Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 28
milljarð króna og því var hér um að ræða gríðarlega
umfangsmikil viðskipti.
Þorsteinn Már orðar það svo að kaup á hlutabréf-
unum í FBA árið 1999 hafi ekki verið sérstaklega
mikið ígrunduð. „Þetta var ekki röng fjárfesting, síð-
ur en svo. Þetta vakti mikla umræðu á sínum tíma
og ég leit svo á þegar þessi hlutur í FBA var til sölu,
að eigendahópur í bönkunum væri of einlitur. Þess
vegna ákvað ég að taka þátt í kaupum á þessum bréf-
um. Það má segja sem svo að í kjölfarið á kaupum
Orca-hópsins á hlutabréfunum í FBA hafi maður
verið meira milli tannanna á fólki en áður. Hins veg-
ar tel ég að þetta hafi skapað meiri umræðu um
bankakerfið og fjármálastofnanir í landinu, sem að
mínu mati var mjög jákvætt. Það er enginn vafi að
það var mjög jákvætt að sameina Íslandsbanka og
FBA og ég tel að samþjöppunin í bankakerfinu eigi
enn eftir að aukast,“ segir Þorsteinn Már.
„Í mínum huga er umræðan um dreifða eignarað-
ild oft á tíðum brosleg. Sumum finnst það dreifð
eignaraðild að lífeyrissjóðirnir eigi stóran hlut í fjár-
málastofnunum. Ég veit hins vegar ekki til þess að
eigendur lífeyrissjóðanna, þ.e. þeir sem til þeirra
greiða, hafi eitthvað um það að segja hverjir fara með
þeirra fé og ávaxta það.
Ég neita því að ég hafi verið orðinn eitthvað
þreyttur á þessu máli. Hins vegar fundu menn þarna
ákveðna lendingu varðandi sölu á þessum hlutabréf-
um í Íslandsbanka, sem mér fannst skynsamleg. Per-
sónulega hef ég engan áhuga á því að vinna að
bankamálum. Þetta er ekki umhverfi sem mig langar
til að starfa í og ég er ágætlega sáttur við það að hafa
farið út úr bankanum á þessum tímapunkti.“
- Hafði það ekki áhrif á þessa sölu hversu ósam-
stæður og sundraður Orca-hópurinn var?
„Jú, auðvitað hafði það áhrif. Orca-hópurinn er í
raun ekki lengur til. Þetta endaði með því að annars
vegar ég og hins vegar Jón Ásgeir Jóhannesson fór-
um með töluvert stóra hluti og við höfðum hag þess-
ara hluthafa að leiðarljósi.“
Þorsteinn Már segist ekki hafa velt því sérstaklega
fyrir sér hvernig hann verji þeim fjármunum sem
hann losar með sölu á hlutabréfunum í Íslandsbanka.
„Ég hef engar áætlanir um það. Manni dettur örugg-
lega eitthvað í hug.“
- Þegar á heildina er litið, ferðu vel út úr þess-
um hlutabréfaviðskiptum?
„Ég er sáttur við að fara út bankanum og ég er
einnig sáttur við fjárhagslega niðurstöðu málsins.“
Hjátrú og skeggvöxtur
Þorsteinn Már neitar því ekki að hann sé hjátrúarfull-
ur. „Já, á vissan hátt er ég það. Það er til dæmis alveg
ljóst að ekki kemur til greina að senda skip á veiðar á
nýju ári á mánudögum. Og ég hef sem reglu að ef ég
hef tök á, þá vil ég ég fá að sleppa landfestum skip-
anna,“ segir Þorsteinn Már og kinkar kolli þegar
hann er spurður hvort ekki sé rétt munað að hann
spýti gjarnan á reipið áður en það fellur í sjóinn.
„Ég skal líka viðurkenna að þegar ég er að vinna að
einhverjum ákveðnum verkefnum, þá raka ég mig
ekki fyrr en þeim er lokið,“ segir Þorsteinn Már, en
athygli blaðamanns vakti að meðan á vinnslu þessa
viðtals stóð var Þorsteinn orðinn vel skeggjaður.
Daginn eftir að kunngjört var með sölu á hlutabréf-
unum í Íslandsbanka var skeggið farið! „Daginn eftir
að Íslandsbankamálinu lauk tók ég rakvélina með
mér í sundlaugina og rakaði skeggið af mér,“ segir
Þorsteinn Már og hlær.
Þorsteinn Már í brú Vilhelms Þorsteinssonar þegar hið nýja og glæsilega skip sigldi inn
Eyjafjörðinn fyrir réttum tveimur árum. Fjær sést til Baldvins Þorsteinssonar EA, sem nú
er kominn í rekstur í Þýskalandi. Mynd: Myndrún-Rúnar Þór Björnsson.
Þeir frændur halda um
stjórnartauma í Sam-
herja, Þorsteinn Már
Baldvinsson, forstjóri,
og Finnbogi Jónsson,
stjórnarformaður.
Æ G I S V I Ð TA L I Ð
28