Frjáls verslun - 01.01.2006, Síða 90
90 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR
F lestir Reykvíkingar þekkja nöfnin Nýja bíó og Tunglið, kvik-myndahúsið og skemmtistaðinn sem voru starfrækt í Lækjar-götu. Báðir staðirnir hurfu sjónum okkar fyrir allnokkru en í
staðinn reis hús sem gengur undir nafninu Iðuhúsið. Á tveim efstu
hæðunum hafa verið opnaðir fallegir veislusalir sem bera þessi
gömlu og velþekktu nöfn.
Iðusalir voru opnaðir síðastliðið haust í Iðuhúsinu. Nýja bíó er
á fjórðu hæð og Tunglið á þeirri þriðju.
Iðusalir leggja áherslu á að þjóna fyrir-
tækjum jafnt sem einstaklingum. Salirnir
eru glæsilegir í alla staði og er ekkert til
sparað í umgjörð viðburða og staðsetn-
ingin er í hjarta Reykjavíkur. Útsýni er
meðal annars yfir Esjuna og yfir mannlífið
í Lækjargötu og Bankastræti.
Fundir, ráðstefnur, veislur og veislu-
þjónusta.. Öll tæki og búnaður, sem þarf
til fundarhalda, eru í Iðusölunum og þar
er hægt að halda allt frá fámennum fundum upp í
fjölmennar ráðstefnur. Fyrirtæki geta einnig haldið
málþing, námskeið og kynningar eða hvers konar
önnur mannamót, og stærðin hentar t.d. vel fyrir
milliuppgjör fyrirtækja og aðalfundi. Morgunverðar-
og hádegisfundir eru einnig sívaxandi þáttur í starf-
semi Iðusala og sum fyrirtæki eru í áskrift og hafa
pantað vissa tíma mánaðarlega.
Stórafmæli, brúðkaup og árshátíðir eru vinsæl.
Salirnir geta þó hýst nánast hvaða viðburð sem er
s.s. fermingar, þorrablót og erfidrykkjur. Hægt er að leigja annan
salinn eða báða í einu. Salirnir rúma um 150 manns hvor í mat en
350 manns í kokteilboðum. Margir velja að hefja veislu með for-
drykk í neðri salnum en þegar gestirnir eru allir mættir til leiks er
sest að veisluborði í efri salnum. Að kvöldverði loknum er gjarnan
búið að breyta Tunglinu í eins konar diskótek með litlum borðum,
diskólýsingu og dansmúsík þar sem gestir bregða undir sig betri
fætinum og stíga létt dansspor áður en þeir halda heim á leið.
Á staðnum er nýtt og fullkomið veislueldhús og er matur seldur
úr eldhúsinu í veislur til fyrirtækja eða einstaklinga úti í bæ.
Iðusalir leggja metnað sinn í veitingarnar og kappkosta að bjóða
fyrsta flokks þjónustu í mat og drykk við öll tækifæri.
Nýr glæsilegur valkostur Mikið er lagt upp
úr fallegu umhverfi í Iðusölunum. Í veislum
er lagt á borð með kristal og tilheyrandi og
stólarnir við borðin eru sérhannaðir með
umhverfið og þægindi að leiðarljósi. Út frá
salnum á þriðju hæð eru 230 fm svalir sem
bjóða upp á mikla möguleika. Á svölunum
gefst fyrirtækjum kostur á að vera með
„móralskan hádegisverð“ fyrir starfsmenn.
Gaman er að horfa í kringum sig af svöl-
unum að húsabaki en þar blasir við óvænt útsýni.
Einnig eru svalirnar tilvaldar fyrir blaðamannafundi
undir berum himni ef veður leyfir.
Iðusalir skipuleggja viðburði fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Hvort sem er í sölunum eða út í bæ.
Iðusalir geta séð um allt er tengist veislunni til að
gera hana sem glæsilegasta, allt frá skemmti- og tón-
listaatriðum til íburðarmikilla skreytinga.
„Markmið okkar eru þínar þarfir,“ segja starfs-
menn Iðusala og benda á að sveigjanleg þjónusta
og fjölbreytni í vali á veitingum séu lykillinn af heildarmynd fyrir-
tækisins. „Það að vera með allt á einum stað gerir okkur kleift að
vera samkeppnishæf við stóru hótelin hvað þjónustu varðar og
miðbæjarstemmningin skapar andrúmsloft sem fyrirtæki vill geta
boðið viðskiptavinum sínum eða starfsmönnum.“
IÐUSAL IR:
Gömlu nöfnin, Tunglið
& Nýja bíó, endurvakin
Í Iðusölunum er hægt
að endurlifa liðinn
tíma eða skapa sér
nýjar minningar í
sölum sem bera þekkt
nöfn úr skemmtanalífi
Reykvíkinga.
Iðuhúsið er í Lækjargötunni. Nýja bíó er á fjórðu hæð. Tunglið heitir salurinn á þriðju hæð.
Fyrsta flokks þjónusta í fallegu umhverfi.
VEISLUSALIR | VEISLUÞJÓNUSTA | LÆKJARGÖTU 2a | IÐUHÚSINU | 101 REYKJAVÍK | SÍMI 517 5020 | idusalir@idusalir.is | www.idusalir.is
Fundir og rá›stefnur
KYNNING