Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.07.2009, Qupperneq 9

Ægir - 01.07.2009, Qupperneq 9
9 grundvelli þeirra viðmiða sem þá höfðu verið ákveðin.6) Í öllum aðalatriðum var afla- hlutdeild í síld, loðnu, humri, skelfiski og innfjarðarrækju úthlutað á grundvelli þeirra veiðileyfa sem einstök fiski- skip höfðu á síðustu vertíð áður en lög um stjórn fisk- veiða komu til framkvæmda 1. janúar 1991. Þetta þýddi að aflahlutdeildin átti að mestu leyti rætur sínar að rekja til skiptingar sem fór fram árið 1984 eða fyrir þann tíma.7) Skipting aflahlutdeildar á milli smábáta í aflamarki Í flokki smábáta í aflamarki voru í upphafi um 900 bátar. Meginreglan við skiptingu aflahlutdeildar milli smábáta í aflamarki var aflareynsla ár- anna 1987-1989 og þar skyldu tvö bestu árin eingöngu talin. Langflestir bátanna tilheyrðu þessum flokki.8) Þeir bátar sem höfðu veitt mikið á árun- um 1985-1987 fengu að veiða á árunum 1988-1990 eftir sinni eigin aflareynslu en ekki samkvæmt tilteknum þorsk- aflahámörkum sem almennt giltu um veiðar smábáta árin 1988-1990. Aflahlutdeild til þessa bátaflokks miðaðist við útgefið aflahámark fyrir árið 1990. Bátar sem bættust við flotann eftir 31. desember 1989 fengu aflahlutdeild sam- kvæmt meðalaflahlutdeild. Þessir síðastnefndu bátar gátu fengið meiri aflahlutdeild en ýmsir aðrir sem höfðu gert lengur út. Það skýrðist af því að þeir höfðu yfir tiltölulega miklu aflamagni að ráða mið- að við þann fjölda sem til- heyrði þessum útgerðar- flokki.9) Rökin fyrir þessari skipan mála byggðust á því að nýir smábátar hefðu ekki notið þess frjálsræðis í veið- um smábáta sem var fyrir árið 1990 og því væri rétt að koma til móts við hagsmuni eigenda þeirra. Á móti þessari sérm- eðferð var eigendum þessara báta bannað að framselja afla- hlutdeild bátanna næstu fimm árin enda hefði bátunum ávallt verið haldið til veiða. Úthlutun samkvæmt meðal- aflahlutdeild orkaði tvímælis að mati sumra og þótti t.d. Sigurgeiri Bjarnasyni í Ólafs- vík, eiganda 5,96 brl. smá- bátsins Bjarna Sigurðssyni 7173, súrt í broti að hann fengi einungis 7 tonn á bátinn sinn árið 1991, sem hann hafði eingöngu róið árið 1989, á meðan menn sem höfðu fengið samskonar báta og byrjað höfðu að róa árið 1990, hefðu fengið 27 tonna kvóta.10) Veiðskipulag krókabáta til september 1994 Bátum sem voru undir 6 brl. var gefinn kostur á veiðum með línu og/eða handfærum með dagatakmörkunum (krókaleyfi) í stað aflahlut- deildar á árunum 1991-1994. Vel yfir 1100 bátar fengu út- gefin leyfi 1. janúar 1991 til að veiða án aflatakmarkana og voru einu veiðitakmarkan- ir þær að bannað var að veiða í 82 daga í ári. Sú regla gilti að reyndist hlutdeild þessara báta af heildarbotn- fiskafla hafa vaxið meira en sem næmi 25% að meðaltali á þessum þremur árum miðað við þá aflahlutdeild sem þeir áttu kost á árið 1991 skyldi þeim ákvörðuð aflahlutdeild frá og með upphafi þess fisk- veiðiárs er hæfist 1. septemb- er 1994. Aflareynsla á þessum þremur árum átti þá að ráða aflahlutdeild hvers skips. Færu veiðar bátanna ekki yfir þessum mörkum áttu sömu reglur að gilda næstu þrjú fiskveiðiár og koma aftur til sams konar endurskoðunar í lok þess tímabils. Eins og áð- ur hefur komið fram í þessum greinarflokki þá var áætluð hlutdeild krókabáta í þorski 2,18%, 0,55% í ýsu og 0,81% í ufsa. Samantekt um skiptingu afla- heimilda til einstakra skipa árið 1991 Af 4. og 5. gr. upphaflegu ákvæða FSL nr. 38/1990 leiddi að útgerðir tæplega 1000 fleiri skipa fengu almennt veiðileyfi í atvinnuskyni en árið 1984. Aflahlutdeild til smábátaflot- ans jókst úr því að vera um 3,5% í þorski árið 1984 í að vera 14,34% í upphafi árs 1991. Fiskveiðistjórnin á tíma- bilinu 1985-1990 leiddi til verulegrar tilfærslu aflaheim- ilda með tilheyrandi lækkun á aflahlutdeild þeirra skipa sem reistu sinn rétt á skipt- ingu aflaheimilda fyrir árið 1984. Líklega hefur þessi til- færsla numið nokkrum tugum prósenta í þorski og grálúðu en minna í öðrum tegundum. Myndun aflahlutdeildar 1. janúar 1991 í botnfisktegund- unum þorski, ýsu, ufsa, karfa og grálúðu byggðist því á mun flóknari viðmiðunum en veiðireynslu á tímabilinu 1. nóvember 1980 til 31. októb- er 1983. Segja má til einföld- unar að úthlutun aflahlut- deildar í botnfiski hafi tekið aðallega mið af veiðireynslu einstakra útgerðarflokka og skipa á tímabilinu 1. nóvem- ber 1980 til 31. desember 1989. Myndun aflahlutdeildar í úthafsrækju, sumargotssíld, loðnu, humri, innfjarðarrækju og skelfiski miðaðist á hinn bóginn að mestu leyti við hina upphaflegu úthlutun fiskveiðiréttinda í hlutaðeig- andi tegundum. Aflahlutdeild í skarkola miðaðist hins vegar við þriggja ára veiðireynslu og grundvallaðist sú úthlutun á 1. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða nr. 38/1990. Þessari síðastnefndu meginreglu skyldi beitt frá og með 1. jan- úar 1991 þegar ráðherra tæki þá ákvörðun að veiðar í til- tekinn stofn skyldi sæta heild- araflatakmörkunum, þ.e. þeg- ar tekin væri ákvörðun eftir 1. janúar 1991 um að veiðar í nytjastofn skyldi stjórnað með ákvörðun ráðherra um leyfi- legan heildarafla þá átti að skipta aflahlutdeild í tegund- inni samkvæmt veiðireynslu síðustu þriggja veiðitímabila. Það var og skilyrði fyrir beit- ingu reglunnar að samfelld veiðireynsla væri á tegund- inni. Tilvísanir 1) Bátar sem máttu eingöngu veiða með línu og handfæri og voru minni en 6 brl. eða 6 bruttótonn. 2) Fjallað er um þessa þætti í fyrri greinum greinarflokksins: 1) „Kvótaskiptingin árið 1984“, 1. tbl. Ægis 2009, bls. 30-31; 2) „Úthlutun fiskveiðiréttinda 1985-1987“, 2. tbl. Ægis 2009, bls. 22-23; 3) „Þróun fiskveiði- réttinda 1988-1990“, 3. tbl. Ægis 2009, bls. 18-19; 4) „Skipting aflaheimilda á milli útgerðarflokka 1991“, 6. tbl. Ægis 2009, bls. 8-9. 3) Sjá nánar Helgi Áss Grétars- son: „Úthlutun þorskveiði- heimilda 1984-2007: Lagalegar staðreyndir eða staðalímynd- ir?“, Afmælisrit lagadeildar Há- skóla Íslands, Reykjavík 2008, bls. 288. 4) Þetta er útskýrt í 5. nmgr. í greininni: „Þróun fiskveiðirétt- inda 1988-1990“, 3. tbl. Ægis 2009, bls. 18-19. 5) Sjá 6. gr. reglugerðar um veið- ar í atvinnuskyni nr. 465/1990. 6) Sjá nánar um þessar forsend- ur: Helgi Áss Grétarsson: Rétt- arsaga fiskveiða frá landnámi til 1990, Reykjavík 2008, bls. 155-161. 7) Sjá Helgi Áss Grétarsson: Rétt- arsaga fiskveiða frá landnámi til 1990, bls. 153-154. 8) Sjá Alþingistíðindi A-deild, 1990-1991, bls. 4587. 9) Alþingistíðindi A-deild, 1990- 1991, bls. 4587. 10) Hjörtur Gíslason: „Ofan sjávar og neðan - Sigurgeir Bjarna- son í Ólafsvík“, bls. 44. Birt í ritinu Trillukarlar, Líf og saga, Reykjavík 1991, bls. 39-56. Fram kom í viðtalinu við Sig- urgeir að hann hafi af þessum sökum ákveðið að stunda veiðar í krókabátakerfinu. Í þessu sambandi skal þess get- ið að samkvæmt skýrslu sjáv- arútvegsráðherra um úthlutun á fiskveiðiheimildum fyrir smábáta þá fékk báturinn Bjarni Sigurðsson 7173 alls 7.390 kg þorskígildistonnum úthlutað í byrjun árs 1991 en bátar af sömu stærð og til- heyrðu smábátum í flokki meðalaflahlutdeildar fengu 25.633 kg þorskígildistonnum úthlutað. Sjá Alþingistíðindi A-deild, 1990-1991, bls. 4606. F I S K V E I Ð I S T J Ó R N U N Höfundur er sérfræðingur hjá Lagastofnun Háskóla Íslands. Skoðanir sem kunna koma fram í greininni lýsa viðhorfum höf- undar en ekki stofnunarinnar. Helgi Áss Grétarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.