Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.06.2007, Qupperneq 31

Ægir - 01.06.2007, Qupperneq 31
31 að bæta ástandið, er ef við fengjum sterkari árganga inn en úr þessu þá væri það í fyrsta lagi árgangurinn frá í ár eða 2007 árgangurinn. Jafnvel þótt sá árgangur yrði sterkur þá myndi sá fiskur ekki skila sér inn í veiðina fyrr en eftir fjögur ár eða á árunum 2011 og 2012. Við getum því ekki búist við neinum bata næstu árin. Þetta höfum við lagt mikla áherslu á og það að við erum ekki, með ráðgjöf okkar nú, að boða að hér verði eitt- hvað allsnægtarástand innan fárra ára,“ segir Björn Ævarr en hann leggur áherslu á að ekki sé nóg með að veiðihlut- fallið undanfarin ár hafi verið um 20% hærra en ætlunin var með aflareglunni, heldur hafi fiskveiðidánarstuðlar að með- altali hjá fimm til tíu ára þorski, verið um 0,6 í stað þeirra 0,4 sem stefnt var að. Munurinn hvað varðar fisk- veiðidánarstuðlana sé því um 50%. Þorskurinn er í þokkalegum holdum en styttri en áður - Nú kemur fram að þið teljið ykkur þekkja vel til stærðar einstakra árganga og afrakst- ursgetu þeirra að jafnaði. Hvað með önnur áhrif, s.s. það sem hefur verið að gerast í lífríkinu í hafinu með hækk- andi loft- og sjávarhita. Það liggur fyrir að tegundir, sem nánast eingöngu veiddust hér fyrir sunnan land, eru farnar að veiðast fyrir norðan. Skötuselurinn er e.t.v. nær- tækasta dæmið um þetta. Hafið þið einhver tæki til að meta áhrif þessara breytinga á fiskstofnana og vöxt og við- gang þeirra? „Við höfum séð þessar breytingar frá árinu 1998. Þær hafa haft mikil áhrif á út- breiðslu hlýsjávartegunda. Það er ekki nóg með að skötuselur sé farinn að veið- ast í auknum mæli fyrir norð- an land. Það á ekki síður við um ýsuna. Við sjáum að loðn- an hefur haldið sig mun norðar en áður og vart hefur orðið við þorsk í auknum mæli úti í köntum. Að sjálf- sögðu bregst fiskur, sem er með jafn heitt blóð og hitastig umhverfisins, við með því að leita þangað sem honum líð- ur best og fæðuframboðið er mest á hverjum tíma. Efna- skiptahraðinn eykst við hækk- andi hitastig og það kemur m.a. fram með því að með- alþyngd þorsks hefur farið lækkandi og hún er nú í sögulegu lágmarki. Samt virð- ist þorskurinn vera í þokka- legum holdum. Munurinn er sá að þorskurinn nú virðist vera styttri en áður. Um það vitna allar mælingar. Við vit- um að það hefur verið minna framboð af loðnu og hið sama virðist gilda um aðrar fæðutegundir, s.s. sandsíli. Við vitum heldur ekki hvaða áhrif þessar breytingar í haf- inu hafa haft á nýliðunina og afkomu seiða, þótt vitað sé að 50-60% af breytileika í ný- liðun stafar af umhverfis- ástæðum. Vitað er að nýlið- unin ræðst jafnframt af stærð og aldurssamsetningu hrygn- ingarstofnsins. Hrygningar- stofn þorsks byggir nú að miklu leyti á tiltölulega ung- um fiski og hlutfall þorsks, sem er tíu ára eða eldri, er nú aðeins um 2% samanborið við 20-22% þegar best lét. Þetta teljum við vera meg- Þ O R S K S T O F N I N N Björn Ævarr Steinarsson, sviðsstjóri veiðistjórnunarsviðs Hafrannsóknastofnunarinnar. Mynd: Sigurður Bogi Sævarsson.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.