Frjáls verslun - 01.01.2006, Page 134
134 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
Stella Óladóttir, fjármálastjóri
Ísaga, er í kvennakórnum Vox
feminae auk þess að reka söng-
skólann Domus Vox ásamt
Margréti Pálmadóttur kórstjóra.
Hún var í barnakór um tíma í
æsku auk þess að læra á píanó.
Kirkjukórar heilluðu hana eftir
að hún komst á fullorðinsár en
hún lét sér nægja að hlusta. Það
var svo árið 1998 sem hún fór
með vinkonu sinni á æfingu hjá
Gospelsystrum Reykjavíkur og
síðan hefur hún verið viðloðandi
kórastarf. Fyrst var hún ein af
gospelsystrum en síðan gekk
hún til liðs við Vox feminae en
Margrét Pálmadóttir stjórnar
báðum kórunum. ,,Margrét er
einstök og gefandi kórstjóri og
vinnur mikið og metnaðarfullt
starf í þágu söngsins.
Það gefur mér svo mikið að
syngja. Það er svo gott fyrir sál-
ina auk þess sem þessu fylgir
góður félagsskapur. Það er gef-
andi og hollt fyrir alla að syngja.“
Stella segir að hjá Vox fem-
inae sé mikið lagt upp úr kirkju-
legri tónlist auk íslenskra þjóð-
laga. Kórinn heldur nokkra tón-
leika á ári auk þess sem hann
kemur fram við ýmis tækifæri. Nú
í ár er stefnan tekin á Schubert-
kórakeppni í Vín í Austurríki.
Um sönginn segir Stella:
„Hann er eitthvað ómissandi í
lífinu. Það eru forréttindi að fá
að taka þátt í söngstarfi. Ég vildi
ekki vera án söngsins.“
ÚR EINU Í ANNAÐ
„Það var ævintýraþráin og félagsskapurinn sem réð því að ég gekk í
hjálparsveitina.“
Hjálparsveit skáta:
KEMUR AÐ NOTUM Í HINU DAGLEGA LÍFI
„Ég hef verið í hjálparsveitum
skáta í Reykjavík í 27 ár,“ segir
Kristinn Ólafsson, markaðsstjóri
IMG. „Það var ævintýraþráin og
félagsskapurinn sem réð því að
ég gekk í hjálparsveitina.“ Krist-
inn er í vélsleðahópi og æfa
meðlimir hans sig um þrisvar
sinnum í mánuði.
Kristinn fann einu sinni
ungling sem leitað var að
og segir hann það hafa verið
góða tilfinningu. „Um var að
ræða skátahóp á Hellisheiði
og varð einn strákurinn við-
skila við hópinn en þetta var
í kringum páskana. Það var
leitað að honum alla nóttina
en hann hafði leitað skjóls í
gjótu. Ég fann hann svo.“
Kristinn tók þátt í leit
að flugvél sem fórst í Ljósu-
fjöllum á Snæfellsnesi fyrir 20
árum. Hann segir hana vera
þá erfiðustu bæði andlega
og líkamlega. „Það reyndi á
mannskapinn að vita af fólki
í sortanum. Það var brjálað
veður.“ Nokkrir farþegar fór-
ust með vélinni.
Kristinn bendir á að vegna
þess hve margir eigi staðsetn-
ingartæki og farsíma auk þess
sem fólk er betur búið en áður
þá hefur útköllum fækkað
mikið. „Við höfum minna að
gera. En þegar eitthvað gerist
er hætta á að um sé að ræða
stærri áföll sem við verðum að
takast á við.
Ég læri mikið af því að vera í
hjálparsveitum skáta. Ég bjarga
mér úti í náttúrunni, ég þarf að
treysta á sjálfan mig og vinna
faglega að hlutunum. Þetta
skilar sér í hinu daglega lífi.“
„Það eru forréttindi að fá að taka þátt í söngstarfi.“
Söngur:
ER ÓMISSANDI