Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 74
N O R S K I K A U P Þ I N G S F O R S T J Ó R I N N
Ráða til sín heimamenn
Bæði Íslandsbanki og KB-banki hafa
valið þá leið að ráða til sín heimamenn
til að stýra þessum stofnunum. Jan
Petter Sissener, forstjóri fyrir starfsemi
Kaupþings í Noregi, segir að þetta sé
skynsamlegt því heimamenn njóti alltaf
mest trausts á heimamarkaði. Hann
segir einnig að mikilvægasta fjárfestingin
í fjármálaþjónustu liggi í mannaflanum
en ekki í húsnæði eða afgreiðsluborðum
bankanna.
Núna skipta Norðmenn í þjónustu
íslensku bankanna tugum og á eftir að
fjölga. Íslandsbanki hefur töluvert forskot
á KB-banka og hefur mun fleiri málaliða
í sinni þjónustu. Jan Petter Sissener hjá
Kaupþingi segir á hinn bóginn að hann
sé rétt að byrja að kaupa menn. Hann er
rétt að byrja að koma sér upp herdeild
áður en „Kaupthing Norge“ verður að fjár-
festingabanka.
Af norskum málaliðum Íslandsbanka
eru þessir kunnastir:
Frank O. Reite, for-
stjóri fyrir umsvifum
Íslandsbanka í Nor-
egi. Hann var áður
mest þekktur fyrir að
vera hægri hönd Kjell
Inge Rökke í fjármálum. Síðar varð hann
bankastjóri Kreditbankans í Álasundi og
á síðasta sumri settur yfir alla starfsemi
í Noregi.
Gunnar Jerven,
bankastjóri BNbank í
Ósló og Þrándheimi.
Hann er bóndasonur
af Austurlandinu og
stýrði BNbank þegar
Íslandsbanki keypti.
Sagður varkár maður
í peningamálum en hefur fengið hrós í
norskum fjármálablöðum fyrir vinnu sína í
þágu nýrra húsbænda.
Þrátt fyrir ríka foreldra er Sissener sjálfur ekki talinn ríkur.
Honum hefur haldist illa á fé. Hann segir að þetta sé rétt og komi af
því að honum þykir meira gaman að nota peninga en að safna þeim.
Það er líka fullyrt að hann hafi lánað vinum sínum fé en ekki fengið
það alltaf til baka. Örlætið hefur kostað hann peninga. Þó fréttist í
lok janúar að einn vina hans hefði greitt upp lán eftir fjögurra ára
vanskil. Það voru víst jafnvirði 100 milljóna íslenskra króna.
„Já, svona er þetta. Ég hef nóg fyrir mig en ég telst ekki sérstak-
lega ríkur maður,“ segir Sissener. Hann er kvæntur og á þrjú börn
sem eru um og yfir tvítugt.
Í hóp hinna stóru Metnaður Sisseners fyrir hönd Kaupþings
er mikill. Hann hefur lýst því yfir að fyrirtækið verði eitt fimm
stærstu á sviði verðbréfamiðlunar í Noregi. Þegar hann tók við í
september hafði Kaupþing 1,3 prósent af markaðnum og var - og
er enn - langt frá því að vera í hópi hinna stóru.
„Við erum á uppleið en ég hef á margan hátt orðið að byrja frá
grunni,“ segir Sissener. „Ég vil ekki gangrýna fyrri stjórnanda hér
en ég tel að hann hafi verið á rangri leið. Ég hef reynt að marka
aðra stefnu og endurnýjað hóp viðskiptavina fyrirtækisins.“
Hann leggur mikla áherslu á að byggja upp liðsanda innan Kaup-
þings. Hann talar um að fólk eigi að vera stolt af að vinna fyrir fyrir-
tæki sitt. Metnaður og vilji til að sinna þörfum viðskiptavinanna eru
lykilorðin í því sem hann segir. „Ef viðskiptavinirnir eru ánægðir
þá vöxum við, annars ekki. Þetta eru einföld sannindi en sígild,“
segir Sissener.
Banki á árinu Hann talar um að byggja upp sigurlið og þess vegna
ræður hann til sín menn sem hann þekkir. Og hann talar um að
Kaupþing hafi það að markmiði að verða að fjárfestingabanka á
norskum markaði og sinni litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
Bankinn á að hefja starfsemi síðsumars - í ágúst, segir Sissener.
Ég spyr hvort hann verði bankastjórinn og Sissener hlær hátt.
„Ha, ha, nei ég er ekki bankastjóri! Við finnum bankastjóra.
Það er alltaf hægt að finna menn sem kunna til slíkra verka,“ segir
Sissener.
Ég spyr þá hvort hann ætli að sækja bankastjóra til keppinaut-
anna hjá Íslandsbanka. Þeir eru núna tveir hjá bönkum í eigu
Íslandsbanka í Noregi.
„Já, því ekki. Ef þeir eru nógu góðir,“ segir Sissener og hlær enn
hærra en áður. „Nei í alvöru: Við finnum bankastjóra.“
Íslandsbanki hefur forskot En er Íslandsbanki helsti keppinautur-
inn á norska markaðnum?
,,Einn af keppinautunum,“ segir Sissener. ,,Ég hugsa þó að yfir-
mönnum mínum í Reykjavík þætti vænt um ef við yrðum stærri
74 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 5
Sókn íslenskra inn á norskan fjármálamarkað hófst með kaupum Íslandsbanka
á Kreditbanken, tiltölulega litlum banka í Álasundi, síðla árs 2004. Eftir það
hafa bæði Íslandsbanki og KB-banki keypt nokkur velvalin fjármálafyrirtæki
með það að markmiði að ná fótfestu sem fjárfestingabankar í Noregi.
„Málaliðarnir“ í þjónustu íslenskra banka í Noregi