Ægir - 01.06.2007, Qupperneq 42
42
F R É T T I RN Ý T T S K I P
Nýtt skip bættist í fiskiskipa-
flotann upp úr miðjum júní
þegar Vörður EA 748 kom til
Grindavíkur. Það er útgerð-
arfélagið Gjögur ehf sem gerir
skipið út. Heimahöfn Varðar
er Grenivík, en skipið verður
gert út frá Grindavík.
Vörður var smíðaður af
Nordship í Gdynia í Póllandi
og er systurskip Vestmanna-
eyjar VE, sem kom til heima-
hafnar fyrr á þessu ári.
Skrokkur skipsins var raunar
smíðaður í Christ Spolka z.
o.o. í Gdansk. Skipið kemur í
stað samnefnds skips Gjög-
urs, en auk þess gerir útgerð-
in út togskipið Oddgeir EA
og uppsjávarveiðiskipin Há-
kon EA og Áskel EA. Bróð-
urpartur áhafnar Oddgeirs fer
yfir á nýja Vörð, en stærstur
hluti útgerðar gamla Varðar
fer yfir á Oddgeir.
Tæknilegar upplýsingar
Mesta lengd Varðar EA 748 er
28,95 metrar. Breidd skipsins
er 10,40 metrar. Í brúttótonn-
um er stærð skipsins 486.
Lestin er 235 rúmmetrar og
rúmar hún 165 660 lítra fiski-
kör eða um 75 tonn af fiski.
B.P. Skip hafði yfirumsjón
með smíði skipsins.
Frá Marási kemur aðalvél
skipsins, Yanmar 6N21A-EV
514 kW, niðurfærslugír frá
Mekanord og skrúfubúnaður
frá Helset. Ljósavél er hins
vegar af gerðinni Mitsubishi
S6B3-MPTA með 422 KVA
Stamford rafal frá MD-vélum.
Flapsastýri er Rolls Royce
Marine frá Héðni hf. Kælikerfi
lestar er frá Frostmark ehf.
Vindur skipsins, þ.m.t. tvær
21 tonna togvindur, fjórar 8,2
tonna grandaravindur, ein 8,2
tonna hjálparvinda, tvær 14,2
tonna gilsavindur, ein 8,2
tonna pokavinda og ein 15
tonna flottrolls tromla, eru
einnig af gerðinni Rolls Royce
Marine frá Héðni hf.
Frá Ísfelli koma hlerar og
veiðibúnaður. Siglinga- og
fjarskiptatæki eru gerðinni
Furuno frá Brimrúnu. Frá R.
Sigmundssyni er MaxSea sigl-
ingatölva. Frá Marporti er
veiðistjórnunarkerfi. Í því felst
hleranemar með hita- og dýp-
ismælingu á hlerum, hlera-
hallanemar og höfuðlínumæl-
ir og aflnemar. Í brú er skjá-
myndakerfi sem tengist þess-
um búnaði.
Á vinnsluþilfari er aðgerð-
arbúnaður frá Vélsmiðjunni
Þór í Vestmannaeyjum og í
lestinni er færibandabúnaður
sömuleiðis frá Þór. Ískrapavél
er frá Optimar.
Skipið er allt hið vistleg-
asta, en í því eru íbúðir fyrir
fjórtán manns. Skipstjóri er
Hjálmar Haraldsson, Jón Sæ-
mundsson er fyrsti stýrimaður
og Þórólfur Már Þórólfsson
yfirvélstjóri.
Vörður EA 748 kemur í stað eldra skips með sama nafni. Hér eru nýi og gamli Vörður. Mynd: Kristinn Benediktsson.
Nýr Vörður EA 748