Ægir - 01.03.2013, Qupperneq 28
28
Olís og íslenskur sjávarút-
vegur hafa átt samleið í
hartnær sex áratugi eða allt
frá því Olíuverslun Íslands var
stofnuð. Jón Ólafur Halldórs-
son, framkvæmdastjóri sölu-
sviðs Olís, segir fyrirtækið
ávallt reyna að bjóða við-
skiptavinum sínum góðar og
samkeppnishæfar vörur á
samkeppnishæfu verði.
„Þegar kemur að þjónustu
við sjávarútveginn þá er það
ekki síst dreifikerfi okkar og
aðgengi viðskiptavina að
vörum og þjónustu sem
skiptir máli. Við erum með
útibúastarfsemi í flestum
höfnum landsins og þar höf-
um við getað haldið uppi
ágætri þjónustu. Þar hafa við-
skiptavinir okkar notið dag-
legrar þjónustu í sinni heima-
byggð,“ segir Jón Ólafur.
Eldsneyti og olíur fyrir
sjávarútveginn
Hann segir að Olís sé ávallt
að bæta þjónustunet sitt og
auðvelt sé að bæta við vöru-
framboði inn í þetta kerfi.
„Okkar kjarnastarfsemi í þjón-
ustu við sjávarútveginn er
sala á eldsneyti og smurolíu.
Síðan erum við að selja marg-
víslega rekstrarvöru, eins og
t.d. pappírsvörur, hreinlætis-
vörur, efnavörur og hreinsi-
vörur. Sjávarútvegur er mat-
vælaiðnaður og farið er eftir
ströngustu gæðakerfum inni í
fiskvinnslunni og um borð í
skipunum. Þarna komum við
til skjalanna með okkar efna-
vörur og sérfræðiþekkingu.
Við útbúum m.a. þrifaplön
fyrir fyrirtæki, hvort sem það
eru skip eða fiskvinnslur. Á
þessu sviði nýtum við okkur
jafnframt erlenda samstarfs-
aðila sem framleiða efni fyrir
okkur.“
Innan Olís er sérstök út-
gerðavörudeild og með henni
býður fyrirtækið viðskiptavin-
um sínum lausnir í veiðarfær-
um. Fyrirtækið selur togvíra,
efni til línu- og netaveiði,
keðjur, tog, snurpuvíra og
fleira.
„Við reynum að bjóða
heildstæðar lausnir en við er-
um reyndar ekki að bjóða
stærstu gerðir flottrolla. En
við erum í samstarfi við ýms-
ar netagerðir sem framleiða
stærri troll. Við seljum þeim
hráefni til sinnar framleiðslu.
Við komum því víða við í
þessum málum.“
Pöntun afgreidd innan 24
tíma
Jón Ólafur segir Olís bjóða
upp á víðtæka þjónustu fyrir
sjávarútveginn.
„Á öllum tímum reynum
við að bjóða nýjustu og bestu
vörurnar og gæðavörur á
góðu verði. Það sem við höf-
um einnig upp á að bjóða er
stöðugt þjónustu- og vöru-
framboð og örugga þjónustu
í afhendingu. Við erum með
vörugeymslur á helstu stöð-
um þannig að aðgengi við-
skiptavina er tiltölulega gott.
Svo er einnig hægt að dreifa
vörum hvert á land sem er
eftir pöntun á innan við 24
klukkustundum. Það er lykill-
inn að velgengni að geta
boðið upp á slíka þjónustu
um allt land.“
Jón Ólafur segir að Olís
hafi einnig lagt áherslu á þró-
unarstarf með sínum við-
skiptavinum. Fyrirtækið hefur
haft samvinnu með viðskipta-
vinum að prófa vörur og
reynir þannig að finna bestu
lausnirnar á hverjum tíma.
„Við höfum stigið fram
þegar kemur að nýjum grein-
um í sjávarútvegi, eins og til
dæmis skelfiskeldi. Þá höfum
við sérhæft okkur í þeim
greinum og útvegað réttu
vörurnar. Það er alltaf ákveð-
in áhætta í tengslum við nýjar
greinar en við höfum ákveðið
að taka skref út á þessa braut
og tökum þátt í þessari þróun
með opnum huga,“ segir Jón
Ólafur.
Dreifikerfið og
aðgengi
viðskiptavina
skipta höfuðmáli
Þ J Ó N U S T A
Jón Ólafur Halldórsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Olís, segir fyrirtækið og ís-
lenskan sjávarútveg hafa átt samleið frá stofnun.