Ægir - 01.02.2013, Side 16
DNG á Akureyri hefur þróað
byltingarkennt makrílveiði-
kerfi sem dregur mjög úr
hættu á slysum um borð í
skipum, eykur afköstin og
getur aukið fjölbreytileika
veiðiflotans vegna þess hve
kerfið er fyrirferðarlítið miðað
við hefðbundin kerfi. Kristján
Björn Garðarsson, rekstrar-
stjóri DNG, segir að kerfið
hafi verið prófað við makríl-
veiðar síðastliðið sumar og
komið vel út.
Tilgangurinn með nýja
búnaðinum er að einfalda
makrílveiðarnar. Þekkt er við
makrílveiðar að blakkir eru
nánast út um allan bátinn til
búa til vegalengdina fyrir
slóðana. Makrílveiðar eru
ólíkar handfæraveiðum að
því leyti að slóðinn er mun
lengri, önglarnir smærri og
minna bil á milli þeirra. Allt
að 40 önglar eru á hverjum
slóða. Algengast er að fimm
rúllur séu um borð og hrað-
inn í veiðunum er mun meiri
en í öðrum handfæraveiðum.
Línan gengur niður í sjó og
nánast viðstöðulaust upp aft-
ur. Sjálfvirkur búnaður sér
um að slíta úr krókunum.
Dregur úr hættu
Vandamálið við hefðbundar
aðferðir hefur verið að skapa
vegalengd fyrir slóðann því
ekki er hægt að vefja honum
upp á venjulega rúllu án þess
að önglarnir festist saman. Til
þess að komast hjá þessu eru
slóðarnir hengdir upp eftir
endilöngum bátnum. Þetta
skapar ákveðna hættu því
sjómenn geta fengið öngla í
sig því mikill hraði er í veið-
unum. Einnig geta slóðarnir
flækst saman með tilheyrandi
töfum. Til þess að stunda
veiðarnar með þessum hætti
þarf ákveðna stærð af bátum.
„Okkar kerfi býr yfir
tveimur grundvallarþáttum.
Annar er sá að slóðinn fer all-
ur inn á kefli og ákveðinn
búnaður þar sér til þess að
hann flækist ekki saman,“
segir Kristján Björn.
Keflin í makrílveiðikerfi
DNG leiða af sér mun meira
öryggi við veiðarnar því með
hefðbundnum kerfum liggja
slóðarnir yfir endilöngum
bátnum í rúmlega mannhæð.
Vindurinn getur feykt slóðun-
um saman og sú hætta er fyr-
ir hendi að sjómenn fái öngla
í sig.
Pakkað saman í eina einingu
„Við höfum pakkað þessu
saman í eina einingu sem er
tiltölulega fyrirferðalítil. Kerf-
ið gerir ekki sömu kröfu og
áður um lengd á bát. Vissu-
lega er búnaðurinn dálítið
fyrirferðameiri en ein hand-
færarúlla en í meðal bát er
hægt að koma fyrir 5-7 svona
stöðvum. Hefðbundna hand-
færavindan sem við framleið-
um er síðan drifbúnaður kerf-
isins. Innbyggt í hana er mak-
rílveiðiforrit. Þeir bátar sem
eru ekki komnir með makríl-
veiðikerfið okkar eru engu að
síður langflestir að nota rúll-
urnar okkar.“
Handfærarúllan er tengd
við eininguna og í staðinn
fyrir að nota hjólið, sem dreg-
ur línuna við hefðbundnar
handfæraveiðar, er tannhjól á
rúllunni og reim sem drífur
nýja búnaðinn.
Segja má að nýja makríl-
veiðikerfi DNG sé byltingar-
kennt því það býður upp á
mun meira öryggi við veiðar,
það dregur úr töfum og gerir
ekki sömu kröfu til rýmis og
hefðbundin kerfi.
„Við prófuðum búnaðinn
með útvöldum bátum síðast-
liðin tvö sumur. Annar bátur-
inn var útbúinn með fimm
Byltingarkennt makríl-
veiðikerfi frá DNG
Kristján Garðarsson, rekstrarstjóri DNG við nýja búnaðinn.
M A K R Í L V E I Ð A R
16