Ægir

Volume

Ægir - 01.02.2013, Page 33

Ægir - 01.02.2013, Page 33
33 F I S K A F L I N N Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 160,4 milljörðum króna á árinu 2012, samanborið við 153,9 milljarða árið 2011. Aflaverðmæti jókst því um 6,6 milljarða eða um 4,3% á milli ára. Aflaverðmæti botnfisks var 96,5 milljarðar sem er 0,7% aukning frá árinu 2011 þegar aflaverðmætið nam 95,9 millj- örðum. Verðmæti þorskafla var um 49,5 milljarðar sem er 6,8% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu, sem nam 12,2 milljörðum, jókst um 1,8% milli ára en verðmæti karfaaflans, sem nam 14,5 milljörðum dróst saman um 2,9% miðað við árið 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 3,4% milli ára og nam 9,4 milljörðum króna á árinu 2012. Miklar sveiflur í uppsjávaraflanum Verðmæti uppsjávarafla nam um 46,7 milljörðum króna ár- ið 2012, sem er 8,1% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti loðnu nam 13,5 milljörðum sem er 52,3% aukning saman- borið við árið 2011 og verð- mæti kolmunna, sem var 2,7 milljarðar árið 2012, jókst um rúmlega 2,4 milljarða milli ára. Aflaverðmæti síldar nam 14,6 milljörðum króna árið 2012 sem er 0,8% aukning milli ára. Hins vegar dróst aflaverðmæti makríls saman um 19,1% frá fyrra ári og var um 14,4 milljarðar. Nær eng- inn annar uppsjávarafli var veiddur á árinu. Sjófrysting gaf eftir Aflaverðmæti flatfisksafla nam um 10,6 milljörðum króna, sem er 2,7% aukning frá 2011. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 74,7 milljörðum króna á árinu 2012 og jókst um 16,0% milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 7,1% milli ára og nam 20,7 milljörðum króna. Aflaverð- mæti sjófrystingar nam 58,6 milljörðum árið 2012 sem er 6,3% samdráttur frá fyrra ári en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 5,4 milljörðum króna, sem er 18,0% samdráttur frá árinu 2011. Aflaverðmæti jókst um 4,3% milli ára Tafla 1. Tafla 2. Verðmæti­afla­eftir­tegund­löndunar­janúar-desember­2012 Milljónir króna Desember Janúar-desember Breyting frá 2011 2012 2011 2012 fyrra ári, % Verðmæti­alls­ 10293­ 8242­ 153870­ 160438­ 4.3 Til vinnslu innanlands 3318 3199 64351 74678 16 Í gáma til útflutnings 496 263 6639 5442 -18 Landað erlendis í bræðslu 0 0 145 125 -14.3 Sjófryst 5110 3736 62498 58551 -6.3 Á markað til vinnslu innanlands 1315 1021 19352 20734 7.1 Sjófryst til endurvinnslu innanl. 23 0 192 338 75.8 Selt úr skipi erlendis 0 0 0 0– Fiskeldi 0 0 0 0– Aðrar löndunartegundir 30 24 692 570 -17.7 Verðmæti­afla­eftir­staðsetningu­verkunarstaðar­janúar-desember­2012 Milljónir króna Desember Janúar-desember Breyting frá 2011 2012 2011 2012 fyrra ári, % Verðmæti­alls­ 10293­ 8245­ 153870­ 160441­ 4.3 Höfuðborgarsvæði 3045 2696 31252 37148 18.9 Suðurnes 1840 1729 25911 26326 1.6 Vesturland 382 303 6913 7547 9.2 Vestfirðir 596 569 8041 10131 26 Norðurland vestra 908 854 10416 10975 5.4 Norðurland eystra 1137 776 24375 18064 -25.9 Austurland 823 683 20932 24379 16.5 Suðurland 1067 359 19246 19946 3.6 Útlönd 496 276 6785 5925 -12.7 Verðmæti loðnuafurða nam rúmum 13 milljörðum í fyrra og jókst um rösk 52%.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.