Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 77
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 77
Á R N I P É T U R Í N Æ R M Y N D
Y
firlýsingar Árna Péturs Jóns-
sonar, forstjóra Og Vodafone,
um að gera félagið að stærsta
fjarskiptafélagi Íslands innan
tveggja ára, vöktu að vonum
athygli. Árni Pétur tók við starfinu sl. haust.
Hann vann áður hjá Baugi og Högum og
þar áður var hann framkvæmdastjóri Toll-
vörugeymslunnar í nokkur ár. Árni Pétur
hefur gaman af stangveiði
og mikinn áhuga á mynd-
list. Hann málar sér til
skemmtunar.
Bolvíkingur
Árni Pétur Jónsson er
fæddur í Bolungarvík 11.
desember 1966. Hann
er sonur hjónanna Jóns
Eðvalds Guðfinnssonar
og Guðbjargar Hermanns-
dóttur. Árni ólst upp í Bol-
ungarvík og gekk í skóla
þar. Eftir að skyldunámi
lauk fór hann í Verzlunar-
skóla Íslands en að loknu
stúdentsprófi lá leið hans
í Háskóla Íslands þaðan sem hann lauk
prófi sem viðskiptafræðingur árið 1991.
Þeir sem þekkja til Árna Péturs segja að
hann sé keppnismaður í eðli sínu, hörku-
duglegur og fljótur að hugsa. Hann hefur
víðtæka reynslu úr viðskiptalífinu og hefur
m.a. starfað sem framkvæmdastjóri Skipa-
afgreiðslu Jes Zimsen hf., sem forstjóri
Tollvörugeymslu Zimsen hf. og sem fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs heildsölu Olís.
Frá árinu 2001 starfaði Árni sem fram-
kvæmdastjóri matvörusviðs Baugs og síðar
sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Haga
hf. Í því starfi fólst umsjón með öllum versl-
unarrekstri Haga hf. á Íslandi, í Danmörku
og Svíþjóð. Hann hefur setið í stjórnum
allmargra fyrirtækja, s.s. Skeljungs, Húsa-
smiðjunnar og Lyfju þar sem hann var
stjórnarformaður frá 2001 til 2004.
Árni Pétur hefur einnig látið til sín taka í
skólamálum og var formaður skólanefndar
Ísaksskóla um nokkurra ára skeið og barð-
ist hart fyrir því að skólinn fengi þá viður-
kenningu sem hann á skilið.
„Mér finnst að maður
verði að leggja eitthvað
að mörkum til samfé-
lagsins og ég hef reynt
að stilla mínu framlagi
þannig að það komi börn-
unum mínum til góða og
vinna mín fyrir Ísaksskóla
tengist því. Þegar dóttir
mín fór í Ísaksskóla þá
setti ég mig svolítið inn í
gang mála þar og fór að
berjast fyrir tilverurétti
einkaskóla. Mér finnst að
þeir eigi að minnsta kosti
að eiga tilverurétt eins og
aðrir skólar. Ísaksskóli
hefur átt mjög erfitt upp-
dráttar á þessum tíma og það vantaði fólk
til starfa þannig að ég bauð mig fram og
starfaði þar í mörg ár.“
Edda Huld Sigurðardóttir, skólastjóri
Ísaksskóla, sem vann náið með Árna Pétri
í skólanefndinni, segir að hann sé ekki ein-
hamur til verka. „Það prýða hann margir
kostir. Hann er skipulagður, hvetjandi, hug-
myndaríkur, einlægur, raunsær og vill sjá
árangur. Hann er yfirlætislaus og einstak-
lega lipur í mannlegum samskiptum. Þegar
Árni tekur að sér verkefni sinnir hann því
daga og nætur þar til því er lokið. Hann er
einn þeirra sem virðist hafa fleiri klukku-
stundir í sólarhringnum en aðrir.“
Með græna beltið í karate
Að sögn Árna finnst honum gott að stunda
líkamsrækt. „Ég spilaði fótbolta í eina tíð og
mín lið eru Manchester United og Valur.“ Á
Verzlunarskólaárunum og á meðan Árni
var í háskóla lagði hann stund á karate og
keppti á Íslandsmeistaramótum. Hann er
með græna beltið. „Í dag finnst mér gaman
að veiða og ég fer einstaka sinnum í golf.“
Sú saga er til af Árna Pétri að einu sinni
hafi hann verið á leið í veiði ásamt fleirum
og að miklu hafi skipt hver myndi veiða
stærsta laxinn og vinna þannig til verð-
launa. Árni hlær þegar hann er spurður
hvort það sér satt að hann hafi keypt stóran
lax fyrir ferðina til að auka möguleikana
á að vinna. „Já, það var búin að vera svo
mikil pressa á mér að veiða stærsta fisk-
inn að ég kiknaði undan því og keypti mér
risastóran lax áður en ég fór úr bænum.
Ég faldi laxinn í poka og blóðgaði og allt á
bakkanum og þóttist hafa veitt hann. Þegar
kom að verðlaunaafhendingunni varð ég að
viðurkenna svindlið því ég gat ekki hugsað
mér að taka við verðlaununum á þessum
forsendum. Þessi leikur olli mikilli kátínu
hjá viðstöddum.“
Árni hefur mikinn áhuga á myndlist og
málar sér til ánægju. „Mér finnst gaman að
mála og teikna og hef gert það lengi. Ég fer
oft á myndlistarsýningar og er í ágætu sam-
bandi við myndlistarmenn og mér finnst
gaman að velta fyrir mér og tala um mynd-
list.“ Þegar Árni er spurður hvort hann
hafi einhverja formlega menntun í myndlist
svarar hann því neitandi. „En það er draum-
urinn að gera það þegar ég finn tíma til.“
Eiginkona Árna Péturs heitir Guðrún
Elísabet Baldursdóttir og er hárgreiðslu-
meistari. Þau eiga tvö börn, Daníel Orra
sem er 6 ára og Hildu Elísabetu sem er 11
ára.
MÁLAR SÉR TIL SKEMMTUNAR
„Og satt besta að segja
urðum við allir virkilega
pirraðir á honum og þurft-
um að taka hann til hlið-
ar til að eiga við hann
nokkur orð um að hætta
þessu dekri við konuna
sína. Okkar konur voru
farnar að gefa okkur
hornauga vegna þess að
við stæðum okkur ekki í
stykkinu,“ segir veiði-
félagi Árna Péturs.
TEXTI: VILMUNDUR HANSEN
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON