Frjáls verslun - 01.10.2005, Blaðsíða 100
100 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5
ÚR EINU Í ANNAÐ
TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl.
Guðmundur
Þorbjörnsson,
framkvæmdastjóri
Línuhönnunar.
Frjáls verslun fyrir 30 árum
Tíu olíumálverk hanga á veggjum
í húsnæði Gallerís Turpentine
við Ingólfsstræti 5 dagana 18.
nóvember til 12. desember. List-
málarinn er Sigtryggur Bjarni
Baldvinsson.
Viðfangsefnið á striganum:
Vatn. „Þetta eru verk sem eru
unnin út frá vatnsflötum; straum-
vatni og lygnum hyljum.“
Sum verkin eru nánast eins
og ljósmynd. Önnur eru brotin
upp í litafleti.
Þau minnstu eru 90 cm x 120
cm. Þau stærstu: 220 cm x 180
cm. „Það er miklu skemmtilegra
að mála stórar myndir.“
Hvers vegna vatn? „Vatn er
eitt af frumefnunum. Að sumu
leyti er sjálfgefið að mála það. Ég
finn sömu seiðandi tilfinninguna
þegar ég horfi í djúpið og þegar
ég horfi á fallegt málverk.“
Sigtryggur segir að þar sem
málverkið hafi verið til svo lengi
trúi hann því að það sé eitt af
náttúrufyrirbrigðunum. „Í því eru
þræðir sem eru óskiljanlegir á
sama hátt og náttúran verður
ekki skilin til fulls. Ég hef verið
að rannsaka þessa flóknu hrynj-
andi í náttúrunni á undanförnum
árum - í laufblöðum, vatnsfalli
eða vindinum. Ég veit öðrum
þræði að þetta er vonlaus elt-
ingarleikur en það liggur í eðli
mannsins að reyna að skilja og
skilgreina það sem ekki er hægt
að skilja.“
Myndlist:
HRYNJANDIN
Í NÁTTÚRUNNI Málverkið Öxará 2 eftir Sigtrygg Bjarna Baldvinsson er 120 x160 cm, málað með olíu á striga á þessu ári. Um myndefnið segir málarinn: „Vatn er eitt af frumefnunum. Að sumu leyti er sjálfgefið að mála það.“
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson
Æskumyndin:
Æskumyndin er af Gu›mundi Þorbjörnssyni,
framkvæmdastjóra verkfræ›istofunnar Línuhönnunar.
Hann skorar á Gylfa Árnason, forstjóra Opinna Kerfa
Group hf., a› láta birta af sér næstu æskumynd. Þeir
kynntust fyrst þegar þeir stundu›u háskólanám í upp-
hafi níunda áratugar sí›ustu aldar á svipu›um sló›um í
Washingtonfylki í Bandaríkjunum.
„Þa› er sí›an dálæti á bandarískri matarger›arlist,
fyrst alvöru bandarískum morgunver›i og sí›an ham-
borgurum me› öllu tilheyrandi, sem hefur gefi› okkur og
fjölskyldum okkar gott tilefni til a› hittast í seinni tí›.“ Það var enginn að tala um giftingu. Ég ætla
bara að eiga krakka með honum Sigga.