Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 40
40 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
17. janúar
Pepsi Max
til Danmerkur
Þetta var skemmtileg frétt í
Morgunblaðinu um Pepsi Max
hjá Ölgerðinni. Þar sagði að frá
því í haust hefði Ölgerðin flutt út
um þrjár milljónir lítra af Pepsi
Max til Danmerkur og aðrar
þrjár milljónir lítra væru á leiðinni
þangað - en vinsældir Pepsi Max
hafa farið fram úr framleiðslugetu
heimamanna.
17. janúar
Hverjir eiga Ísland?
Gamli þreytti brandarinn um
„Hverjir eiga Ísland?“ kemur
alltaf upp þegar sagt er frá versl-
unarkeðjunni Iceland í Bretlandi
sem Baugur Group og Fons eru
stærstu eigendurnir að. Þennan
dag var sagt frá því að Marks
& Spencer væri að kaupa 28
verslanir af Iceland matvörukeðj-
unni fyrir um 4 milljarða króna.
Jafnframt var sagt frá því að
ætlunin væri að verslanirnar yrðu
hluti af keðjunni Simply Food og
opni undir því vörumerki næsta
sumar. Stefnt er að því að af
kaupunum verði í mars nk. Þrátt
fyrir söluna hyggur Iceland á
mikla sókn og áætlar að opna
60 nýjar Iceland-verslanir í Bret-
landi en engin matvörukeðja vex
þar eins hratt um þessar mundir.
18. janúar
Vilhjálmur tekur
við af Ara
Það kom verulega á óvart að
stjórn Samtaka atvinnulífsins
hefði ákveðið að ráða Vilhjálm
Egilsson, ráðuneytisstjóra í sjávar-
útvegsráðuneytinu, í stöðu fram-
kvæmdastjóra í
stað Ara Edwals.
Ekki það að
Vilhjálmur hefði
ekki reynsluna,
heldur héldu
menn að róið
yrði á önnur mið.
Vilhjálmur var þing-
maður um árabil sem og fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs. Þá
vann hann hjá Vinnuveitendasam-
bandi Íslands í fimm ár á níunda
áratugnum og því má segja að
hann sé kominn heim. Hann er
„hokinn af reynslu“ og hefur til
margra ára verið áberandi þátt-
takandi í þjóðfélagsumræðunni
á Íslandi - en augljóslega ekki
getað beitt sér sem skyldi á
þeim vettvangi sem ráðuneytis-
stjóri sjávarútvegsráðuneytisins.
19. janúar
YFIRTÖKUNEFNDIN:
Allt í lagi
Þennan dag var sagt frá því að
yfirtökunefnd Kauphallar Íslands
teldi að ekki bæri að telja með
þá 10% hluti, sem Eignarhalds-
félagið Oddaflug ehf. og Baugur
Group hf. seldu til Landsbanka
Íslands hf. um miðjan desember,
þegar metið væri hvort umræddir
aðilar hefðu sameiginlega yfirráð
yfir 40% eða meira af eignar-
hlutum í FL Group. Taldi nefndin
því ekki tilefni til að endurskoða
álit frá 14. desember sl. þar sem
komist var að þeirri niðurstöðu
að með sölu á hlutum í FL Group
væru ekki lengur skilyrði fyrir yfir-
tökuskyldu.
20. janúar
Hagnaður Baugs
28 milljarðar
Góður dagur
fyrir Baug.
Félagið til-
kynnti að hagn-
aður félagsins
hefði verið 28
milljarðar króna
eftir skatta á
síðasta ári,
þar af hefði 15
milljarðar verið
innleystur hagn-
aður. Heildareignir Baugs Group
voru bókfærðar á 145 milljarða
króna í lok desember 2005.
Eigið fé var 62,9 milljarðar króna
og eiginfjárhlutfall félagsins 43%.
Arðsemi eigin fjár nam 78,7% á
árinu 2005.
Í tilkynningu frá Baugi sagði
að góð afkoma félagsins stafaði
af innleystum og óinnleystum
hagnaði af fjárfestingum félags-
ins í Bretlandi, Danmörku og
Íslandi.
Félagið er kjölfestufjárfestir
í nærri 30 fyrirtækjum. Velta
þeirra nam á síðasta rekstrarári
um 950 milljörðum króna og
hagnaður þeirra fyrir afskriftir
og fjármagnskostnað var um 40
milljarðar króna. Í eigu þessara
fyrirtækja eru 3500 verslanir og
Vilhjálmur
Egilsson.
Kauphöllin. „Ekki yfirtökuskylda Oddaflugs og Baugs í FL Group.“
18. janúar
JÓN HELGI KAUPIR BANKA Í LETTLANDI
Íslendingar sækja í að kaupa banka
um þessar mundir. Margeir Péturs-
son var í Úkraínu í byrjun ársins
og tilkynnti um kaup Íslendinga
á banka þar. En nú var komið að
Jóni Helga Guðmundssyni í Byko.
Sagt var frá því þennan dag að
félag í hans eigu, Straumborg,
hefði keypt meirihlutann, 51%, í
lettneska bankanum Lateko-banka.
Jón Helgi Guðmunds-
son í Byko.
Ennfremur að Ice-Balt Invest, félag í
eigu Þorsteins Ólafssonar og Vitalijs
Gavrilovs, hefði keypt 9%. Lateko-
banki er viðskiptabanki með eignir
upp á 30 milljarða króna og rekur
10 útibú og 67 minni afgreiðslu-
staði. Þess má geta að Jón Helgi er
með umtalsverð viðskipti í Lettlandi
og rekur fyrirtæki hans, Byko-Let,
þar timburverksmiðjur.
Jón Ásgeir
Jóhannesson.
Hagnaður
Baugs 28
milljarðar á
síðasta ári.