Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.2005, Blaðsíða 15

Ægir - 01.07.2005, Blaðsíða 15
15 Æ G I S V I Ð TA L I Ð Icelandic Group er með höfuðstöðvar sínar við Borgartúnið í Reykjavík. Forstjórakontórinn er í norðurhluta byggingarinnar og út um gluggann er Þórólfur Árnason, forstjóri, með glæsilegt útsýni út á sundin og norð- ur á Snæfellsnes. „Það er ekki amalegt að sjá heim á æskustöðvarnar,“ segir Þórólfur og brosir, en hann ólst upp á nesinu þar sem faðir hans var prestur forðum daga. Þórólfur Árnason tók nýlega við stjórnartaumunum í Icelandic Group: Ætlum að eflast þar sem við erum sterkastir fyrir „Ég tel að fyrirtækið Icelandic Group sé einstakt í heiminum. Það er ekkert annað fyrirtæki í heiminum sem veltir jafn miklum peningum í sölu á sjávarfangi af svo alþjóðlegum uppruna,“ segir Þórólfur Árnason.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.