Ægir - 01.03.2013, Síða 14
14
S M Á B Á T A Ú T G E R Ð
þetta sushi. Kúfiskurinn er
sprelllifandi og við skerum úr
skelinni jafnóðum.“
Í fyrra skiluðu strandveið-
arnar þeim 26 tonnum en
þeir hefðu getað veitt mun
meira og segir Sverrir að það
mætti gjarnan auka dálítið við
þennan pott.
„Veiðarnar voru búnar
snemma í júlí í fyrra og svo
voru ekki nema fjórir dagar í
ágúst. Það mætti því alveg
bæta í þetta. Þetta eru vist-
vænar veiðar og stutt stím hjá
okkur, en við erum kannski
ekki dæmigerðir því einungis
fáir eru að róa með beitufæri
eins og við. Aðrir hafa þurft
að keyra talsvert lengra. En
þetta er skemmtilegur veiði-
skapur. Gæftirnar voru góðar
í fyrra en í hitteðfyrra voru
þær hörmulegar og þá var
þetta eintómur barningur.“
Býst við mikilli fjölgun
Um 20-30 bátar hafa verið á
strandveiðum frá Siglufirði,
Ólafsfirði og Dalvík og segir
Sverrir athyglisvert að sjá hve
mikil fjölgunin verði núna.
„Grásleppuvertíðin er svo
stutt að það má búast við því
að ennþá fleiri bátar nái að
byrja strax á strandveiðum.
Það verða fleiri um hituna. Í
hitteðfyrra voru svo fáir bátar
að veiðum að við fengum
maí, júní og megnið af júlí
nánast út af fyrir okkur. Í
fyrra fækkaði dögunum á
grásleppunni og þá fjölgaði
bátum sem fóru á strandveið-
ar og kvótinn kláraðist mun
fyrr.“
Sverrir bendir einnig á að
brögð séu að því að bátar
séu færðir á milli svæða. Til
þess að færa báta á milli
svæða þarf að flytja lögheim-
ili útgerðarinnar.
„Það virðist vera sem
menn veigri sér ekki við það.
Það eru hérna tveir bátar sem
eru með heimilisfesti í Hafn-
arfirði en útgerðir þeirra eru
skráðar með lögheimili hérna
í næsta húsi við hliðina á mér
sem er sumarbústaður.“
Sverrir segir undarlegt að
hægt sé að flakka svona á
milli svæða. Þessir aðilar
stundi veiðar á svæðinu en
skilji engan virðisauka eftir
sig. Þessir tveir bátar frá
Hafnarfirði lönduðu meira að
segja yfirleitt á Norðfirði eða
Skagaströnd. Sverrir vill ekki
taka svo djúpt í árina að kalla
þetta afrán og hallast að því
að það séu allir bara að
reyna að bjarga sér eftir öll-
um leiðum.
Loforð um frjálsar
handfæraveiðar verði efnt
Sverrir segir að jafnvel ekki
meira en 2.000 tonna afla-
aukning myndi breyta miklu
fyrir strandveiðiflotann.
„Maður stendur alltaf í
þeirri trú að loforð um frjálsar
handfæraveiðar verði efnt.
Spurningin snýst um það að
kvóta 200-300 báta á hand-
færaveiðum verði skilað inn
og þeir fengju í staðinn að
stunda frjálsar handfæraveið-
ar frá apríl og fram í október.
Við erum með 17 tonn núna
á litla bátnum og það er
fjöldinn allur af slíkum bátum
hringinn í kringum landið og
gæti orðið til stór pottur úr
þessum aflaheimildum. Ef
gefnar væru frjálsar hand-
færaveiðar í þessa fjóra til
fimm mánuði með kannski
þrjár rúllur á hvern bát þá
hefðum við ekkert við kvóta
að gera. Þetta yrði auk þess
mikill búhnykkur fyrir lands-
byggðina.“
Sverrir segir að margir af
þeim bátum sem voru á
strandveiðum í fyrra séu nú
til sölu.
„Við fiskuðum í fyrra fyrir
tæplega 8 milljónir kr. og
vorum með allt í topp, bæði
hvað varðar veiðar og afurða-
verð. Í sumar fáum við svo
þennan skell sem er 100 kr.
lækkun á meðalverði. Við
gerum því ekki ráð fyrir að
fiska fyrir nema um 5 til 5,5
milljónir kr. Einstaklingur
sem kaupir sér bát fyrir 20
milljónir kr. til að fara á
strandveiðar gæti hugsanlega
fiskað fyrir 5 milljónir kr. Það
sjá það allir að þetta gengur
ekki upp og ég held að
margir hafi ekki áttað sig á
þessu.“
Sverrir að draga inn pokann fulla af kúfiski sem notaður er í beitu.