Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2006, Síða 114

Frjáls verslun - 01.01.2006, Síða 114
114 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR Íslensk fyrirtæki í leit að einhverju sem gestir þeirra hafa ekki upplifað áður geta verið vissir um að finna það á Hótel Holti. Í salnum Þingholti er frábær aðstaða fyrir fundi jafnt sem veislur og móttökur. Hótel Holt er innréttað í klassískum stíl og í sölum, gistiherbergjum, svítum og öðrum vistarverum hót- elsins eru listaverk sem gera það einstakt hér á landi og þótt víðar væri leitað að sögn Rósbjargar Jónsdóttur, markaðsstjóra hótelsins. „Þingholt hentar mjög vel fyrir minni fundi. Í þessum fallega sal geta fundarmenn haldið fundi algjörlega óáreittir og í friði. Salurinn rúmar 60 manns í sæti með svokallaðri bíóuppröðun, 40 manns ef setið er við borð og 120 manns í móttökum.“ Þótt talað sé um að Þingholt henti fyrir minni fundi sýna tölurnar að þarna má halda allfjöl- menna fundi og það sem meira er, í fundarlok er hægt að bjóða mönnum til veislu í veitingasal Hótel Holts. Rekstraraðilar hótelsins í dag eru Eiríkur Ingi Friðgeirsson matreiðslu- meistari og Sigmar Örn Ingólfsson, framleiðslumeistari. Hótel Holt hefur frá upphafi verið þekkt fyrir frábæran mat og drykk, enda fag- menn í hverju rúmi. Vert er að hafa í huga að rétt umgjörð í kringum fundi skiptir ekki síður máli ef góður árangur á að nást. Gistiaðstaða og glæsilegur kvöld- verður Á Hótel Holti er fyrsta flokks gistiaðstaða, 40 gistiherbergi, þar af 12 rúmgóðar svítur. Rósbjörg segir að algengt sé að fundarmenn gisti á hótelinu og bætir við að hótelið geri fyrirtækjum, sem velja að njóta bæði gistingar og fundarað- stöðu, mjög góð tilboð, en hótelið sé vissulega tilvalinn staður fyrir þá sem þurfa að taka stórar ákvarðanir. Margir kjósi síðan að enda fundi með glæsilegum kvöldverði. Ýmsar breytingar eru á döfinni á Hótel Holti, m.a. í Þingholti. Að auki hefur verið tekið í notkun sérstakt líkamsræktarherbergi og nuddherbergi en hótelgestir geta líka farið frítt í líkamsræktar- stöðina Laugar. Í nuddherberginu eru einvörðungu notaðar jurtavörur, sérframleiddar fyrir Hótel Holt og hægt er að kaupa þær í fallegum gjafaöskjum. Loks má nefna að í desember var opnuð gjafavöruverslun á hótelinu þar sem gestir geta keypt íslenska listmuni. „Allt er þetta ætlað til að stuðla að betri þjónustu við gestina,“ segir Rósbjörg. „Gæðaþjónusta er okkar fag,“ hefur lengi verið kjörorð Hótel Holts sem býður hverjum og einum þjónustu við sitt hæfi. Framsækin íslensk fyrirtæki í stöðugri útrás leita gjarnan að einhverju sérstöku sem gestir þeirra og viðskiptaaðilar hafa ekki kynnst áður. Hótel Holt á fullt erindi inn á þann vettvang með þá sérstöðu sem það býður upp. Öll aðstaða er til fyrirmyndar. Umhverfið er tignarlegt og um leið notalegt og skapandi en það er einmitt það sem skiptir máli þegar halda þarf þýðingarmikla fundi sem eiga að skila árangri. HÓTEL HOLT Árangursríkir fundir í tignarlegu umhverfi Hótel Holt býr yfir sér- stöðu sem gestir þess kunna að meta. BERGSTAÐASTRÆTI 37 SÍMI: 552 5700 • FAX: 562 3025 holt@holt.is • www.holt.is – það kostar ekkert meira Hafðu þaðtignarlegt Hótel Holt 40 herbergi, þar af 12 svítur Öll herbergin eru glæsilega innréttuð í klassískum stíl og prýdd íslenskri myndlist Nettenging innifalin í herbergisverði Listasafnið – veitingahús Virtasta veitingahús landsins Vínkjallari með yfir 4000 vínflöskum Alveg einstök upplifun Þingholt Fundaraðstaða fyrir allt að 60 manns Veislur og móttökur fyrir allt að 120 manns Fyrsta flokks búnaður og háhraða tengingar Margreynt og faglært starfsfólk aðstoðar við undirbúning og skipulagningu Verið velkomin Rósbjörg Jónsdóttir markaðsstjóri Hótel Holts með rekstraraðilum hótelsins, þeim Eiríki Inga Friðgeirssyni og Sigurði Erni Ingólfssyni. KYNNING
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.