Frjáls verslun - 01.01.2006, Síða 65
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 65
N O T K U N E I N K A Þ O T N A
ruð þúsund að leigja níu manna Cessna
Citation Excel einkaþotu fram og til baka
frá Bretlandi.
Ásgeir Friðgeirsson
Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfs
Thors Björgólfssonar, segir að það sé ekk-
ert óeðlilegt við það að maður eins og
Björgólfur Thor sé með einkaþotu á sínum
snærum. „Hann stendur í miklum fjárfest-
ingum víða um heim og þá skiptir máli að
nýta tímann vel og vera fljótur að komast
á milli staða.“
Ásgeir segir að vélin sé í eigu fyrirtækis
sem sé alfarið í eigu Björgólfs Thors en
ekki hlutafélags á hans snærum. „Hann er
að fjárfesta í Grikklandi, Búlgaríu, Tékk-
landi, Póllandi og Finnlandi svo eitthvað sé
nefnt og er í stjórn félags í Svíþjóð og á að
sjálfsögðu oft erindi til Ísland. Björgólfur
velur menn með sér í vélina í ljósi þeirra
verkefna sem þarf að leysa hverju sinni og
þotan gerir þeim kleift að funda, undirbúa
sig og nýta tímann vel á leiðinni.“
Að sögn Ásgeirs styttir vélin biðtíma
á flugvelli. „Menn komast beinustu leið á
áfangastað án tafa og geta farið um leið og
fundi er lokið. Það er einfaldlega þetta sem
málið snýst um.“
Aðspurður samþykkti Ásgeir að verðið
á þotunni hefði verði um einn milljarður
króna og segir að það hafi verið tilkynnt
þegar þotan var keypt. Það gefur svo auga
leið að því fylgir einnig kostnaður að reka
þotuna, halda henni við og borga áhöfninni
laun.
Flutti Fischer til landsins
Það vakti nokkra athygli á sínum tíma
þegar Baugur Group hljóp undir bagga og
flutti Bobby Fischer til Íslands í einkaþotu
síðasta spölinn frá Japan. Þota á vegum
Baugs komst raunar fyrst í sviðsljósið
Björgólfur Thor Björgólfsson á sína eigin þotu.
Þetta hefur verið orðað
þannig að notkun einka-
þotu sé hliðstæð því og
þegar tekinn er í leigubíl
í vinnuna í stað þess að
bíða eftir strætisvagni.
Björn Rúriksson athafnamaður bauð upp á þjónustu einkaþotna fyrir nokkrum árum í sam-
vinnu við norskt fyrirtæki. Hann er hættur í þeim rekstri.
vegna fréttamyndar ársins þegar Jón Ólafs-
son kom með þotunni vegna viðræðna við
Jón Ásgeir Jóhannesson um söluna á Norð-
urljósum á sínum tíma.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki
að fá upplýsingar um það hvort umrædd
þota sé í eigu Baugs Group eða tekin á leigu.
Að sögn Söru Lindar, upplýsingafulltrúa hjá
Baugi Group, tjáir fyrirtækið sig ekkert
„um fararmáta einstakra starfsmanna eða
eigenda Baugs, hvorki innanlands né utan
né á milli landa“.
Minni tími í súginn
Hjá KB banka fengust þær upplýsingar að
það kæmi fyrir að Kaupþing banki notaði
einkaþotur sem ferðamáta fyrir starfsfólk
sitt en öll ferðaskipulagning innan bank-
ans miðist þó við að starfsmenn ferðist í
áætlunarflugi. Í einstaka tilvikum kann að
vera hagstæðara að nota einkavél og þá er
sá kostur valinn. Hvert tilvik er metið fyrir
sig og þá er jafnframt tekinn með sá tíma-
sparnaður sem næst, þ.e. sá tími sem ella
færi í súginn.
Halldór Kristmannsson, upplýsingafull-
trúi Actavis, hafði svipaða sögu að segja.
Hann sagði að það kæmi fyrir í einstaka
tilfellum að fyrirtækið notaðist við einka-
þotur en að það væri almennt stefna félags-
ins að lágmarka ferðakostnað og að allir
starfsmenn samstæðunnar ferðist á hag-
kvæmasta máta hverju sinni.
LJ
Ó
S
M
Y
N
D
:
P
JE
T
U
R
S
IG
U
R
Ð
S
S
O
N
LJ
Ó
S
M
Y
N
D
:
M
O
R
G
U
N
B
LA
IÐ
/
Á
R
N
I
S
Æ
B
E
R
G