Frjáls verslun - 01.01.2006, Síða 102
102 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR
KYNNING
Um áramótin sameinuðust Kynnisferðir og SBK þegar Kynnis-ferðir keyptu allt hlutafé í SBK, en fyrir áttu Kynnisferðir 40% hlutafjár. SBK hefur um árabil séð um sérleyfisakstur milli
Reykjavíkur og Reykjanesbæjar og Suðurnesja, skólaakstur fyrir
Fjölbrautaskóla Suðurnesja og strætisvagnaakstur í Reykjanesbæ
auk annars aksturs. SBK verður áfram rekið undir sama vörumerki
og ætlun okkar er að styrkja og efla samgöngur á svæðinu í náinni
framtíð, segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Kynnisferða.
SBK hefur rekið áætlunarbíla og strætisvagna, en Kynnisferðir
eru með 60 rútur. Þráinn segir að fyrirtækin hafi átt mjög farsælt
og langt viðskiptasamband áður en til sameiningarinnar kom.
Lengi hefur verið horft til bættra samgangna á Suðurnesjum sem
m.a. myndu tengja betur saman Flugstöð Leifs Eiríkssonar, helstu
byggðakjarna, Bláa lónið og Reykjavík. Kynnisferðir hafa áhuga á
að taka þátt í þessum samgöngubótum. Slíkar breytingar ættu að
hafa hvetjandi áhrif á alla ferðaþjónustu á svæðinu.
Kynnisferðir tóku í upphafi árs 2006 við sérleyfi til Suðurnesja,
sem felur m.a. í sér ferðir til Grindavíkur með viðkomu í Bláa lón-
inu og til Reykjanesbæjar og byggðakjarna þar um kring.
Ferðaþjónusta hefur aukist mjög undanfarin ár á Suðurnesjum
og er þar margt í boði fyrir ferðamenn. Nægir þar að nefna Bláa
lónið, Saltfiskssafnið, Fræðasetrið í Sandgerði og hvalaskoðun, auk
þess eru þar margir veitingastaðir og margir gistimöguleikar.
Leiðir Kynnisferða liggja víða Rekstur Kynnisferða, sem stofn-
aðar voru árið 1968, er fjölbreyttur en dagsferðir og akstur Flug-
rútunnar milli Reykjavíkur og Flugstöðvarinnar eru veigamestu
þættir rekstrarins. Kynnisferðir hafa einnig á hendi sérleyfisferðir
milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði og áfram til Egilsstaða
yfir háannatímann. Á sumrin reka Kynnisferðir einnig skipulagðar
ferðir á hálendisstaði eins og Þórsmörk, Laka, yfir Sprengisand og
í Landmannalaugar. Þá leigja Kynnisferðir rútur fyrir hópa og skipu-
leggja ferðir bæði með og án leiðsögumanna.
Aðalskrifstofur Kynnisferða eru í Kópavogi, en auk þess er fyr-
irtækið með fjórar söluskrifstofur í Reykjavík og starfsstöðvar í
Flugstöðinni, í Reykjanesbæ, á Selfossi, í Húsadal í Þórsmörk og á
Höfn í Hornafirði.
KYNNISFERÐIR:
Kynnisferðir og SBK sameinast
Með sameiningu
Kynnisferða og SBK
er gert ráð fyrir
aukinni þjónustu
á Suðurnesjum.
Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Kynnisferða.
„Hop-on hop-off“-vagninn ekur með ferðamenn um Reykjavík á
vegum Kynnisferða.
Sími 562 1011 • Textavarp RUV 455 & 456 • www.re . i s • www.f lybus . i s
Upphafs- og endastöð allra ferða
er Umferðarmiðstöðin/BSÍ.
Ke
fla
vík
Ha
fn
arf
jör
ðu
r
H
óte
l V
íki
ng
Ga
rða
bæ
r
A
ktu
-Ta
ktu
Re
yk
jav
ík
BS
Í/U
mf
erð
arm
iðs
töð
in
Þú tekur flugið
Svona á að ferðast. Skildu bílinn þinn eftir heima.
Hugsaðu þér hvað það er miklu þægilegra að taka Flugrútuna
frá Umferðarmiðstöðinni og mæta afslappaður og úthvíldur í flugið.
Svo ekki sé minnst á að vera laus við að leita að bílnum
við heimkomuna.
• Verð 1.100 kr. aðra leiðina.
• Aukaferðir fyrir leiguflug
sem ekki fellur að áætlun.
Kynntu þér ferðaáætlun Flugrútunnar á
www.flugrutan.is eða á www.flybus.is
frá BSÍ
Ókeypis fyrir börn að 11 ára aldri.
50% afsláttur fyrir unglinga, 12-15 ára.
ATHUGIÐ!
Fjölskylduvæn rútuferð
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
YN
31
19
0
02
/2
00
6
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
YN
31
19
0
02
/2
00
6
KYNNING