Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2006, Page 42

Frjáls verslun - 01.01.2006, Page 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 D A G B Ó K I N inu, en þó hefur verið upplýst að það liggi á bilinu 15 til 20 milljarðar króna. Eignarhalds- félag í eigu Benedikts Sveinssonar, fyrrum stjórn- arformanns Eimskipafélagsins og Sjóvár- Almennra, er stærsti hluthafinn í Bílanausti. Bjarni Benediktsson alþingismaður og sonur Bene- dikts er stjórnarformaður Bíla- nausts. Hermann Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Bílanausts, verður framkvæmdastjóri eignarhaldsfé- lagsins sem á bæði Olíufélagið og Bílanaust. Nýr forstjóri Olíufé- lagsins verður ráðinn á næstunni í stað Hjörleifs Jakobssonar sem mun snúa sér að öðrum verk- efnum í samstarfi við Ólaf Ólafs- son í Keri. Bílanaust fjárfesti á síðasta ári í Bretlandi og hyggst auka umsvif sín þar enn frekar. 7. febrúar Jákup fjárfestir í Bandaríkjunum Jákup Jacob- sen, eigandi Rúmfata- lagersins, hefur keypt tæp 9,9% hlut í bandaríska fyrirtækinu Pier 1 Imports fyrir um 5,9 milljarða króna, en það rekur húsgagnaverslanir undir vöru- merkjunum Pier 1 og The Pier. Fyrirtækið var stofnað í Kali- forníu árið 1962 og rekur nú um 1.200 verslanir í Bandaríkjunum, Kanada, Mexíkó og Bretlandi. Það veltir um 118 milljörðum króna. Áður hefur verið sagt frá því að Jákup hefði keypt 13,6% hlut í Linens Things verslunarkeðjunni í Bandaríkjunum en markaðsvirði þess hlutar er nálægt 11 millj- örðum. Sá hlutur verður seldur á næstunni vegna yfirtökutilboðs í félagið. 7. febrúar Skuldabréf Kaup- þings fá hæstu lánshæfiseinkunn Moody’s Forráðamenn Kaupþings banka héldu blaðamannafund og greindu frá því að fyrirhuguð skuldabréfaútgáfa Kaupþings banka vegna fjármögnunar á íbúðalánum bankans á Íslandi fengi hæstu mögulegu lánshæfis- einkunn, Aaa, frá lánshæfismats- fyrirtækinu Moody’s Investors Service. Þetta er sama lánshæfis- einkunn og skuldabréf útgefin af íslenska ríkinu og skuldabréf með ríkisábyrgð hafa fengið. Sú tegund skuldabréfa, sem Kaup- þing banki mun gefa út, kallast á ensku „Structured Covered Bonds“, eða „sérvarin skulda- bréf“. 9. febrúar Avion Group kaupir Star Airlines Tilkynnt var þennan morgun að Avion Group hefði keypt franska leiguflugfélagið Star Airlines, annað stærsta leiguflugfélag Frakklands. Star Airlines flýgur til tuttugu áfangastaða í Afríku, Mið-Austurlöndum og við Miðjarð- arhaf. Kaupverðið er trúnaðarmál en kaupin eru fjármögnuð með eigin fé og lánsfé. Star Airlines er eina franska leiguflugfélagið sem flýgur bæði á styttri og lengri áfangastaði og er flugfloti félagsins einn sá nýjasti meðal leiguflugfélaga í Evrópu en meðalaldur flugvéla er fimm ár. Flotinn samanstendur af sex Airbus vélum, fjórum Airbus 320 og tveimur Airbus 330-200. 11. febrúar BJÖRN: 84 milljónir fyrir 120 daga Björn Ingi Sveins- son, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Hafn- arfjarðar, fékk greiddar 84 milljónir vegna starfsloka á síð- asta ári, að því er fram kemur í ársreikningi Sparisjóðsins. Björn Ingi gegndi starfinu í fjóra mánuði en í ráðn- ingarsamningi var fallist á að hann hlyti ríflegar bætur ef breyt- ingar yrðu á yfirstjórn sjóðsins. Björn var borgarverkfræðingur áður en hann var ráðinn til SPH sem sparisjóðsstjóri. Það tók Björn ekki svo langan tíma að fá vinnu eftir brotthvarfið frá sparisjóðnum því hann var í lok janúar sl. ráð- inn framkvæmdastjóri Saxbygg - sem er fjárfestingarfélag í sam- eiginlegri eigu Saxhóls ehf. og Byggingarfélags Gylfa og Gunn- ars (BYGG) ehf. Jákup Jacob- sen í Rúmfata- lagernum. Hermann Guðmunds- son, forstjóri Bílanausts. 11. febrúar ICELANDAIR GROUP SKRÁÐ Í KAUPHÖLLINA Hún var mjög óvænt fréttin um að FL Group ætlaði að gera Icelandair að Icelandair Group og skrá félagið í Kauphöll Íslands til að selja hluta af því og fá nýja meðeigendur að félaginu. Hannes Smára- son, forstjóri FL Group, sagði að tilgangurinn með þessu væri sá að efla fjárhagslegan styrk FL Group þar sem stór verkefni væru í burðar- liðnum hjá FL Group. Hann sagði jafnframt að FL Group myndi inn- leysa tugi milljarða sölu- hagnað í tengslum við þessi viðskipti, gangi þau eftir. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, og Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group, kynntu fyrirhugaða skráningu Icelandair. Magnús Þor- steinsson, aðaleigandi Avion Group. Björn Ingi Sveinsson fékk 84 millj- ónir í starfs- lokasamning.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.