Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 127
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 127
RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR
Stefnumótun í sveitasælunni:
Liðsheild skapast í nýju umhverfi
„Reynslan sýnir að þegar skapa á sterka
liðsheild nær fólk best saman ef það fer í
nýtt umhverfi. Ef fólk er saman í hóp yfir
nótt nær það að slappa af og í slíku and-
rúmi skapast gjarnan sá andi sem er nauð-
synlegur til að ná saman einni sál,“ segir
Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur, sem í
áraraðir hefur unnið með mörgum af helstu
og stærstu fyrirtækjum við ýmiss konar
stefnumótun. Í slíkum verkefnum er gjarnan
blandað saman bæði fyrirlestrum og verk-
efnavinnu af ýmsum toga. Einnig þurfa þátt-
takendur að leysa ýmiss konar þrautir og
sigrast á hindrunum, en í þeim sést gjarnan
hve böndin fólks í millum eru sterk.
Jóhann Ingi fór að starfa með fyrirtækjum
að uppbyggingu stefnumótunar út frá gildum
sálfræðinnar fyrir um sautján árum og hefur
lengi verið í samstarfi við Sæmund Haf-
steinsson sálfræðing og Magnús Pálsson, við-
skiptafræðing og nú forstöðumann þróunar
hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar.
Árið 1989 hélt hann innan Endurmennt-
unar Háskóla Íslands námskeiðið „Árangurs-
rík liðsheild“ og stóð aldrei til að þar yrði
framhald á. Áhuginn reyndist hins vegar
vera mikill og á næstu sjö árum hélt Jóhann
mörg slík námskeið, sem alls um tvö þúsund
manns sóttu. Hann hefur jafnframt lengi
verið sálfræðingur íslenska landsliðsins í
handknattleik og veitt því mikilvægan stuðn-
ing, til dæmis fyrir stórmót erlendis.
„Grunnurinn í því starfi mínu við að
skapa sterkt lið er að yfirfæra þá sálfræði
sem starfað er eftir í afreksíþróttum yfir á
rekstur fyrirtækja og nánast hvað sem er.
Í mörg ár hélt ég þessi námskeið austur að
Laugarvatni þar sem eru frábærar aðstæður.
Einn hópurinn fékk það verkefni að ganga
á fjallið þarna fyrir ofan þar sem reisa átti
fána fyrirtækisins. Þetta var í vitlausu veðri,
en einmitt þannig lærði fólk að bjarga sér
og haldast í hendur við ögrandi kringum-
stæður.“
Jóhann Ingi bætir við að liðsheildarstarf
sé til dæmis mjög nauðsynlegt við samein-
ingu fyrirtækja. Námskeið megi annars klæð-
skerasauma að þörfum hvers hóps um sig.
„Ég starfaði lengi með sérsveit lögreglunnar,
enda er mikilvægt að sá hópur sé sterkur
og menn treysti hver öðrum óskorað. Að
undanförnu hef ég verið að vinna með unga
fólkinu í Idol, og fyrir Evrópusöngvakeppn-
ina erlendis hafa íslensku keppendurnir
gjarnan komið á námskeið til mín, enda er
þeim mikilvægt að fá stuðning svo sjálfs-
traustið sé sem best og slíkt er raunar öllum
mikilvægt í hörðum heimi samkeppninnar.“
„Vegna vinnu minnar ferðast ég
töluvert og oftast eru ferðirnar
stuttar. Þá er mjög mikilvægt
að taka ekki of mikinn farangur
með, eins og manni hættir
stundum til. Hluti fatnaðarins er
oft ekkert notaður,“ segir Svava
Johansen, kaupmaður í NTC.
„Ef ég ætti að velja í eina
litla tösku, til að mynda í inn-
kaupaferð, þarf eitt pils, einar
buxur sem krumpast ekki og
hlýrabol sem bæði er góður
innan undir og ef maður lendir
í hita. Gjarnan tek ég með mér
einn til tvo síðerma boli og eins
straufría skyrtu. Við konur erum
mikið í stígvélum, en þar sem
þau eru fyrirferðarmikil er best
að ferðast í þeim og taka eina
þægilega gönguskó með. Nauð-
synlegt að vera í einum góðum
jakka eða frakka og taka ekki
aðra utanyfirflík með. Mikilvægt
atriði er að pakka vel í töskuna.
Ákveðinn fatnað er gott að rúlla
saman, til dæmis gallabuxur og
straufrían fatnað.“
Svava segir að hár- og snyrti-
vörur sé hægt að fá í handhægri
ferðastærð. „Ég er alltaf með
millistærð af handtösku og er
þar með vinnugögn, bækur og
Ipod. Þar er ég líka alltaf með
einn lítinn Jägermeister sem er
gott magameðal sem róar ef
á þarf að halda. Ég tók Jäger-
meisterinn upp úr töskunni í
aðflugi um daginn þegar flug-
stjórinn sagði lendingarbúnað
þotunnar bilaðan, sem betur fer
reyndust vera röng skilaboð frá
tölvunni. En einmitt á þessari
stundu var gott að hafa Jäger-
inn við hendina sem ég skutlaði
hressilega í mig,“ segir Svava og
bætir því við að þótt farangur-
inn sé lítill sé mikilvægt í hverju
ferðalagi að taka með nóg af
góðu skapi. Mikilvægt sé að
gefa því það pláss sem þarf.
Ekki taka of mikinn farangur:
Með jakka og Jägermeister
Svava Johansen, kaupmaður í NTC.
Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur.