Ægir - 01.02.2013, Side 34
34
F I S K V E I Ð I S T J Ó R N
Í starfsskýrslu Fiskistofu fyrir
árið 2012 kemur fram að 265
brotamál hafi komið upp á
árinu vegna gruns um brot
gegn lögum og reglum á sviði
fiskveiðistjórnunar. Auk þess
hafi 367 verið tekin til vinnslu
vegna vanskila á afladagbók-
um.
Samtals voru 139 skip og
bátar svipt veiðileyfi á árinu
en útgerðir voru áminntar
vegna brota í 18 málum.
„Alls var fimm málum lok-
ið með því að skip voru svipt
veiðileyfi, sbr. heimild 15. gr.
laga nr. 57/1996 um um-
gengni um nytjastofna sjávar
með síðari breytingum, vegna
brota á lögum og reglum um
vigtun og skráningu sjávar-
afla. Þessar sviptingar stóðu
mislengi, allt frá einni upp í
fimm vikur. Skiptingin var
með þeim hætti að þrír bátar
voru sviptir leyfi til grá-
sleppuveiða vegna brottkasts
og tvö skip voru svipt veiði-
leyfi vegna framhjálöndunar á
afla. Þá er rétt að geta þess
að í lok ársins voru enn til
meðferðar 11 mál sem vörð-
uðu brot gegn lögum og
reglum um vigtun sjávarafla,“
segir í skýrslu Fiskistofu.
Tvö skip voru svipt leyfi til
strandveiða vegna brota gegn
sérreglum sem um veiðarnar
gilda. Önnur þessara svipt-
inga mun, samkvæmt skýrslu
Fiskistofu, koma til fram-
kvæmda á strandveiðitíma-
bilinu 2013.
„Alls voru 11 skip svipt
leyfi til grásleppuveiða á
árinu og koma þær sviptingar
til framkvæmda á grásleppu-
veiðitímabilinu árið 2013.
Auk þess var útgerð áminnt í
níu málum.
Í 43 tilvikum var skip svipt
veiðileyfi vegna vanskila á
afladagbók og eitt skip var
svipt veiðileyfi vegna veiða í
hrygningarstoppi. Þá var í
einu tilviki erlent skip svipt
leyfi til veiða innan fiskveiði-
landhelgi Íslands þar sem
ekki hafði verið virt bann við
lúðuveiðum.“
Yfirlityfirbrotamál2012
Brot gegn reglum um löndun 61
Framhjálöndun 2
Brot vigtunarleyfishafa 9
Undirmál 30
Tilgreining tegunda röng 10
Önnur brot 10
Brottkast afla 9
Brot gegn lögum og reglum um veiðileyfi 40
Grásleppuveiðar, brot gegn reglum 42
Strandveiðar, brot gegn reglum 71
Brot vegna afladagbóka 386
Skráning í afladagbók 19
Skil á afladagbók 367
Brot gegn reglum um afla til útflutnings 10
Brot gegn lögum um lax- og silungsveiði
Önnur brot 9
Brotamálalls 634
Meðferðmála
BROTAMÁL 2012 2011
Mál kærð til lögreglu 41 36
Áminningar er varða veiðileyfi 18 26
Veiðileyfasviptingar 20 15
Áminningar er varða vigtunarleyfi 1 2
Afturkallanir vigtunarleyfa 2 2
Tilmælum beitt 83
Ekkert aðhafst 27
Sent öðru stjórnavaldi til ákvörðunar 2
Málsmeðferð enn í gangi 21
VEIÐAR UMFRAM AFLAMARK
Boðaðar veiðileyfissviptingar 865 722
Veiðileyfissviptingar vegna umframafla 18 17
VANSKIL Á AFLADAGBÓK
Sviptingar vegna vanskila á afladagmbók 43 45
VANSKIL Á GREIÐSLUM
Sviptingar vegna ógreidds veiðileyfagjalds 4
Sviptingar vegna ógreiddra álagninga 54 38
Hátt í 300 brot á lögum og
reglum um fiskveiðistjórnun