Frjáls verslun - 01.01.2006, Side 39
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 39
D A G B Ó K I N
félaginu Atlas Ejendomme A/S.
Stoðir kaupa 34 fasteignir mið-
svæðis í Kaupmannahöfn og
eru þetta með umsvifamestu
fasteignaviðskiptum í Danmörku
á undanförnum árum. Flestar fast-
eignanna eru í grennd við Christ-
iansborg og Frederiksstaden.
Stoðir tvöfaldast að stærð með
þessum kaupum.
Frá miðborg Kaupmannahafnar.
7. janúar
Kaupa banka
í Úkraínu
Sagt var frá því að íslenskir
fjárfestar undir forystu MP Fjár-
festingarbanka hf. hefðu samið
um kaup á 90% hlutafjár í við-
skiptabanka í Úkraínu, Bank
Lviv. Bankinn er fimmtán ára
og er í borginni Lviv þar sem
býr um ein milljón íbúa. Margeir
Pétursson, stjórnarformaður MP
fjárfestingarbanka, sem leiddi
málið, sagði í samtali við Morg-
unblaðið um kaupin: „Hér er um
góð kaup að ræða sem þýða að
við séum komin með mjög öfluga
undirstöðu fyrir starfsemi okkar í
Úkraínu.“
Margeir Pétursson.
Kaupir ásamt fleirum
banka í Úkraínu.
10. janúar
Straumur-Burðarás
út úr Magasin
Í kjölfar frétta um sölu Straums-
Burðaráss á 21% eignarhlut
sínum í Íslandsbanka var
athyglisverð frétt. Þar sagði að
Straumur-Burðarás og Baugur
Group hefðu komist að sam-
komulagi um að Straumur-Burða-
rás seldi alla eignarhluti sín í
nokkrum óskráðum félögum,
eins og Magasin du Nord,
Illum, Iceland, Booker og fleiri
fyrirtækjum. Björgólfur Thor
Björgólfsson er stjórnarformaður
Straums-Burðaráss.
13. janúar
Ég sel ekki
hverjum sem er
Þarna kom frétt sem menn
ráku augun í. Hún var í Morgun-
blaðinu og þar sagði að Stelios
Haji-Ioannou, stofnandi og aðal-
eigandi lággjaldaflugfélagsins
easyJet, segist einungis selja
þau 16,5% sem hann ætti í
félaginu ef hann treysti viðkom-
andi kaupanda fyrir vörumerkinu
„easy“.
Stelios Haji-Ioannou og fjöl-
skylda hans eiga samanlagt
rúmlega 40% hlut í easyJet en
FL Group á 16,2% hlut og hefur
um fátt verið meira rætt en hugs-
anlegan samruna easyJet og
Sterling.
Í samtali við sjónvarpsstöð
BBC sagði Stelios Haji-Ioannou
að tvennt skipti hann máli:
hvaða verð hann fengi fyrir bréfin
og hvort hann treysti viðkomandi
fyrir vörumerkinu.
17. janúar
Allt verður
áfram á uppleið
Greiningardeild Kaupþings banka
gaf út áætlun þennan dag um að
hagnaður 16 helstu félaganna í
Kauphöll Íslands, að Kaupþingi
banka undanskildum, hefði verið
114 milljarðar á síðasta ári og
verði 119 milljarðar króna á
þessu ári. Þess má geta að hagn-
aður Kaupþings banka var um
50 milljarðar kr. á síðasta ári.
„Almennt teljum við horfur
á íslenska markaðinum prýði-
legar á árinu og gerum ráð fyrir
að Úrvalsvísitalan verði í um
7.000 stigum í lok ársins. Þó
skal tekið fram að kennitölur
velflestra fyrirtækja eru orðnar
allháar miðað við fyrri tímabil og
virðist markaðurinn því gera ráð
fyrir að fyrirtækin muni áfram ná
örum vexti og hárri arðsemi,“
sagði greiningardeildin í hálf-
fimm-fréttum.
9. janúar
SALAN Í ÍSLANDSBANKA:
EIN AF FRÉTTUM ÁRSINS
Ein af fréttum ársins urðu þessa
helgi þegar sagt var frá því að
Straumur-Burðarás hefði selt
21% hlut í Íslandsbanka. Senni-
lega hefur ekki verið skrifað um
nein mál eins mikið og kaup
Landsbanka, Burðaráss og
Straums á hlutum í Íslandsbanka
á undanförnum árum og um þá
valdabaráttu sem þar hefur átt
sér stað. Straumur-Burðarás
heldur eftir um 5% í bankanum.
Það vakti athygli að kaupend-
urnir voru allt menn í kringum
Karl Wernersson - sem hefur
núna ótvírætt tögl og hagldir í
félaginu. Félag hans og systkina
hans, Milestone, keypti 4%, og
á eftir kaupin ásamt Þætti um
23,3% í bankanum. Stærsti kaup-
andinn í þessum viðskiptum var
hins vegar FL Group sem keypti
6,5% hlut og á eftir kaupin 16%.
Jón Snorrason keypti 3%, Ker
2% og bræðurnir Einar og Bene-
dikt Sveinssynir rúmt 1% og
eiga félög þeim tengd nú um 8%
í bankanum. Þá keypti Íslands-
banki sjálfur um 4,5%.
Söluhagnaður Straums-Burða-
ráss var um 16 milljarðar af
sölunni.
Karl
Wernersson.
Þórður Már
Jóhannesson.
Bjarni
Ármannsson.
EasyJet er í forystu lággjaldaflug-
félaga í Evrópu.