Frjáls verslun - 01.01.2006, Page 75
N O R S K I K A U P Þ I N G S F O R S T J Ó R I N N
Jostein Sætrenes, banka-
stjóri Kreditbankans í
Álasundi. Hann tók við
af Frank O. Reite á síð-
asta ári en vann áður
einkum í olíunni og kom
úr stöðu framkvæmda-
stjóra hjá þjónustufyrir-
tæki við olíuiðnaðinn í Álasundi.
Kjetil Fröland, yfirmaður
gjaldeyrisviðskipta hjá
Kreditbankanum. Ráðinn
til bankans um áramót.
Reyndur bankamaður og
sérfræðingur í gjaldeyris-
viðskiptum. Var áður hjá
Den Norske Bank, stærsta banka Noregs.
Stig A. Rognstad,
áður aðaleigandi og
framkvæmdastjóri verð-
bréfamiðlunar Norse
Securities í Ósló.
Íslandsbanki keypti hann
og fyrirtækið fyrir jólin. Vinsæll miðlari í Ósló
en talinn félítill.
Kurt Inge Sandnes, sérfræðingur í fjárfest-
ingum í olíuvinnslunni. Ráðinn til Kreditbank-
ans í upphafi árs. Á að baki áþekkan feril
og bankastjórinn, Sætrenes, og var áður fjár-
málastjóri hjá einu af þjónustufyrirtækjunum í
olíunni í Álasundi.
Jan Rune Hurlen, framkvæmdastjóri fjármála-
ráðgjafarinnar FactoNor í Álasundi. Kredit-
bankinn átti hlut í fyrirtækinu en keypti það
allt ásamt framkvæmdastjóranum á síðasta
ári. Kaupin voru talin styrkja stöðu Kredit-
bankans í fjármálaþjónustu við minni fyrirtæki
í Álasundi og nágrenni.
Bjørn Richard Johan-
son, almannatengill
Íslandsbanka. Hann
var áður í fjögur ár
aðstoðarframkvæmda-
stjóri hjá Burson-Mar-
steller kynningarfyrir-
tækinu og tók að sér verkefni fyrir Íslands-
banka þegar Kreditbankinn og BNbank
voru keyptir. Var í framhaldi af því ráðinn til
Íslandsbanka. Hann var áður almannatengill
hjá verslanakeðjunni Haakon Gruppen og þar
áður fréttamaður hjá norska ríkisútvarpinu.
Ove Aagard Erichsen.
Ráðinn í janúar til Kredit-
bankans eftir að hafa
áður starfað hjá Eksport-
finans, sameignarfyrir-
tæki norsku bankanna
og ríkisins. Sérfræðingur
á sviði lána til útflutn-
ingsgreinanna, m.a við útflutning á skipum.
en Íslandsbanki í Noregi. Íslandsbanki hefur
forskot. Þeir hafa keypt banka í fullum rekstri,
styrkt þá og reka nú undir sömu nöfnum og
áður. Ég á von á að við reynum að byggja upp
eigið vörumerki, gera Kaupþing að nafni á
banka hér.“
En á útibú frá banka á Íslandi einhverja
möguleika á að ná fótfestu í Noregi?
„Auðvitað, auðvitað,“ svara Sissener umsvifa-
laust. „Markaðurinn hér mótast af því að Den
norske Bank - DnB - er langstærsti bankinn.
Síðan eru margir tiltölulega litlir bankar. DnB
getur bara minnkað héðan af og litlu bankarnir
vaxið og þar eigum við að minnsta kosti sömu
möguleika og aðrir og meiri möguleika ef við
höldum framsækninni og sókndirfskunni. Ef við
erum fljótari en keppinautarnir náum við lengra.
Ég hef byrjað aftastur áður og tekið fram úr!“
En kemur til greina að kaupa banka?
„Kaupa hvaða banka?“ spyr Sissener til baka.
„Það er enginn banki til sölu. Banki er heldur
ekkert merkilegt fyrirbæri. Það er hægt að
ráða fólk sem kann til verka og búa til banka.
Traust er það sem skiptir máli. Traust við-
skiptavinarins á bankanum. Hæfir menn geta
byggt upp slíkt traust.“
Enn þá hungraður Sissener talar með ákafa
og því spyrjum við hvort hann hafi hér ratað
í draumastarfið.
Hann hugsar sig um, veltir vöngum um
stund og segir síðan: „Eins og staða mín í líf-
inu er í dag þá er þetta að mörgu leyti drauma-
starf. Ég hef alltaf unnið langan vinnudag. Ég
gæti ekki farið heim á miðjum degi og sagt
vinnudeginum lokið. Að minnsta kosti ekki
enn. Ég tel mig hafa mikla starfsorku og verð
að nýta hana. Núna er ég fimmtugur en síðar
á ævinni langar mig ef til vill að slaka á og
hætta þessu ati. En núna er ég til í slag. Ég
er ennþá hungraður, ha, ha!“ segir Jan Petter
Sissener og slær saman hnefunum.
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 5 75
Sissener á til ríkra að
telja. Móðir hans var einn
erfingja að lyfjafyrirtæk-
inu Alpharma, sem afi
Jans Petters átti og rak.
„Málaliðarnir“ í þjónustu íslenskra banka í Noregi