern og einn notenda sem einstakling en ekki
heild,“ segir Halldór.
Á tíu tungumálum
Vefurinn Icelandair er á tíu tungumálum og sér-
sniðinn að þörfum hvers markhóps og málsvæðis
um sig. Þannig er vefsetrið icelandair.com á
ensku og allar upplýsingar þar miðast við Banda-
ríkin. Á icelandair.dk er upplýsingarnar á dönsku
staðfærðar að þörfum danska markaðarins - og
þannig má áfram halda.
„Við höfum líka verið með aðgengi að bókun-
arkerfi okkar í gegnum auglýsingar til dæmis á
mbl.is. Það hefur gefið mjög góða raun og við
höfum fengið mikla sölu þannig,“ segir Halldór
Harðarson og bætir við að í vefmálum þurfi
stöðug þróunarvinna að eiga sér stað. Nýtt við-
mót Icelandair vefsins fari í loftið innan skamms
og verið sé að þróa fleiri vefi á vegum félagsins.
Stjórnendur félagsins geri sér sífellt betur grein
fyrir mikilvægi þessarar leiðar að markaðnum.
Vefurinn sé auðlind.
Halldór bætir við að þrátt fyrir að sala á þjón-
ustu fyrirtækisins sé í ríkari mæli að færast á
Netið leiði það ekki endilega til fækkunar starfs-
fólks. Störfin flytjist einfaldlega til innan félagsins
og þörf sé á nýjum þjónustuþáttum þegar aðrir
hverfi.
Vefurinn mótar ímynd
Rétt eins og sala á ferðalögum hentar vel í net-
sölu gildir sama um bankaviðskipti. Óvíða sem
hér á landi er netnotkun almennings meiri eða
um 90%. Þarf af sinna um 70% bankaviðskiptum
sínum á Netinu, enda hafa fjármálastofnanir verið
að færa þjónustu sína sífellt meira í þann farveg.
Þar hefur Netbankinn, nb.is, haft nokkra forystu
- og sérstöðu.
„Miklar breytingar hafi orðið á viðhorfi banka
á Íslandi síðustu ár. Fylgniþættir ímyndar eins
og orðspor, umfjöllun fjölmiðla, innra umhverfi
og ásýnd hafa marktæk áhrif, en svo var ekki
fyrir fáum árum. Vefirnir hafa líka mikil áhrif í
„Þá skiptir miklu a›
vi›mót vefsetursins
sé persónulegt, a›
tala› sé vi› hvern og
einn notanda sem
einstakling en ekki
heild.“
EVE Oneline er einvör›ungu á Netinu.
Magnús Bergsson framkvæmdastjóri CCP.
Fundarstjóri var Alda Sigur›ardóttir hjá Sjá – vi›mótsprófunum.