Ægir - 01.03.2003, Blaðsíða 40
40
N Ý I R B Á TA R
Fyrsta nýsmíðin af þessari gerð
frá Plastverki hefur fengið nafnið
Örninn og er hugsaður sem hrað-
fiskibátur. Örninn er tvíbytna
eða jafnvel þríbytna, þ.e. hann
hefur stór „skíði“ niður með báð-
um hliðum, sem gefur honum
hæfileika fram yfir aðra báta.
Báturinn er mjög lipur og rás-
fastur, þægilegur í snúningum
og andófi. Báturinn heldur vel
ganghraða, þ.e. 30 mílur, en
hann er búinn 430 hestafla
Cummings vél.
Örninn er 9,63 m á lengd og
3,50 m á breidd Báturinn er
einnig fáanlegur undir 6 brúttó-
tonnum að stærð og fellur þá inn
í frjálsar handfæraveiðar í daga-
kerfi. Einnig er báturinn fáanleg-
ur mun lengri eða eftir óskum
kaupanda.
Í Erninum er 989 lítra olíu-
tankur undir lest og 150 lítra
vatnstankur undir lúkar.
Mjög gott er að komast að vél-
inni, þar sem mikið rými er í vél-
arrúmi og stór lúga er yfir vél-
inni.
Í lest er áætlað að koma fyrir
11 x 660 lítra körum og 4 x 380
lítra körum sem svo má útfæra
eins og hverjum hentar. Búið er
að prufa bátinn í rúman mánuð
við misjöfn skilyrði og hafa þær
prófanir verið mjög jákvæðar er
látið mjög vel að honum.
Örninn GK 62
Plastverk ehf. í Sandgerði hefur
hafið framleiðslu á nýstárlegum
hraðfiskibáti sem vafalítið mun
vekja athygli meðal smábátasjó-
manna. Báturinn er nokkurs kon-
ar þríbytna, þ.e. hann hefur eigin-
lega „skíði“ niður með skrokknum
og gefur þetta mikinn stöðugleika.
Búið er að gera miklar stöðug-
leikaprófanir á bátnum sem reynst
hafa mjög jákvæðar.
Aðgengi að vélinni í bátnum er mjög gott, eins og sjá má.
Örninn er mjög
snúningslipur og
stöðugur.
Örninn á fullri ferð. Eins og sjá má er
nær að tala um þríbytnu í þessu tilviki
en eiginlega er um að ræða nokkurs
konar skíði sem koma niður með hinum
hefðbundna skipsskrokki.