Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.2009, Síða 18

Ægir - 01.07.2009, Síða 18
18 T æ K N I N ý J U N g A R Ný nýverið kynnti Sónar ehf. nýjan 80 kHz WASSP fjölgeisla þrívíddar dýptarmæli. Hingað til hefur WASSP aðeins verið fáanlegur í 160 kHz útgáfu sem hefur gert það að verkum að langdrægið hefur verið tak- markað við ca. 240-260 metra dýpi. Nýi 80 kHz WASSP þrí- víddardýptarmælirinn er mun langdrægari og dregur amk niður að 500 metra dýpi. WASSP er ný nálgun í fjöl- geisla dýptarmælum, að sögn Guðmundar Bragasonar sölu- stjóra Sónar ehf., og hefur vakið mikla athygli hérlendis sem annars staðar enda um mikla byltingu í dýptarmælum að ræða. WASSP mælirinn sendir 120° leitargeisla þvert á skipið sem gerir honum kleift að sýna þversniðsmynd af botn- inum undir skipinu í raun- tíma. Auk þess að sýna 120° þversniðsmynd undir skipinu safnar WASSP botn upplýs- ingunum saman og getur sýnt getur sýnt hörku og dýpi botnsins í mismunandi litum. Á sama tíma getur WASSP sýnt þriggja geisla dýptarmæl- ismynd undir skipinu og allt að 40° til hliðar við skipið. Að sýna 120° þversniðs- mynd með háupplausn gerir að verkum að WASSP safnar fljótt upp dýpis- og botn- hörkuupplýsingum í gagna- safn mælisins. Ef bátur siglir t.d. á 100 faðma dýpi safnar WASSP hörku og dýpisupp- lýsingum um 200 faðma breiða rönd á botninum. Því eru menn fljótir að kortleggja ný fiskimið. Þessar upplýsing- ar eru settar fram á skýran hátt og notkun mælisins er mjög einföld og algerlega stjórnað með tölvumús. Allar valmyndir eru á íslensku, eins og vera ber. Að sögn Guðmundar hefur WASSP sannað sig sem öflugt hjálpartæki við ýmsar veiðar hér við land. Hversu fljótur hann er að safna upp botn- hörkuupplýsingum hefur t.d. nýst línu og snurvoðarbátum mjög vel. „Í vor var 160 kHz WASSP mælir settur um borð í uppsjávarskipið Huginn VE. Sú tíðni hefur nýst vel við að finna makríltorfur og kort- leggja þær, en WASSP geymir lóðningar í minni mælisins og getur sýnt þær í tvívíddar og þrívíddarmynd mælisins. Plot- terframleiðendur eru einnig farnir að sjá möguleika WASSP en bæði Turbo og Olex siglingarforritin geta nú sýnt lóðningar frá WASSP í þrívíddarmynd forritana,“ seg- ir Guðmundur að lokum. Harka botns sýnd með mismunandi lit eftir hörku botnsins, rauður litur harður botn. Ný kynslóð þrívíddardýptar- mælis á markað Fjórskipt mynd í WASSP þar sem sést þversniðsmynd undir skipi með lóðningu bakborðsmegin undir skipi, þriggja geisla dýptarmælismynd, þrívíddar og tvívíddarmynd þar sem búið er að setja inn merki. Lóðningar sem siglt hefur verið yfir sýndar í lit á gráum botni.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.