Frjáls verslun - 01.01.2006, Page 66
66 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
FERILL OG FRAMLAG
PETERS F. DRUCKERS
P E T E R F . D R U C K E R
P
eter F. Drucker er fæddur í
Austurríki 19. nóvember 1909.
Um mótunarár hans er fjallað í
bók eftir John Flaherty frá árinu
1999. Þar segir m.a. að þrjú
atriði í æsku Druckers hafi haft
mikil áhrif: Fyrst tveir grunnskólakennarar.
Annar kennarinn brýndi fyrir Drucker að
gæta að fágun og ögun í ritun meðan hinn
hvatti Drucker til að fara út fyrir rammann
og fyrirliggjandi hefðir í hugsun og nálgun
að vandamálum. Í annan stað að mestu
áhrifavaldar í menntun Druckers hafi verið
foreldrar hans og það fólk sem kom á
heimili hans. Í samskiptum við þetta fólk,
sem var í fremstu röð innan mennta og
lista, lærði Drucker góða siði og mikilvæga
færni á mörgum sviðum. Í þriðja lagi sjálfs-
nám Druckers þar sem hann tók snemma
þátt í vísindalegri umræðu og tileinkaði sér
klassísk fræði og mannvísindi.
Eftir menntaskólapróf yfirgefur Drucker
Vínarborg. Á sautjánda ári fer hann til Ham-
borgar og fær vinnu í útflutningsfyrirtæki.
Þaðan fer hann til Frankfurt 1928 að vinna
í banka. Ári síðar fór hann að skrifa um
fjármál í leiðandi blaði í Frankfurt. Hann
varð fljótlega ritstjóri blaðsins á sviði við-
skipta- og utanríkismála og gegndi því
starfi til 1933. Samhliða ritstjórastörfunum
stundaði Drucker nám í lögum og stjórn-
málafræði við Háskólann í Frankfurt. Hann
lauk doktorsprófi 1931.
Drucker sá ekki framtíð fyrir sig í Þýska-
landi og hélt til Bretlands árið 1933. Hann
starfaði í fjárfestingabanka næstu þrjú árin.
Til marks um það hvað tilviljanir geta þýtt
fyrir þróun einstaklinga segir Flaherty frá
því að Drucker hafi árið 1934 í London
leitað sér skjóls undan regni í listasafni. Þar
var sýning á japanskri list sem hann heillað-
ist svo af að hann hóf að safna japanskri
list og ávann sér gott orðspor fyrir þekk-
ingu á listinni og á japanskri menningu.
Bretland varð þó ekki endastöðin hjá
Drucker. Árið 1937 fluttist hann til Banda-
ríkjanna og gerðist sjálfstæður pistlahöf-
undur fyrir nokkur bresk blöð. Drucker
skrifaði m.a. um efnahagsmál, stjórnmál,
félagsmál og menntamál. Drucker settist að
í Bandaríkjunum og helgaði sig ritstörfum,
kennslu og ráðgjafastörfum.
Ritverk Peters F. Drucker
Ritverk Druckers má flokka á ýmsan hátt.
Gróflega má skipta verkunum í þrennt, um
samfélagið og þróun þess, um fyrirtækið og
stjórnun þess og svo um einstaklinginn og
árangur hans.
Peter F. Drucker var mjög afkastamikill
höfundur. Eftir hann liggja tugir bóka og
mörg hundruð greinar. Heimildir eru um að
bækur eftir Drucker hafa selst í yfir fimm
milljónum eintaka. Fróðlegt er að skoða
listann yfir bækurnar. Við gerð listans hér
til hliðar var stuðst við samantekt Johns
Flahertys sem nær til 1999 og frá þeim tíma
er bætt við listann þeim bókum sem grein-
arhöfundur hefur upplýsingar um.
Einföld leit á veraldarvefnum stað-
festir að Drucker hefur haft mikil áhrif.
Menn eins og Jack Welch, fyrrum forstjóri
Fáir eiga að baki eins
langan og glæstan feril og
Peter F. Drucker. Nafnið
hans er vel þekkt um allan
heim og oft er vitnað til
hans sem föður nútíma-
stjórnunar. Hann skilur
eftir sig mikið ævistarf
sem margir munu njóta
um ókomin ár. Peter F.
Drucker náði 95 ára aldri.
Hann lést þann 11. nóvem-
ber 2005. Í þessari stuttu
grein er að finna yfirlit yfir
helstu ritverk Druckers og
vikið að ferli hans og fram-
lagi til stjórnunarfræðanna.
TEXTI: RUNÓLFUR SMÁRI STEINÞÓRSSON, PRÓFESSOR
Dr. Runólfur
Smári
Steinþórsson,
prófessor í
stjórnun og
stefnumótun við
viðskipta- og
hagfræðideild
Háskóla Íslands.