Ægir

Volume

Ægir - 01.06.2007, Page 21

Ægir - 01.06.2007, Page 21
21 en þá varð ég skipstjóri á Hólmatindi og var með hann þar til fyrirtækið keypti Jón Kjartansson, sem þá var Narfi. Við því skipi tók ég í maí 1978 og var með hann í um áratug. Þegar hér var komið sögu fékk Aðalsteinn, tengdafaðir minn, mig til þess að koma í land og starfa sér við hlið í landi. Sannast sagna vildi ég síður koma í land vegna þess einfaldlega að mér leið mjög vel á sjónum og hefur alltaf gert. Sjómennskan er það sem ég kann best. En engu að síður varð ég við þessari ósk tengdaföður míns og varð rekstrarstjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar, eins og fyrirtækið hét þá, til að byrja með en síðar hafði ég yfirumsjón með síldarsöltun sem var undir merkjum Jóns Kjartanssonar hf., sem Aðalsteinn átti að stærstum hluta. Kristinn heitinn Jónsson, bróðir Aðalsteins, átti Jón Kjartansson hf. á móti bróður sínum og úr varð að Að- alsteinn keypti hlut Kristins heitins af börnum hans og sömuleiðis eignarhlut ekkjunnar. Ég hafði með rekstur síld- arplansins að gera í tvö ár eða svo og á þeim tíma var mikið saltað, við fórum í um 20 þúsund tunnur á hausti. En svo minnkaði síldin og æ erfiðara var að nálgast hana. Ég hætti því í síldinni og náði í Hólmaborgina til Hafnarfjarðar þar sem hún var keypt úr þrotabúi. Ég hélt síðan áfram að vinna í landi jafnframt því að fara nokkra afleysingatúra á öðrum skipum. Í hönd fór erfiður tími í rekstr- inum þar sem sett var á loðnuveiðbann og aflabrögð voru léleg í rækju. Bjarni Gunnarsson skipstjóri á Hólmaborginni vildi þá hætta með skipið og hverfa til annarra starfa og úr varð að Aðalsteinn bað mig að taka það sem ég og gerði. Til að byrja með fórum við á rækju á Dohrnbanka og það gekk bærilega. En það var ljóst að reksturinn var mjög erf- iður og Hraðfrystihúsið gerði ekki betur en að halda þessu nýja og öfluga skipi. Leitað var til sveitarfélagsins með hvort það væri tilbúið að leggja hlut inn í félag á móti Hraðfrystihúsinu til þess að tryggja að unnt væri að halda Hólma- borginni og rekstrinum gangandi. For- ráðamenn sveitarfélagsins á þeim tíma neituðu því alfarið og skilaboðin voru þau að fyrirtækið yrði sjálft að finna leið út úr vandanum. Sem betur fer fór að ára betur upp úr þessu og okkur auðnaðist að halda skipinu, sem reyndist vera hið mesta happafley og skapa miklar tekjur inn í byggðarlagið. Eitt árið náðum við að fiska 94 þúsund tonn af uppsjávarfiski – kolmunna, síld og loðnu - og hefðum getað farið vel yfir 100 þúsund tonnin ef við hefðum fengið að róa stífar. Við fórum út í það að setja mjög öflug- ar vélar í bæði Hólmaborg og Jón Kjart- ansson til þess að geta stundað kol- munnaveiðarnar og þannig öfluðum við okkur mikillar aflareynslu í kolmunna sem kom okkur síðar til góða. Ég var skipstjóri á Hólmaborginni þar til Aðalsteinn Jónsson var keyptur. Á þessum árum á Hólmaborginni var mannskapurinn að stórum hluta hinn sami, sem er lykilatriði í því að ná góð- um árangri. Tekjurnar voru háar og því voru þetta góð skipspláss,“ segir Þor- steinn. En var ekki fólgin mikil pressa í því að stýra svo miklu aflaskipi? Var ekki gerð krafa um að skipið væri alltaf á toppnum? „Jú, óneitanlega var það svo. Þegar skipið hafði náð toppnum þótti fólki sjálfsagt að svo væri áfram. Við stækkuðum skipið um tæpa fjórtán metra þannig að burður þess var mjög mikill. Ég hygg að þegar mest var hafi Hólma- borgin borið 2.750 tonn,“ segir Þorsteinn. Hólmaborgin hefur nú skipt um nafn og ber nafnið Jón Kjartansson. Gerir út þrjú skip Eskja gerir út þrjú skip í dag. Aðalstein Jónsson, sem frystir uppsjávartegundir um borð, Jón Kjartansson, sem sömu- leiðis veiðir uppsjávartegundir, og Hól- matind, sem veiðir bolfisk fyrir land- vinnslu Eskju á Eskifirði. En hvað skyldi Þorsteinn hafa í gegnum tíðina haft að leiðarljósi sem skipstjóri? „Þegar ég var með Hólmaborgina og Jón Kjartansson A U S T U R L A N D „Mér hefur þótt mjög jákvætt og nauðsynlegt fyrir þetta samfélag hér að fá þetta stóra fyrirtækið hingað inn á svæðið. Ég lít engan veginn svo á að Fjarðaál sé ógnun við sjávarútveginn hér. Síður en svo.“

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.