Frjáls verslun - 01.01.2006, Síða 86
86 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R
Ég sá þennan líka
himneska Kjarval til
sölu í Reykjavík um
jólin fyrir rúmar þrjár
milljónir króna svo
þarna var Hallgrímur
allt í einu metinn á
við sex Kjarvala.
muni búa til góðgerðastofnun utan um fyrir-
hugaða Harry Potter alfræðibók.
Þeir sem þiggja hjálpina finnst oft ekki
síðra að fá fræg nöfn en fé svo það er iðu-
lega þrýstingur á gefendur að láta nafns
síns getið því það er dýrmæt auglýsing fyrir
félögin. Og auðvitað er til góðgerðafélag
sem hvetur til góðgerða - og það félag vill
að fólk segi frá góðverkunum öðrum til
eftirbreytni.
Í stöku tilfellum verða nöfnin þiggjendum
byrði. Alberto Vilar stráði á sínum tíma
200 milljónum dala í óperuhús og háskóla
víða um heim. Þessi 65 ára fjárfestir var í
fyrra dreginn fyrir dóm í New York fyrir
fals og fjárdrátt. Mikið af loforðum hans
voru aldrei greidd - nú munda viðtakendur
loftborinn víða til að má nafnið hans af
veggjum, meðal annars í Covent Garden
- hann var einn þeirra sem vildi nafnið sitt
sem víðast.
Betra að nota peningana en deyja frá þeim
Fyrir utan að flotta sig með góðgerðaballi
geta íslenskir auðmenn tekið skoska auðkýf-
inginn Tom Hunter til fyrirmyndar. Hvort
Hunter hefur sagt fjárfestingafélaga sínum,
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, frá stofnun sinni
er óvíst en báðir hafa auðgast á verslun
og fasteignum. Fyrir tveimur árum lagði
Hunter 100 milljónir punda - um fimmtung
eigna sinna - í góðgerðasjóð. Hann hefur
lagt fé í baráttu gegn fátækt í heiminum og
gefið til safna í Skotlandi: kannski opnar
bráðum „Jóns Ásgeirs viðbyggingin“ í Lista-
safni Íslands. Hunter segist vilja nýta féð
til góðs meðan hann sé á lífi í stað þess að
deyja frá því.
Anita Roddick ætlar heldur ekki að
deyja auðug. Stofnandi Body Shop 1976
með bankaláni upp á fjögur þúsund pund
á nú tvö þúsund búðir. Hlutur hennar er
metinn á 51 milljón punda - sem hún mun
leggja í góðgerðastofnun. Dætur hennar,
Dam og Justine, báðar á fertugsaldri, fá
ekki neitt. Í viðtali sögðust þær fullkomlega
sáttar við þessa ákvörðun, mamman hefði
ekki spurt þær ráða en þetta kæmi þeim
alls ekki á óvart.
Justine vann lengi hjá mömmu sinni en
býr nú með manni og börnum í Kaliforníu.
Sam hefur sjálf sett upp fyrirtæki, Coco De
Mer, sem selur kvenundirföt og ýmislegt
til að krydda ástarlífið, segist hafa lært
mikið af mömmu sinni og fengið góðan
stuðning í eigin rekstri. Þær verða þó ekki
á nástrái því pabbi þeirra gefur ekki sinn
hlut. Stofnun Roddicks mun ljá mannrétt-
indamálum lið.
Pólitískt gildi góðverka Góðmennsku-
hefðin varð auðvitað til löngu áður en
velferðarhugmyndir tóku á sig mynd vel-
ferðarkerfis nútímans. Það er engin tilviljun
að á Norðurlöndum, þar sem ríkið hefur
tekið skörulega á velferðarmálum, eru góð-
gerðafélög fyrirferðarlítil miðað við hér.
Þegar Tony Blair forsætisráðherra ávarpaði
NCVO-samkomu 1999 sagði hann að á fyrri
helmingi síðustu aldar hefði Bretum lærst
að landið næði ekki markmiðum sínum
án aðstoðar ríkisstjórna - en síðan hefði
ríkisstjórnum lærst að þær þyrftu öflugan
sjálfboðaliðsgeira.
Margs konar félagsmálum, til dæmis
aðstoð við ungt fólk, eiturlyfjaneytendur,
svo ekki sé minnst á framlag til menningar-
stofnana eins og safna, er haldið uppi af góð-
gerðafélögum. Stórmerkt starfið helgast oft
af eldhug og reynslu þeirra sem reka þau.
Það vekur þó víða áhyggjur þegar stjórn-
málamenn benda um of á nauðsyn þess að
láta svona félög taka of mikið að sér, líkt
og ýmsir íhaldsmenn hafa gert undanfarið
með nýja leiðtogann David Cameron í far-
arbroddi. Það sem gerir þessi félög oft svo
öflug er að þau eru lítil og einbeita sér að
svæðum og efnum sem þau gjörþekkja -
kannski annað ef þau væru tífalt stærri.
Íslendingar mega margt lært af góðgerða-
félögum hér - þó ekki sé nema bara hugs-
unarhátturinn og afstaðan sem þau sýna.
Það er hins vegar oft undarleg tilhneiging
til þess á Íslandi að hlutirnir taki á sig fárán-
lega tröllslegar myndir, samanber ómálaða
málverkið hans Hallgríms Helgasonar - ég
sá þennan líka himneska Kjarval til sölu í
Reykjavík um jólin fyrir rúmar þrjár millj-
ónir króna svo þarna var Hallgrímur allt í
einu metinn á við sex Kjarvala. Vísast eng-
inn jafn hissa og Hallgrímur. Annars vona
ég að Hallgrímur sýni sömu hugmynda-
auðgi og venjulega: snúi þessu ofurverð-
mæta verki upp í „concept“ list - og afhendi
eigandanum innrammaða A4 örk með lýs-
ingu af verkinu sem hann hefði viljað mála
en væri nú komið út fyrir þann verðramma
sem hann lifði annars í...
Jón Ásgeir Jóhannesson, Hannes Smárason og Pálmi Haraldsson tilkynna á blaðamannafundi
að Baugur Group, FL Group og Fons gefi 135 milljónir til verkefnis UNICEF í Gíneu-Bissá.