Ægir - 01.06.2007, Blaðsíða 11
11
S A G A N
brúsa. Þeir höfðu ágætlega út
úr þessu hér áður og afi minn
Þorlákur sagði mér, að tvö
tófuskinn hefðu jafnast á við
verkamannakaup yfir árið.
Hann afrekaði það líka að
ganga tófuna uppi. Hann
rakti slóðir í snjónum þangað
til hann fann dýrið. Nú eru
menn hættir að liggja, nota
bara ljóskastara á bílum og
blinda tófuna. Eða þeir eru
með litla kastara á rifflunum.
Ég er nú lítið hrifinn af slík-
um veiðiaðferðum. Það eru
allir hættir að bera niður,
nema nágranni minn hér í
Súðavík, Helgi Bjarnason frá
Kleifum í Skötufirði. Hann
liggur fyrir tófunni inni í
Skötufjarðarbotni í landareign
sinni á Kleifum. Fékk nokkuð
margar í fyrravetur og hitteð-
fyrra, en bara eina í vetur.“
Kjartan Geir Karlsson hef-
ur lagt stund á ýmiss konar
veiðiskap um dagana. Var
lengi á rækjuveiðum og lagði
upp hjá Frosta í Súðavík. Á
handfærum á sumrin. Á ver-
tíðum syðra og á síld fyrir
norðan. Einnig var hann
nokkrar vertíðir á hvalveiðum
frá Hvalfirði svo eitthvað sé
nefnd. Kom einnig við minka-
veiðar, eftir að minkurinn
hafði numið land vestra eftir
1970.
Það hlýtur að vera gæfa
hvers manns, að hafa ástríðu
sína að ævistarfi og geta fram-
fært sig og sína á öllu saman.
Og Kjartan Geir svarar þeirri
skyldugu spurningu skrásetj-
ara, hvort hann mundi end-
urtaka þetta, ef hann ætti
þess kost, með sannfærandi
jái.
Saurafeðgar koma með góðan feng til Súðavíkur.