Ægir - 01.03.2013, Síða 27
27
Þ J Ó N U S T A
Undirritaður hefur verið samn-
ingur um kaup Ísfells ehf. á
rekstri Dímon línu ehf. Samn-
ingurinn tekur til umboðs fyrir
vörur, einkum til línuveiða, og
til vörubirgða.
Flestir starfsmenn Dímon
Línu munu halda áfram störf-
um hjá nýjum eigendum.
Starfsemi Dímon línu verður
til að byrja með áfram að
hluta til í núverandi húsnæði
að Héðinsgötu 1-3 en á
næstu vikum er stefnt að
flutningi hennar í húsnæði Ís-
fells að Óseyrarbraut 28 í
Hafnarfirði.
Með þessum kaupum get-
ur Ísfell boðið viðskiptavin-
um sínum enn betri þjónustu
og fjölbreyttara vöruval en
áður.
Ísfell hóf starfsemi
snemma árs 1992. Umsvif fyr-
irtækisins hafa aukist jafnt og
þétt hérlendis og erlendis
með innri vexti, kaupum á
öðrum fyrirtækjum og sam-
einingum. Nú starfa 55
manns í sex starfsstöðvum Ís-
fells á Íslandi og 35 manns til
viðbótar í þremur starfsstöðv-
um á Nýfundnalandi og Nova
Scotia í Kanada.
Rekstur Dímon línu má
rekja til ársins 1994 og hefur
fyrirtækið verið leiðandi í
sölu á línu, beitu og öðrum
vörum til línuveiða. Arnór
Stefánsson, stofnandi og
framkvæmdastjóri félagsins,
hefur á síðustu árum tekið
þátt í uppbyggingu verk-
smiðju á eigin vegum til
framleiðslu á ryðfríum línu-
krókum á Indlandi og hyggst
einbeita sé að frekari vexti á
því sviði á næstu árum.
Samkeppniseftirlitið fjallaði
um viðskipti Ísfells og Dímon
línu án athugasemda.
Ísfell ehf. kaupir
rekstur Dímon línu ehf.
Kaupsamningurinn handsalaður. Arnór Stefánsson, framkvæmdastjóri Dímon línu,
og Pétur Björnsson, stjórnarformaður Ísfells, til hægri á myndinni.