Ægir - 01.03.2013, Blaðsíða 16
eins og með allt. Það sem
lukkast vel er skemmtilegt,
alveg eins og hversu leiðin-
legt getur verið þegar ekkert
veiðist. Þannig er þetta bara
með allan veiðiskap.“
Hann segir að það hafi
svo sem enginn dýrðarljómi
verið yfir veiðunum þá daga í
fyrra þegar hann þurfti að
keyra langt suður eftir og elta
makrílinn heilu dagana án
þess að nokkuð veiddist.
Makríllinn á stanslausu flakki
„Makríllinn er á stanslausu
flakki. Hann hefur engan
sundmaga og er bara á fleygi-
ferð. Hann er einstaklega
sprettharður. Við sáum það
svo vel þegar hann kom
hérna inn í Friðarhöfn. Hann
gerði sig sýnilegan í öðrum
enda hafnarinnar og á einu
augnabliki þyrlaðist allt upp
hinum megin í höfninni þeg-
ar torfan var allt í einu komin
yfir. Hann verður að vera á
ferðinni því annars sekkur
hann bara. Hann þarf líka
gríðarlega mikla fæðu því
það fer óhemju orka í þetta
flakk á honum. Hann étur
sandsíli, átu, ýsu-, grásleppu-,
lax- og silungsseiði og eigin-
lega allt sem fyrir honum
verður, held ég.“
Sigurður hefur mest verið
einn við veiðarnar og bátur-
inn er tæp tíu tonn. Hann
segir að það sé dálítið erfitt
að vera einn í þessu og
reyndar eiginlega ekki hægt á
makrílveiðum.
„Það er svo mikið af krók-
um og þetta getur orðið
hættulegt ef maður varar sig
ekki. Ég var bara með þrjár
virkar rúllur á þessum veið-
um í fyrra og það var alveg
yfirdrifið nóg fyrir mig einan.“
Sigurður segir að stefnan
sé sett á að auka afkasta-
getuna og er búið að setja
Sonar leitartæki um borð í
bátinn. Ætlunin er að vera
með fimm slítara og ætlar
Sigurður að vera með mann
með sér um borð í sumar.
Hann býst ekki við að
makríllinn fari að gefa sig að
ráði fyrr en líður á júlímánuð.
Oft náist lítill árangur þegar
makríllinn er vaðandi í torf-
um en veiði batni þegar hann
haldi sig dýpra í sjónum.
„Ég hef reynt að veiða
hann svona í yfirborðstorfum
en þá heldur hann sig bara á
yfirborðinu og eltir krókinn
ekki eins mikið niður.“
Sigurður er þeirrar skoð-
unar að rík ástæða sé til að
auka makrílkvótann og gefur
lítið fyrir andstöðu Evrópu-
sambandsins við veiðar Ís-
lendinga sem sambandið tel-
ur vera óheftar.
„Við erum að ala makríl-
inn upp og fita hann innan
okkar lögsögu þar sem hann
ryksugar upp æti sem aðrar
tegundir þrífast á. Mér finnst
vanta dálítið upp á að stjórn-
málamennirnir sýni þessu
Sigurður landar góðum makrílafla í Vestmannaeyjum.
Á miðunum um borð í Hlödda. Framundan veður
makríltorfa í yfirborðinu.
16
S M Á B Á T A Ú T G E R Ð