Ægir - 01.03.2003, Blaðsíða 24
24
Þorvaldur er langt frá því að
vera nýgræðingur til sjós, en
hann hefur stundað sjóinn í 31 ár
eða frá 16 ára aldri. Hann hefur
fengist við flestar tegundir veiði-
skapar en sem fyrr sagði síðustu
12 árin róið á trillunni sinni frá
Þorlákshöfn.
,,Þetta er ósköp svipuð vinna
og var fyrir 12 árum. Menn tala
um að það sé erfitt að hasla sér
völl í trilluútgerð en mitt álit er
einfaldlega það að menn verði að
hafa fyrir hlutunum og standa
sig. Það er að vísu allt orðið dýr-
ara sem þarf til að stunda þetta,
en ekki má gleyma því að fisk-
verðið hefur líka margfaldast.“
„Ég er ánægður að
vinna í kvótakerfinu“
- segir Þorvaldur Garðarsson trillukarl í Þorlákshöfn sem segist hafa verið þeirri
stundu fegnastur að losna úr sóknarstýringarkerfinu
,,Það má segja sem svo að maður sé aldrei
alveg fullkomlega ánægður, en mér finnst það
starfsumhverfi sem ég vinn í í dag vera alveg
vel þolanlegt og það þótt ég miði við hvernig
það var þegar ég var að byrja í trilluútgerð
fyrir tólf árum,” segir Þorvaldur Garðarsson
sem gerir út trilluna Sæunni Sæmundsdóttir
RA-60 frá Þorlákshöfn, en Sæunn er 11
brúttótonna 11 metra löng.
Fallegur fiskur á
leiðinni til vinnslu.