Ægir - 01.03.2013, Blaðsíða 19
19
Guðlaugur Birgisson, skip-
stjóri á Öðlingi SU 19, er lítið
fyrir að barma sér enda engin
ástæða til þess. Fyrirtækið á
Djúpavogi gengur vel og það
stendur líka mikið til í sumar.
Guðlaugur var á leið til
Djúpavogs frá Norðfirði þeg-
ar rætt var við hann en þar
höfðu gúmbjörgunarbátarnir
hans verið í yfirhalningu. Það
er nefnilega undirbúningur í
fullum gangi og nýlega fór
báturinn í yfirhalningu hjá
Siglufjarðar-Seig og segist
Guðlaugur aldrei fara annað
með bát sinn í slipp eftir að
hafa kynnst þeim frábæru
vinnubrögðum sem þar eru
viðhöfð.
„Báturinn var orðinn tíu
ára gamall og hafði aldrei
verið neitt sérstakt viðhald á
honum. Ég sigldi honum
norður og fékk hann eins og
splunkunýjan til baka. Við
vorum að íhuga að kaupa
nýjan bát en það er óvissa
yfir þessu öllu og við töldum
þetta ekki rétta tímapunktinn
til þess. Maður er nefnilega
að setja sig í stellingar fyrir
komandi vertíð og það er að
mörgu að huga,“ segir Guð-
laugur.
Kolféll fyrir
makrílveiðiskapnum
Báturinn er 15 tonn og hefur
reynst Guðlaugi vel. Hann
var smíðaður á Akranesi hjá
Bátasmiðju Guðgeirs árið
2002. Hann er tólf metra
langur og 3,2 metrar á breidd
og búið er að setja á hann
síðustokka. Segir Guðlaugur
að báturinn sé ekkert síðri en
nýjustu bátarnir í dag.
„Ég er á línu, langri línu
með frá 36 upp í 48 bala, en
svo hef ég reynt að vera á
handfærum á sumrin. Það
ræðst svo af verði á leigu-
markaði og ýmsu öðru hvort
það takist eða hvort ég er
bara áfram á línunni,“ segir
Guðlaugur sem, eins og
margir aðrir, ætlar sér á
makrílveiðar í sumar.
„Ég fór nokkra túra með
félaga mínum frá Hornafirði
sem hefur náð góðum tökum
á makrílveiðunum og ég ger-
samlega kolféll fyrir þeim.
Þetta er allt öðruvísi veiði-
skapur en ég er vanur og sér-
staklega skemmtilegur,“ segir
Guðlaugur.
Framúrskarandi fyrirtæki
ársins 2012
Guðlaugur var að fjárfesta í
rúllum frá DNG á Akureyri
sem taka krókana inn á sig.
Hann verður með þrjár slíkar
rúllur og fjórar rúllur þar sem
krókarnir hanga yfir þilfarinu.
„Þeir eru mjög seigir þarna
fyrir norðan og ég veit að ég
er að fá alveg toppgræjur frá
þeim.“
Tryggvi Gunnlaugsson,
frændi Guðlaugs, er meiri-
hlutaeigandi í útgerðinni sem
heitir Eyjufreyjunes eftir sam-
nefndum tanga í Berufirði
þaðan sem þeir frændur eiga
ættir sínar að rekja. Fyrirtæk-
ið varð 20 ára í desember á
síðasta ári. Þegar Guðlaugur
settist aftur að á Djúpavogi
eftir nám réði hann sig sem
skipstjóra á Öðling. Þegar
hann svo stofnaði fjölskyldu
keypti hann sig inn í fyrirtæk-
ið og tók við rekstri þess.
Fyrirtækið hlaut viðurkenn-
ingu sem Framúrskarandi fyr-
irtæki ársins 2012.
„Þetta kom mér algjörlega
í opna skjöldu og ég hló nú
bara að þessu fyrst. Félagi
minn einn sem þekkir vel inn
í atvinnulífið sagði mér svo
að það væru mörg fyrirtæki
að keppast um að ná þessum
stimpli ár eftir ár. En síðan
datt þetta bara inn um bréfa-
lúguna hjá okkur,“ segir Guð-
laugur og hlær.
Fyrirtæki þeirra frænda er
að skapa talsverða atvinnu á
Djúpavogi og þeir reyna að
láta sem mest verða eftir í
heimabyggð.
Veiða að jafnaði um 250 tonn
á ári
„Við reynum að reka lifandi
fyrirtæki en við erum ekki
Guðlaugur Birgisson, smábátasjómaður á Djúpavogi:
Þýðir ekkert að
væla heldur bera
sig eftir björginni
Guðlaugur verður með sjö rúllur á makrílveiðunum í sumar.
S M Á B Á T A Ú T G E R Ð