Ægir - 01.02.2013, Qupperneq 11
Hafáll, Conger conger
Í nóvember veiddi Guðbjartur SH 96 cm langan hafál á línu í
Breiðafirði (65°09’ N, 24°04’ V). Hafáls verður einkum vart á
grunnslóð frá Hornafirði og vestur fyrir Reykjanes og inn í
Faxaflóa, en hann er frekar sjaldséður og veiðist helst á línu.
Hann heldur sig mest á 1-100 m dýpi á grýttum og sendnum
botni þar sem nóg er um felustaði. Lengsti hafáll hér við land
mældist 165 cm, en hann mun geta orðið allt að 3 m langur.
Vogmær, Trachipterus arcticus
Í janúar fréttist af vogmeyju í Ísafjarðardjúpi og önnur fannst
rekin á fjörur við Hjalteyri í júní og sú rak á fjörur við Akranes
í ágúst. Í leiðöngrum Hafrannsóknastofnunar veiddist vogmær
aðallega á djúpslóð fyrir Suður- og Vesturlandi.
Vogmærin er mest miðsævis- og djúpfiskur en hún hefur
veiðst á 60-900 m dýpi. Hún heldur sig dýpra á daginn en á
nóttunni. Hennar hefur orðið vart í smátorfum og fundist bæði
rekin og veiðst í ýmis veiðarfæri, t.d. botnvörpu, flotvörpu, net
o.fl. Mest verður hennar vart í flotvörpu djúpt undan Reyka-
nesi.
Lýr, Pollachius pollachius
Þorleifur EA fékk 68 cm langan lý í net á 100 m dýpi SA af
Grímsey í febrúar. Lýr er fáséður fyrir Norðurlandi, en slæðing-
ur af honum hefur verið á ferðinni við Suðurströndina undan-
farin ár.
Lýr líkist ufsa við fyrstu sýn, en litur nýveiddra fiska er þó
nokkuð frábrugðinn. Lýr er ólífugrænn eða dökkbrúnn á baki,
en ufsinn blágrár eða dökkblár. Þá er lýr með þversneiddan
sporðsenda og áberandi svera stirtlu, en á ufsa er sporðurinn
örlítið sýldur.
Rauðskinni, Barbourisia rufa
Guðmundur í Nesi fékk 39 cm langan rauðskinna í botnvörpu
á 900 m dýpi á Hampiðjutorginu (65°30’ N; 28°00’ V) í janúar.
Venus HF veiddi svo annan 34 cm langan í flotvörpu á úthaf-
skarfaslóðinni (62°07’ N - 30°44’ V) í júní.
Rauðskinni er rauður eða appelsínugulur á litinn. Hann hef-
ur alheims útbreiðslu í heitum og heittempruðum höfum, en
útbreiðslusvæðið teygist þó norður til Íslandsmiða þar sem
hann er fáséður. Sá fyrsti sem fréttist af innan íslenskrar lög-
sögu fékkst í maí 1995 í flotvörpu á 715 m dýpi djúpt suðvest-
ur af Reykjanesi, en hann hefur veiðst allt norður á grálúð-
uslóðina vestan Víkuráls.
Marsilfri, Diretmus argenteus
Í nóvember veiddi Örvar SK marsilfra á Hampiðjutorgi (64°48’
N - 27°52’ V). Fiskurinn var 12 cm langur og veiddist í botn-
vörpu á 940-1030 m dýpi, en svo djúpt hefur þessi tegund ekki
fyrr veiðst hér við land.
Marsilfri veiðist stöku
sinnum á Íslandsmið-
um. Þeir fiskar sem
frést hefur af veiddust á
svæðinu frá Rósagarði
vestur á Faxabanka,
auk tveggja sem veidd-
ust við Kolbeinsey.
Búrfiskbróðir, Hoplostethus mediterraneus
Þerney RE veiddi 19,5 cm búrfiskbróður á 650 m dýpi í Skeið-
arárdjúpi (63°19’ N, 16°33’ V). Hann veiddist í janúar 2010, en
það láðist að geta hans í skránni fyrir það ár. Búrfiskbróðir
flækist stundum til Íslandsmiða. Hér varð hans fyrst vart árið
1964 þegar einn veiddist djúpt undan Suðvesturlandi, 1998
veiddist annar í utanverðu Skerjadjúpi og 2001 veiddist sá
þriðji á Eldeyjarsvæðinu.
Fagurserkur, Beryx splendens
Í mars veiddist 47 cm langur fagurserkur í botnvörpu við
Reykjaneshrygg (63°07’ N - 24°57’ V). Veiðiskip var Barði NK.
Hér við land hefur fagurserkur einkum veiðst á svæðinu frá
Litladjúpi undan Suðausturlandi, suður og vestur á grálúðuslóð
vestan Víkuráls. Fagurserkur er botn- og djúpfiskur sem veiðst
hefur á 128-816 dýpi á Íslandsmiðum en er sennilega algeng-
astur á 400-800 m dýpi. Hann hefur veiðst allt niður á 1300 m
dýpi.
Blákarpi, Polyprion americanus
Ottó N. Þorláksson RE fékk 55 cm langan blákarpa í botnvörpu
á Boðagrunni (63°12’ N - 24°15’ V) í byrjun júní. Blákarpi
minnir dálítið á karfa í útliti nema liturinn sem er gráleitur eða
dökkbrúnn á baki, ljós á kvið og sporðblaðka er hvít í jaðar-
inn. Hann virðist vera orðinn alltíður flækingur við Ísland,
einkum á svæðinu frá Suðausturmiðum og vestur fyrir Reykja-
nes en sjaldséður norðan þess.
Brynstirtla, Trachurus trachurus
Nokkrar brynstirtlur slæddust með við makrílveiðar árið 2011.
Þetta voru 30-40 cm langir fiskar og fréttist mest af þeim á suð-
austurmiðum. Brynstirtla, einnig nefnd hrossamakríll, er upp-
sjávarfiskur og er hún algeng víða í Norður-Atlantshafi þar sem
hún lifir í stórum torfum frá yfirborði og niður á 100-200 m
dýpi.
Stóri bramafiskur, Brama brama
Stóri bramafiskur veiddist allt frá Þórsbanka og vestur í Jökul-
djúp. Einkum fréttist af honum við makrílveiðar með flotvörpu.
Heimkynni stóra bramafisks eru í öllum heimshöfum. Í Norð-
austur-Atlantshafi teygist útbreiðsla hans norður til Bretlands-
eyja og hefur hann flækst alloft til Íslandsmiða.
Rauðskinni sem Guðmundur í Nesi RE veiddi á Hampiðjutorginu.
Fagurserkur sem Barði NK veiddi á Reykjaneshrygg.
Búrfiskbróðir sem Þerney veiddi í Skeiðarárdjúpi 2010.
Marsilfri sem Örvar SK fékk í botnvörpu á grá-
lúðuslóðinni.
S J A L D G Æ F I R F I S K A R
11