Frjáls verslun - 01.01.2006, Síða 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
F K A V E R Ð L A U N I N
Ásdís Halla Bragadóttir, forstjóri BYKO, fékk FKA-viðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri árið 2006 og jafngildir það því að hún sé kona ársins í
atvinnulífinu, að mati félagsins. Ásdís Halla var ráðin for-
stjóri BYKO snemma á síðasta ári. Rakel Olsen, forstjóri
og stjórnarformaður Sigurðar Ágústssonar í Stykkis-
hólmi, fékk þakkarviðurkenninguna fyrir einstaklega
árangursríkt ævistarf, en hún hefur stýrt fyrirtækinu um
árabil. Þá sat hún í stjórn SH um langt skeið.
Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, fékk
hvatningarverðlaun FKA fyrstur karla. Þetta er í annað
sinn á skömmum tíma sem Jón og Frjáls verslun fá verð-
laun vegna skrifa um þátt kvenna við stjórnun fyrirtækja.
Síðastliðið haust fékk blaðið sérstaka viðurkenningu Jafn-
réttisráðs fyrir umfjöllun og samanburð á stöðu kvenna
og karla í atvinnulífinu.
Skrif Frjálsrar verslunar um þátt kvenna í stjórnun
íslenskra fyrirtækja hafa verið umtalsverð á síðustu tíu
árum en fyrir tveimur árum var ákveðið að helga eitt
tölublað konum í viðskiptalífinu og velja 70 áhrifamestu
konur viðskiptalífsins. Þetta var endurtekið sl. vor. Í
þessum tölublöðum hefur verið gerð ítarleg úttekt á hlut
kvenna í stjórnum 150 stærstu fyrirtækja landsins sem
og hversu mörgum fyrirtækjum þær stýra af 300 stærstu
fyrirtækjum landsins. Samanburður af þessu tagi hefur
ekki verið gerður áður af fjölmiðlum og vó hann þyngst
við úthlutun viðurkenninganna tveggja.
Verðlaunahátíðin var haldin í Súlnasal Hótel Sögu.
Bryndís Schram var kynnir kvöldsins og voru um tvö
hundruð gestir viðstaddir, langflestir konur úr atvinnulíf-
inu og stjórnmálum. Hjörleifur Valsson lék á fiðlu fyrir
veislugesti og boðið var upp á léttar veitingar.
Margrét Þóra Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri
Pfaff-Borgarljósa og formaður Félags kvenna í atvinnu-
rekstri, setti hátíðina og kynnti verðlaunahafana. Birna
Einarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka, og
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra afhentu síðan
viðurkenningarnar.
„BYKO-drottningin“ Ásdís Halla, sem er stjórnmálafræð-
ingur og með mastersgráðu í opinberri stjórnsýslu frá
Harvardháskóla, tók við glæsilegum verðlaunagrip eftir
Aðalheiði Eysteinsdóttur, myndarlegri leirmynd sem
hlaut nafnið „BYKO-drottningin“.
Að mati dómnefndarinnar hefur Ásdís Halla sýnt
mikla leiðtogahæfileika og þó hún hafi ekki stundað hefð-
Í annað sinn á skömmum tíma fær Frjáls verslun verðlaun
vegna skrifa um þátt kvenna við stjórnun fyrirtækja.
Síðastliðið haust fékk blaðið verðlaun Jafnréttisráðs.
TEXTI: JÓHANNA HARÐARDÓTTIR
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
GLÆSILEG HÁTÍÐ FÉLAGS KVENNA Í ATVINNUREKSTRI:
Ásdís Halla Bragadóttir, forstjóri BYKO, fékk þennan for-
láta verðlaunagrip eftir Aðalheiði Eysteinsdóttur listakonu
og hlaut hann nafnið „BYKO-drottningin“. Margrét Þóra
Kristmannsdóttir afhenti henni gripinn.
FKA -VIÐURKENNINGARNAR