Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 118
118 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
KYNNING
Nýherji selur og leigir fullkominn búnað í fundar- og sam-komusali. Án slíks búnaðar er oft og tíðum ekki hægt að halda viðamiklar ráðstefnur eða fundi svo vel fari, ekki síst
nú þegar íslensk fyrirtæki og stofnanir eru komin
í alþjóðaumhverfi. Þá nægir ekki að menn heyri
hvað sagt er, þeir þurfa líka að skilja ræðumenn.
Til þess þarf túlkabúnað sem er meðal þess sem
Nýherji hefur upp á að bjóða að sögn Sævars
Haukdals, vörustjóra hljóð- og myndlausna hjá
fyrirtækinu.
Athyglisverður og einfaldur búnaður, sem
Nýherji selur, er Creston-stjórnbúnaðurinn sem
auðveldar venjulegum notendum að nota flókinn búnað að sögn
Sævars. Um er að ræða stjórnkerfi sem stjórnað er með snertiskjá
þar sem allar skipanir eru á íslensku og birtast með myndrænum
hætti. Nokkrar aðgerðir má setja inn í eina skipun; stjórn sýningar-
búnaðar í fundar- eða veislusal, með því að ýta á einn taka rennur
sýningartjald niður úr loftinu, slökkt er á ljósum, kveikt á hljóðkerf-
inu og myndsýningarkerfi verður virkt. Með Creston-kerfinu má
stýra hverju sem er, lýsingu, gluggum, öryggiskerfi, hljóð- og mynd-
búnaði. Slík kerfi hafa einnig víða verið sett upp á heimilum fólks.
Leiguþátturinn er umfangsmikill í rekstri Nýherja ekki síður
en sala á nýjum búnaði. „Við leigjum búnað fyrir alls konar uppá-
komur, allt frá fundum upp í árshátíðir og alþjóðlegar ráðstefnur,“
segir Sævar. Nýherji leigir líka fullkomið túlkakerfi fyrir fundi og er
Norðurlandaráðsþing gott dæmi um fjölmennan fund þar sem túlka-
kerfi er nauðsynlegur búnaður. ,,Einnig hefur færst í vöxt útsend-
ing funda og ráðstefna á Internetið svo fólk geti fylgst með án þess
að leggja í langt ferðalag,“ bætir Sævar við, en tekur fram að þótt
nauðsynlegasti búnaður sé víða í sölum geti þurft að bæta við við-
bótarbúnaði eftir umfangi uppákomunnar og þá komi að þjónustu
Nýherja. ,,Sérfræðingar fyrirtækisins sjá um uppsetningu og stjórn
búnaðarins þegar þess gerist þörf eða aðstoða tæknimenn sem
kunna að vera fyrir á fundarstöðum.“ Að sögn Sævars býr Nýherji
vel að öllum nauðsynlegum búnaði fyrir stærstu verkefni.
Fjarfundarbúnaður er einnig talsvert mikið
notaður hjá flestum stærstu fyrirtækjum landsins.
,,Fjöldi fyrirtækja og stofnana hefur tekið í notkun
fjarfundarbúnað en við bjóðum slíkan búnað
einnig til leigu. Þess má geta að hingað til hefur
kennsla farið fram í gegnum fjarfundarbúnað frá
háskólunum til nemenda í ákveðnum skólastofum
á landsbyggðinni en nú er svo komið að nemendur
þurfa ekki að koma saman til að fylgjast með
kennslunni heldur geta þeir setið heima við eigin tölvu og taki við
fullkominni fjarkennslu þar. Við vinnum mjög náið með mennta-
stofnunum í landinu hvað varðar þróun tæknibúnaðar og prófun á
honum og erum helstu samstarfsaðilar þeirra,“ segir Sævar.
NÝHERJI:
Leigja og selja allan
nauðsynlegan fundarbúnað
Creston-búnaðurinn er
fullkominn en ótrúlega
einfaldur í notkun og
byggist á stjórnkerfi
og snertiskjá.
Ein útfærsla í
Creston-stjórn-
búnaði.
Sævar Haukdal,
vörustjóri hljóð-
og myndlausna,
með Creston-stýri-
búnaðinn í hendinni.