Frjáls verslun - 01.01.2006, Síða 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
Á R N I P É T U R Í N Æ R M Y N D
„Gef honum toppeinkunn“
Egill Ágústsson, framkvæmdastjóri Íslensk-
ameríska, hefur þekkt Árna Pétur í ein
fimmtán ár að eigin sögn. „Við kynntumst
þegar hann var framkvæmdastjóri hjá Skipa-
afgreiðslu Jes Zimsen hf. og svo forstjóri
Tollvörugeymslunnar.“
Egill segir allt sam-
starf sitt við Árna Pétur
mjög farsælt og gott.
„Sérstaklega þegar við
vorum að opna útibú frá
Tollvörugeymslunni hér
hjá Íslensk-ameríska. Að
mínu mati er hann hjálp-
legur og það stenst allt
sem hann segir. Hann er
drífandi, útsjónarsamur
og laðar það góða fram
í fólki. Hann nær að sjá
hlutina í víðu ljósi og
ég gef honum toppein-
kunn.“
Egill segist einnig hafa kynnst Árna utan
við vinnu og það sé í raun allt á sömu lund
hjá honum. „Hann er að stíga sín fyrstu
skref í stangveiði og er þegar orðinn mjög
áhugasamur í veiðinni. Hann hefur alltaf
unnið mikið og ég held að það sé ekki fyrr
en á allra síðustu árum
sem hann hefur farið að
sinna einhverjum áhuga-
málum.“
„Virkilega pirraðir“
„Við Árni kynntumst í
gegnum viðskipti,“ segir
Knútur G. Hauksson, for-
stjóri Heklu, sem hefur
þekkt hann í nokkur
ár og bætir við: „Hann
er eitthvað yngri en ég
þótt hann líti út fyrir
að vera eldri. Hann er
heiðarlegur, það er hægt
að treysta honum hund-
rað prósent. Þá finnst
mér hann þægilegur í umgengni, léttur og
skemmtilegur.“
Fyrir utan að hafa unnið saman að við-
skiptum eru Knútur og Árni Pétur persónu-
legir vinir.
Hann segir að einhverju sinni hafi þeir
Árni Pétur ásamt fleirum farið í hjónaferð
að veiða. „Og satt besta að segja urðum
við allir virkilega pirraðir á honum og
þurftum að taka hann til hliðar til að eiga
við hann nokkur orð. Árna er mjög eðl-
islægt að hugsa vel um konuna sína og
hann var alltaf að athuga hvort henni væri
nokkuð kalt eða vanhagaði um eitthvað.
Konurnar okkar hinna voru alveg komnar
með stjörnur í augun yfir því hvaða hann
hugsaði vel um Guðrúnu og farnar að gefa
okkur hinum hornauga og velta því fyrir
sér af hverju við værum ekki svona góðir
við þær líka. Okkur körlunum fannst þetta
bara hreint óþægilegt og sáum okkur ekki
annað fært en taka Árna til hliðar og biðja
hann um að hætta þessu. En þetta lýsir
honum afskaplega vel að mínu mati.“
„Mér finnst gaman að mála
og teikna og hef gert það lengi.
Ég fer oft á myndlistarsýningar
og er í ágætu sambandi við mynd-
listarmenn og mér finnst gaman
að velta myndlist fyrir mér.“
Árni Pétur hefur mikinn áhuga á myndlist og málar sér til ánægju. Hér málar hann af kappi á vinnustofu Tolla.
Nafn: Árni Pétur Jónsson.
Fæddur: 11. desember 1966.
Maki: Guðrún Elísabet
Baldursdóttir.
Börn: Daníel Orri, 6 ára,
og Hildur Elísabet, 11 ára.
Menntun: Viðskiptafræðingur.