Frjáls verslun - 01.01.2006, Side 72
72 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
R
akið kjaftæði! - Bullshit! Plain bullshit!“ Jan Petter Cour-
voisier Sissener, forstjóri Kaupþings í Noregi, talar í upp-
hrópunum og blandar saman móðurmáli sínu, norskunni,
og ensku kauphallarslangi. Hann bandar frá sér til vinstri og
hægri, tekur bakföll, rennir augabrúnum uppí hársrætur og niður
og aftur og hlær strákslega. „Kjaftæði!“
Já, svo mikið gengur á þegar Kaupþingsforstjórinn er beðinn
að svara spurningunni: Hvað er hæft í þeirri gagnrýni sem komið
hefur fram á íslenska banka í norrænum fjölmiðlum, að þeir geti
allir hrunið samtímis eins og spilaborg? Thore Johnsen, prófessor
í hagfræði við verslunarháskólann í Björgvin, hélt þessu til dæmis
fram á síðasta ári í álitsgerð til norska fjármálaeftirlitsins.
Jan Petter Sissener er ekki hlutlaus í málinu því hann er einn
fjölmargra Norðmanna sem íslenskir bankar hafa ráðið til starfa
þar í landi síðustu tvö árin. Við getum kallað þessa Norðmenn
„málaliða íslensku bankanna“.
Sissener er forstjóri Kaupþings í Noregi og hefur það hlutverk
að byggja upp starfsemina í Ósló með það að markmiði að Kaup-
þing verða leiðandi fyrirtæki í verðbréfaviðskiptum. Og það á
einnig að koma upp almennri bankastarfsemi fyrir lok árs.
Öfund, hrein og klár öfund Um gagnrýni manna eins og Thore
Johnsens prófessors segir Sissener: „Maðurinn veit ekki um hvað
hann er að tala. Hann hefur ekki lært fræðin sín. Ha, ha, ha!“
Sissener hlær og bætir við: „Gagnrýni á íslenskar fjármálastofn-
anir byggir á tvennu: Á öfund, já hreinni og klárri öfund. En einnig
á því að menn skilja ekki af hverju íslenskir bankar stækka bara
og stækka þegar aðrir bankar standa í stað eða eiga í erfiðleikum.
Skýringin á þessu liggur í hugsunarhætti Íslendinga. Þeir eru fljótir
að taka ákvarðanir, ferli ákvarðana eru styttri en til dæmis hér í
Noregi og skriffinnskan minni. Af því stækka bankarnir og af því
líkar mér vel í þjónustu Íslendinga. Mér líkar ágengnin og sókn-
dirfskan. Ég þoli ekki bullshit!“
Það er enginn vandi að fá Jan Petter Sissener til að tala. Orðin
streyma upp úr honum og oft fylgja enskar upphrópanir með.
Norskir blaðamenn vita þetta og því eru Sissener og Kaupþing oft
í fréttum viðskiptablaða hér.
Annars vegar hefur það vakið athygli blaðanna að Sissener
sækir jafnt og þétt starfsfólk til annarra fyrirtækja. Það er talað um
að hann geri strandhögg hér og þar. Hann er nánast búinn að tæma
skrifstofuna hjá fyrri vinnuveitanda sínum. Meðal viðskiptablaða-
manna í Noregi er sagt að Jan Petter þurfi bara að taka upp símann
og segja: Viltu koma að vinna fyrir mig? Þá stendur viðmælandinn
upp, tekur hatt sinn og staf og flytur sig til hins fræga Sisseners.
„Ég á eftir að næla í fleiri,“ segir hann og glottir strákslega.
Talar í fyrirsögnum Hin ástæða þess að Sissener er oft í fréttum er
að hann talar í fyrirsögnum. Hann segir umsvifalaust álit sitt á því
sem er að gerast á markaðnum. Vanti uppslætti á viðskiptasíðurnar
er bara að hringja í Sissener.
„Ég er ekki feiminn maður,“ segir forstjórinn og við trúum þeirri
fullyrðingu. „Ég hef ekkert á móti því að vera í sviðsljósinu. Ég hef
Norski Kaupþingsforstjórinn, Jan Petter Courvoisier Sissener,
er þjóðsagnapersóna í norsku viðskiptalífi og þekktur fyrir
að segja skoðun sína afdráttarlaust um menn og málefni.
„HEF ÁÐUR BYRJAÐ AFTASTUR
OG TEKIÐ FRAM ÚR!“
TEXTI OG MYNDIR: GÍSLI KRISTJÁNSSON Í ÓSLÓ
N O R S K I K A U P Þ I N G S F O R S T J Ó R I N N