Frjáls verslun - 01.01.2006, Side 126
126 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
KYNNING
Í viðskiptalífinu er lykilatriði að vera í góðu sambandi og nú er hægt að færa skrifstofuna með sér og sinna starfinu nánast hvar sem er. Síminn hefur um nokkurt skeið boðið byltingarkenndar
lausnir fyrir farsíma- og lófatölvur sem henta vel þeim starfs-
mönnum sem eru mikið á ferðinni innanlands og
utan. Þessar lausnir eiga það sameiginlegt að gera
viðskiptavinum Símans kleift að nota farsímann
til að vera í stöðugu sambandi við tölvupósthólf,
dagbók og tengiliði án þess að þurfa að samhæfa
skrána í tölvunni á skrifstofunni,“ segir Eva Magnús-
dóttir, upplýsingafulltrúi Símans.
Síminn býður upp á þrjár sérsniðnar leiðir í
þessum efnum sem tryggja að viðskiptavinir fái
lausn sem hentar þeirra þörfum og sem tekur mið
af stærð og starfsemi fyrirtækjanna.
„BlackBerry samskiptatæknin hefur notið mikilla vinsælda hjá
athafnafólki. Símtæki með BlackBerry eru sérhönnuð til þess að
vinna með tölvupóst og dagbækur. BlackBerry auðveldar starfs-
mönnum fyrirtækja aðgang að fjarskiptaþjónustu, upplýsingum
og samskiptum við aðra. Þá býður Síminn einnig upp á síma frá
Microsoft. Þeir henta mjög vel fyrir fyrirtækjaumhverfið þar sem
flest fyrirtæki nota Microsoft hugbúnað og geta nýtt sér kosti þess
að vinna í þekktu umhverfi. Þriðji möguleikinn er hugbúnaðar-
lausn frá fyrirtækinu Softís sem heitir OpenHand. Þessi lausn felur
í sér að settur er upp nýr hugbúnaður í sjálfu símtækinu en hann
getur gengið á mörgum gerðum símtækja. Með OpenHand næst
aðgangur að gögnum sem annars þarf að samræma á
milli tölvu og farsíma,“ segir Eva.
Síminn er með samninga við yfir 30.000 þráðlaus
netsvæði (Hotspots) sem þýðir að viðskiptavinir geta
tengst skrifstofunni sinni í gegnum fartölvuna um
allan heim, hvort sem þeir eru staddir í flugstöðvum,
á lestarstöðvum, hótelum, veitingahúsum eða öðrum
fjölförnum stöðum. Að auki geta viðskiptavinir Sím-
ans sett upp þráðlaust netkort og fengið aðgang að
Internetinu í gegnum farsímakerfi Símans.
Spennandi tímar framundan „Síminn tók í lok síðasta árs í notkun
nýja tækni, EDGE, sem allt að fjórfaldar hraðann á gagnaflutningi
um farsíma. Aukinn gagnaflutningshraði með tilkomu EDGE-tækn-
innar er hluti af þeirri stöðugu endurnýjun sem á sér stað í kerfum
Símans. Spennandi tímar eru framundan í þessum efnum og mun
Síminn á næstu mánuðum kynna fjölda nýrra þjónustutegunda í
farsíma.“
SÍMINN:
Skrifstofan fylgir þér hvert sem er
Þráðlaust vinnuum-
hverfi með farsím-
anum auðveldar
mönnum að sinna
verkefnunum hvar
sem þeir
eru staddir.
Eva Magnúsdóttir
er upplýsingafulltrúi
Símans.