Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 51
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 51
N Ý R E I G A N D I T O Y O T A - U M B O Ð S I N S
Hvenær kom fyrst til greina að kaupa Toyota-umboðið,
og af hverju?
„Það er í byrjun síðasta árs sem ég fer að velta því fyrir mér.
Viðræður hófust ekki fyrr en í október 2005. Niðurstaðan
varð svo upp úr miðjum desember.
Þú spyrð af hverju. Þetta er einfaldlega eitt mest spenn-
andi umboðið hjá okkur Íslendingum í dag.“
Magnús Kristinsson segir að að kaup hans á Toyota-fyrir-
tækinu byggist á því að þetta sé vel rekið fyrirtæki með gott
starfsfólk sem hann beri fyllsta traust til.
Hann vonar að það haldi áfram störfum.
„Toyota-umboðið hefur ávallt lagt sig fram
um að veita afburðaþjónustu og áherslan
verður á að viðhalda og styrkja þann þátt
starfseminnar auk þess að efla umboðið til
lengri tíma. Toyota-bílar hafa verið þeir sölu-
hæstu á Íslandi í mörg ár og það felast mörg
sóknarfæri í Lexus-bílum sem hafa komið
mjög sterkir inn á markaðinn undanfarin ár.
Ég hlakka til að takast á við verkefnin sem
eru framundan í samvinnu við starfsmenn,“
segir Magnús Kristinsson.
Nú var árið 2005 eitt það stærsta í
bílasölu á Íslandi og nýskráningar liðlega 18 þúsund
bílar. Hlutur Toyota er sem fyrr stærstur, eða 23,7% af
heildinni. Ýmsir gera ráð fyrir að úr bílasölu dragi á
árinu 2006. Mun Toytota gera einhverjar ráðstafanir
til þess að selja sama fjölda bíla á þessu ári og þá hugs-
anlega auka hlutdeild sína í heildarsölunni sem er sú
langstærsta í dag?
„Það er alltaf stefnan hjá mér og mínu fólki að stækka og
auka starfsemina, ekki minnka og draga saman seglin.
Þannig að við stefnum að því að halda okkar hlutdeild hjá
Toyota í heildarbílasölunni hérlendis.“
Engar breytingar fyrirhugaðar á rekstrinum
Verða gerðar einhverjar breytingar á rekstri Toyota-
umboðsins á árinu og mun jafnvel verða skipt um nafn
á fyrirtækinu?
„Það eru engar breytingar fyrirhugaðar á rekstrinum, en
nafni fyrirtækisins verður hugsanlega breytt.“
Hvernig hefur bílaeign þinni verið háttað gegnum tíð-
ina? Hefur þú átt margar Toyotur? Hver var þinn fyrsti
bíll og hvað varstu gamall þegar þú eignaðist hann?
Hvernig er bílaeign þinni háttað í dag?
„Nei, ég hef ekki átt margar Toyotur. Ég eignaðist fyrst
Toyotu fyrir átta árum síðan, og svo Lexus. Í dag á ég Land
Cruiser og Lexus og því til viðbótar á frúin Lexus og Toyotu.
Auk þessa á ég svo Ford Mercury 1956 og breskan taxa frá
árinu 1990. Fyrsti bíllinn sem ég keypti var Volkswagen
bjalla. Það var stoltur 19 ára unglingur sem eignaðist þann
bíl.“
Happatalan 44
Daginn eftir að Magnús tók við stjórnartaumum í Toyota
afhenti hann Toyota-bíl nr. 4.544 á árinu, og kl. 13:44! Þetta
var Toyota Avensis Sedan. Magnúsi til fulltingis var Björg-
vin Njáll Ingólfsson, deildarstjóri hjá P. Samúelssyni hf., en
hann átti 44 ára afmæli þennan sama dag.
Talan 44 spilaði stórt hlutverk við
afhendingu þessa Avensis-bíls eins og sjá
má, en Magnús er m.a. eigandi fjárfestinga-
fyrirtækisins MK44, netfangið hans byrjar á
44, símanúmerið endar á 44 og þannig má
eflaust lengur telja. Magnús segir töluna 44
mikla happatölu hjá sér og fjölskyldunni.
„Það má segja að þegar ég kom til starfa
hjá fyrirtæki föður míns um 1970 hafi fyrir-
rennari minn, sem var móðurbróðir minn,
verið byrjaður að 44-væða félagið. Hann
vann á skrifstofu fjölskyldufyrirtækisins,
og reyndi að koma tölunni 44 fyrir alls
staðar þar sem hægt var að velja. Forsaga
þessa er kannski sú að langafi minn gerði út skútu frá
Hafnarfirði, Surprise GK-4, og þaðan kemur talan fjórir inn
í fjölskylduna. Ég hef haldið þessu merki hátt á loft síðan.
Þar sem ég get valið töluna 44 geri ég hiklaust.
Kannski er ég forfallinn 44-aðdáandi þannig að ef ég
get gert eitthvað sem snertir 44 geri ég það og tel mikla
lukku vera yfir því. Allt sem ég hef getað valið fyrirtæki
mínu hefur byggst á 44, númer, nafn og símanúmer o.þ.h.
T.d. heitir eitt fyrirtækja minna MK44. Svona hefur þetta
verið alla tíð. Þessi tala hefur aldrei brugðist mér og mun
aldrei gera!“
Stoke mun lafa í 1. deildinni!
Magnús er formaður stjórnar Stoke Holding, hlutafélags-
ins sem á um 60% hlut í enska knattspyrnufélaginu Stoke
City. Fyrrihluta árs 2005 var haft eftir Magnúsi að á meðan
Tony Pulis væri knattspyrnustjóri félagsins hefði hann ekki
áhuga á að veita meira fjármagni til félagsins. Sú yfirlýsing
var gefin út í tilefni ákvörðunar stjórnar Stoke City að end-
urráða Tony Pulis sem knattspyrnustjóra, sem Magnús var
mjög ósáttur við. Magnús taldi að Pulis hefði komið mjög
illa fram gagnvart Íslendingunum sem komu að Stoke City
og nánast hæðst að þeim með því að nota landsliðsmanninn
Þórð Guðjónsson alls ekkert.
Á miðju síðasta ári var skipt um knattspyrnustjóra, og
tók Hollendingurinn Johan Boskamp við stöðu knattspyrnu-
stjóra.
Kannski er ég forfallinn
44-aðdáandi þannig að
ef ég get gert eitthvað
sem snertir 44 geri ég
það og tel mikla lukku
vera yfir því. Allt sem
ég hef getað valið fyrir-
tæki mínu hefur byggst
á 44, númer, nafn og
símanúmer o.þ.h.