Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2013, Blaðsíða 17

Ægir - 01.03.2013, Blaðsíða 17
17 skilning og því að það hafa orðið miklar breytingar í haf- inu sem hafa áhrif á göngu fiskistofna.“ Kallar eftir meiri kvóta Sigurður segir að mikill áhugi sé fyrir makrílveiðum á Ís- landi og er þeirrar skoðunar að það ætti að gefa veiðar smábáta frjálsar. Nú verður leyft að veiða 3.200 tonn á línu og handfæri á tímabilinu 1. júlí til 31. desember. Sig- urður segir að náist ekki sam- staða um frjálsar veiðar í ná- inni framtíð ætti í það minnsta að auka kvóta smá- bátanna verulega, upp í 10-20 þúsund tonn. En þar með er sagan ekki öll sögð því sam- hliða yrði vinnslan í landi að þróast mikið. Smábátarnir bera makrílinn á land sprikl- andi ferskan og því um al- gjört gæðahráefni til mann- eldis að ræða. „Það þarf að vera meiri vinnsla á þessu gæðahráefni og þarna fara sannarlega saman veiðar og vinnsla. En miðað við framþróunina sem hefur orðið í makrílveiðum á þessum stutta tíma þyrfti að auka kvótann upp í hið minnsta 7-8 þúsund tonn, einungis til að halda í við framþróunina í veiðunum,“ segir Sigurður. Makrílbátarnir Siggi Bessa og Hlöddi vel græjaðir á miðunum. Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum. Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun og markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf meira í dag en í gær. Rannsóknir í þágu sjávarútvegs Stefna Matís er að  ... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins  ... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi  ... hafa hæft og ánægt starfsfólk Gildi Matís  Frumkvæði  Sköpunarkraftur  Metnaður  Heilindi Hlutverk Matís er að  ... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs  ... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu um- hverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu  ... bæta lýðheilsu www.matis.is S M Á B Á T A Ú T G E R Ð

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.