Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2006, Síða 130

Frjáls verslun - 01.01.2006, Síða 130
130 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 KVIKMYNDIR TEXTI: HILMAR KARLSSON T ruman Capote var ekki aðeins einn þekktasti rithöfundur Bandaríkjanna á síðari hluta síðustu aldar (hann lést 59 ára gamall 1984 vegna ofneyslu lyfja), heldur var hann einnig mjög áberandi í samkvæmislífi ríka fólksins og þótti það yfirleitt góður kostur að fá hann í samkvæmi, enda hnyttinn í svörum og sér- vitringur í klæðaburði. Árið 1959 var frægðarsól hans rétt byrjuð að skína eftir að hann hafði sent frá sér stutta skáldsögu, Breakfast at Tiffany’s. Um sama leyti voru framin óhugnanleg morð í Holcomb í Kansas. Þekkt fjögurra manna fjölskylda í héraðinu hafði verið myrt. Atburðurinn vakti mikla athygli og óhug um öll Bandaríkin. Eftir að hafa lesið grein í New York Times fær Capote tímaritið The New Yorker til að senda sig á vettvang til að fylgjast með gangi mála og skrifa greinar. Með honum í för er æskuvinkona hans, Harper Lee, sem seinna átti eftir að skrifa skáldsöguna To Kill a Mockinbird og fá Pulitzerverðlaunin fyrir. Afrakstur ferðarinnar til Kansas varð þekktasta bók Trumans Capote, In Cold Blood, þar sem þessir atburðir og kynni hans af morðingjunum er þungamiðja sögunnar. Um þennan kafla í lífi Trumans Capote fjallar kvikmyndin Capote, sem hefur fengið mjög góðar viðtökur og er yfirleitt á lista allra sem valið hafa tíu bestu kvikmyndir síðasta árs. Myndin er talin koma sterklega til greina þegar Óskarstilnefningar verða birtar. Eins og yfirleitt um kvikmyndir sem byggðar eru á ævi þekktra einstaklinga þá stendur myndin og fellur með þeim sem leikur aðal- hlutverkið. Í fyrstu virðist Philip Seymour Hoffman ekki vera til þess fallinn að leika Capote, ekki vantar að hann er einn besti leikar- inn í Hollywood í dag, heldur er hann andstæða Capotes í útliti. Það virðist þó ekki hafa hindrað Hoffman í hlutverkinu og þykir hann ná mjög góðum tökum á persónunni og gæði myndarinnar eru ekki síst honum að þakka. Kynntist morðingjunum Þegar Truman Capote, sem ekki þekkir annað en stórborgarlífið í New York, kemur til smábæjarins Holcomb er hann í fyrstu eins og fiskur á þurru landi. Capote er samt fljótur að laga sig að aðstæðum og vingast við marga sem skipta máli við rannsóknina, sérstaklega Alvin Davey, rannsóknar- lögreglumann sem leiðir leitina að morðingjunum tveimur. Þegar þeir finnast og eru handteknir í Las Vegas, gerir Capote sér far um að kynnast þeim einnig og fylgist með réttahöldunum til enda. Morðingjarnir tveir, Perry Smith og Dick Hickock eru dæmdir til dauða og hengdir. Capote skilar greinum til New Yorker en um leið er hann að safna efni í bók þar sem aðalpersónurnar eru morðingjarnir tveir. Það fer svo að tilfinningar hans gagnvart morðingjunum eru blendnar í lokin, enda hefur hann þá kynnst þeim vel, sérstaklega Perry Smith. Auk þess sem Capote segir frá rannsókn rithöfundarins á saka- málinu og framgangi réttvísinnar þá er myndin ekki síður um Truman Capote sjálfan, mann sem þráir frægð og frama og á í miklu tilfinningastríði. Í þessu sálarstríði rís leikur Philip Seymour Hoffman hæst og áhorfandinn gleymir því að Capote var í raun lít- ill og væskilslegur, en fylgist með persónu sem gnæfir yfir aðra án þess þó að gerð sé hetja úr honum. Hoffman fær góðan stuðning frá úrvalsleikurum sem leika á móti honum. Þar eru fremst Catherine Keener sem leikur Harper Lee og Chris Cooper í hlutverki Alvins Davey. Tiltölulega óþekktir leikarar, Mark Pellegrino og Clifton Collins jr. leika morðingjana tvo. In Cold Blood kom út 1966, sama ár kom hún út í íslenskri þýð- ingu Hersteins Pálssonar, Með köldu blóði. Ári síðar var gerð kvik- mynd eftir henni, sem fékk góðar viðtökur og var tilnefnd til fernra Óskarsverðlauna. Þar lék Robert Blake annan morðingjann, en eins og mörgum er kunnugt er nýlokið réttarhöldum yfir Blake þar sem RITHÖFUNDUR Í LEIT AÐ SANNLEIKANUM Truman Capote (Philip Seymour Hoffman) og Harper Lee (Catherine Keener) við réttarhöldin yfir morðingjunum.CAPOTE:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.