Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 38
38 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
1. janúar
Hrókeringar
og laun
Það má segja að árið hafi
byrjað eins og það endaði, með
nokkrum umræðum um það að
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, hefði
verið ráðinn forstjóri 365 miðla
og tæki við af Gunnari Smára
Egilssyni sem tæki við sem for-
stjóri Dagsbrúnar, móðurfélags
365 miðla og Og Vodafone.
Miklar vangaveltur urðu um hina
nýju stöðu Gunnars Smára og
hvort búið væri að „klippa á“
áhrif hans við 365. Þá var greint
frá því að Eiríkur S. Jóhannsson,
fyrrverandi forstjóri Dagsbrúnar,
tæki við starfi hjá Baugi Group,
en þess má geta að Eiríkur er
stjórnarformaður Samherja.
Í byrjun febrúar sl. var síðan
greint frá ársreikningi Dags-
brúnar og þar var sagt að Eiríkur
hefði haft 17,9 milljónir í laun
á síðasta ári og að hann fengi
44 milljónir í laun á þessu ári,
skv. starfslokasamningi. Gunnar
Smári Egilsson, núverandi for-
stjóri Dagsbrúnar, hafði hins
vegar 31,4 milljón í laun á síð-
asta ári sem forstjóri 365 miðla.
2. janúar
„Hausaveiðar“
Kaupþings
í Danmörku
Kaupþing í Danmörku fékk
nokkra umfjöllun ytra í byrjun
ársins. Hún gekk út á að FIH
bankinn í Danmörku, sem er
í eigu Kaupþings banka, hóf
miklar „hausaveiðar“ og réði til
sín helminginn af verðbréfasér-
fræðingum Alm. Brand bank,
eða 18 starfsmenn. FIH bankinn
ætlar að hasla sér völl hið fyrsta
í verðbréfaviðskiptum, en bank-
inn hefur til þessa stundað útlán
til fyrirtækja; verið eins konar
„Iðnlánasjóður“ þeirra Dana, eins
og það hefur verið orðað. Það
kostar hins vegar sitt að fara inn
á verðbréfamarkaðinn því besta
leiðin til þess er að ráða til sín
þá öflugu menn sem þar eru fyrir.
3. janúar
„Ekki ósk,
heldur krafa“
Pálmi Haraldsson, eigandi Fons,
átti örugglega eina af setn-
ingum þessarar viku við sænska
blaðið Dagens Nyheter. Hann
var spurður um kaup sín á 12%
hlut í sænsku ferðaskrifstofunni
Ticket og vilja hans til að Ticket
seldi miða fyrir Flyme sem Pálmi
er stór hluthafi í. Ticket hafði
til þessa neitað að selja miða
fyrir Flyme vegna slæmrar fjár-
hagsstöðu flugfélagsins. Dagens
Nyheter spurði Pálma hvort hann
vildi að Ticket hæfi sölu á miðum
fyrir Flyme. Pálmi svaraði: „Það
er ekki ósk, heldur krafa.“
Pálmi Haraldsson.
6. janúar
Stoðir kaupa
Atlas Ejendomme
Tilkynnt var að fasteignafélagið
Stoðir, þar sem Baugur Group er
stærsti eigandinn, hefði gengið
frá kaupum á danska fasteigna-
D A G B Ó K I N
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl.
2. janúar
ALLT VARÐ VITLAUST:
290 MILLJÓNIR Í STARFSLOKAGREIÐSLUR
Það þarf í sjálfu sér ekki mörg
orð um þetta; mál málanna
fyrstu tvær vikur ársins voru
fréttir um starfslokagreiðslur upp
á samtals 290 milljónir til fyrrum
forstjóra FL Group, Sigurðar
Helgasonar og Ragnhildar Geirs-
dóttur. Sigurður fær 161 milljón
og Ragnhildur 130 milljónir á
næstu fjórum til fimm árum
vegna starfslokanna. Þessar
upplýsingar komu fram í skráning-
arlýsingu FL Group vegna hluta-
fjárútboðsins í nóvember. Í stuttu
máli þetta: Það varð allt vitlaust
í þjóðfélaginu, enda þótt þetta
væri fyrst og fremst samningur
og mál hluthafa FL Group og for-
stjóranna.
Ragnhildur Geirsdóttir, 130 milljónir, Sigurður Helgason. 161 milljón.
Ari Edwald. Ráðning
hans til 365 kom á
óvart.
Gunnar Smári
Egilsson hafði 31,4
milljón í laun á
síðasta ári sem for-
stjóri 365.
Eiríkur S. Jóhanns-
son fær 44 milljónir
í laun á þessu ári
frá Dagsbrún, skv.
starfslokasamningi.