Frjáls verslun - 01.01.2006, Qupperneq 24
24 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
FORSÍÐUEFNI • EIGNATENGSL Í ATVINNULÍFINU
HELSTU EIGENDUR LANDSBANKANS
Samson (40,2%)
Landsbankinn, aðalstöðv. (7,6%)*
Landsbankinn Lúxemborg (4,4%)*
Lífeyrissjóður verslunarmanna (2,1%)
Tryggingamiðstöðin (2%)
*Ath. Landsbankinn í Lúxemborg er í eigu annarra fjárfesta en bankans
í gegnum framvirka samninga og megnið af hlut Landsbankans (aðal-
stöðva) er í eigu annarra líka.
HELSTU EIGENDUR ÍSLANDSBANKA
Milestone og Þáttur (23,3%)
FL Group (16,4%)
Einar og Benedikt Sveinssynir (8%)*
Sraumur-Burðarás (4,9%)
Jón Snorrason (4%)*
Ker (2%)
*Þetta eru félög tengd Einari Sveinssyni og bróður hans, Benedikt.
*Félög tengd Jóni Snorrasyni, m.a. Rauðatorg.
HELSTU EIGENDUR KAUPÞINGS BANKA
Exista B.V (21,1%)
Egla (10,8%)
VÍS (4,0%)
Lífeyrissjóður verslunarmanna (3,4%)
Gildi - lífeyrissjóður (2,9%)
í Baugi Group. Þetta hafa ekki verið krosstengsl þar
sem Baugur hefur ekki átt sem neinu nemur í Kaupþingi
banka.
Átta blokkir fyrir þremur árum
Það er hægt að spyrja sig að því hvers vegna Frjáls verslun
dregur línuna núna við þrjár viðskiptasamsteypur. En
fyrir aðeins þremur árum taldi Frjáls verslun að þær væru
átta talsins. Það sem hefur gerst er að kolkrabbinn, S-
hópurinn, Samherji-Kaldbakur og lífeyrissjóðirnir teljast
ekki lengur viðskiptablokkir hjá okkur og Íslandsbanki
og Kaupþing banki eru ekki skilgreindir sem sjálfstæðar
valdablokkir.
Ýmsir spyrja eflaust hvort ekki sé eins hægt að sleppa
samsteypunum alveg og stilla dæminu frekar upp sem 10
til 20 sterkum fjárfestum sem flestir eru á eigin vegum, en
vinna náið saman að einstaka verkefnum. Það væri sjálf-
sagt hægt. En eignatengslin eru svo áberandi í kringum
bankana að tæplega er hægt að nefna þau net annað en
viðskiptasamsteypur.
Mestu krosstengslin eru í kringum Exista og Kaupþing
banka. Þannig eiga Lýður og Ágúst Guðmundssynir fyrir-
tækið Bakkavör Holding sem á 59% eignarhlut í Exista á
móti Kaupþingi banka, sem á þar 19% og hópi sjö spari-
sjóða sem eiga 22%. Exista er í reynd fjárfestingarfélag
þeirra bræðra og á í Kaupþingi banka, Símanum, Bakka-
vör Group og VÍS.
Ólafur Ólafsson í Samskipum og Jón Helgi Guðmunds-
son í Byko eru báðir stórir eigendur í Kaupþingi banka.
Ólafur á tæp 11% hlut í bankanum í gegnum fyrirtækið
Eglu en Jón Helgi á um 1,5% í gegnum félag sitt Norvest
hf.
Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Eyjum er stór
hluthafi í Straumi-Burðarási, en hann á þar hlut upp á nær
Jón Snorrason.