Frjáls verslun - 01.01.2006, Side 70
KYNNING70 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
Rafmagn á Íslandi er selt á samkeppnismarkaði frá og með 1. janúar 2006 í samræmi við lög sem Alþingi samþykkti í mars 2003 um vinnslu, flutning, dreifingu og viðskipti með
raforku. Allir stærri notendur, það er að segja þeir sem nota 100
kW afl eða meira, gátu valið sér raforkusala frá og með 1. janúar
2005. Aðrir landsmenn öðluðust þetta sama viðskiptafrelsi 1. jan-
úar síðastliðinn og geta nú samið um rafmagnskaup af þeim sem
þeir kjósa helst.
Landsnet hf. er stofnað á grundvelli þessara laga og hóf starf-
semi sína 1. janúar 2005. Hlutverk Landsnets er að annast flutning
raforku og kerfisstjórnun samkvæmt ákvæðum III. kafla raforku-
laga og gegnir fyrirtækið lykilhlutverki í þeirri markaðsvæðingu á
raforku sem stendur nú yfir.
Þórður Guðmundsson er forstjóri Landsnets og segir hann fyr-
irtækið vel undirbúið til að takast á við hið mikla hlutverk sem
því er ætlað í orkumálum landsmanna: „Segja má að ferlið hefjist
2001 þegar Landsnet var hluti af Landsvirkjun, en síðastliðin tvö ár
höfum við verið á fullu í þessum undirbúningi. Okkur er fyrst og
fremst ætlað að annast rekstur flutningskerfis á raforku á Íslandi,
sjá til þess að þeir aðilar sem eru í samkeppni á raforkumarkað-
inum geti átt viðskipti. Í því samhengi má segja að flutningskerfið
sé markaðstorg raforkunnar þar sem viðskiptin fara fram. Þetta
gengur þannig fyrir sig að framleiðendur rafmagns borga fyrir að
koma raforkunni inn á flutningskerfið og þeir sem kaupa rafork-
una borga fyrir úttekt hennar af flutningskerfinu.“
Lækkun kostnaðar
Raforkuumhverfið skiptist í fjóra þætti, framleiðslu, flutning,
dreifingu og sölu. „Flutningur og dreifing er sérleyfisstarfsemi en
samkeppni ríkir í framleiðslu og sölu. Okkar hlutverk er fyrst og
fremst það að sjá til þess að orkusamningar sem aðilar gera sín
á milli gangi eftir og tökum við að okkur að flytja raforkuna fyrir
samningsaðila,“ segir Þórður.
„Markmið okkar er að verð á flutningi raforkunnar fari lækk-
andi á komandi árum og höfum við þegar tekið ákveðin skref í þá
átt. Þannig lækkar gjaldskrá til dreifiveitna um 1% að nafnverði í
ár og stefnum við að frekari árangri á komandi árum. Rekstur og
viðhald flutningskerfisins hefur lækkað umtalvert á liðnum árum
og má þann árangur að verulegu leyti rekja til samstarfsverkefnis
sem við höfum tekið þátt í um nokkuð skeið. Þar er um að ræða
samanburðargreiningu á kostnaði við að eiga og reka raforku-
flutningsmannvirki sem 25 erlend flutningsfyrirtæki eiga aðild að.
Þetta gerum við til að skapa samkeppnisanda í starfseminni og til
að leita uppi bestu lausnir sem hafa skilað öðrum fyrirtækjum í
samanburðarhópnum góðum árangri á liðnum árum. Er málum nú
svo komið að kostnaðarstig Landsnets í rekstri og viðhaldi er það
þriðja lægsta í samanburðarhópnum.“
Þórður bendir einnig á að einungis um 10% af þeim kostnaði,
sem hinn almenni notandi greiðir fyrir raforku, sé vegna flutnings,
en þetta hlutfall sé hærra hjá aflmældum notendum. „Þó svo að
flutningurinn sé ekki stór hluti af raforkureikningnum er það mark-
mið okkar að þetta hlutfall lækki enn frekar.“
Markaðsverð á raforku
Að sögn Þórðar er virkjun markaðsumhverfisins einn mikilvægasti
þátturinn í starfsemi Landsnets: „Eitt mikilvægasta verkefnið sem
við vinnum að í dag er að leita heimilda til að reka skyndimarkað
með raforku á Íslandi. Hann er hugsaður til að örva samkeppni
með því að gefa aðilum á þessum markaði tækifæri til að kaupa
og selja raforku. Það hefur löngum verið vandi hér á landi að það
er ekki til neitt markaðsverð fyrir raforku því verðið er bundið í
föstum samningum milli aðila. Með skyndimarkaði vonumst við til
að örva markaðsumhverfið og þar með samkeppnina og ýta þannig
á að raforkuverð fari lækkandi. Því fyrr sem slíkur markaður kemst
á laggirnar og verður virkur, því fyrr getum við staðið undir þeim
LYKILHLUTVERK Í MARKAÐS VÆÐINGU RAFORKUMÁLA
LANDSNET HF.