Ægir - 01.03.2013, Page 30
30
F I S K I Ð N A Ð A R N Á M
Mikil þátttaka hefur verið í
starfsfræðslunámskeiðum
sem haldin hafa verið hjá fisk-
vinnslufyrirtækjum að undan-
förnu. Að námskeiðunum
standa Fræðslumiðstöð at-
vinnulífsins og símenntunar-
stöðvar í landshlutunum og
Samtök fiskvinnslustöðva hef-
ur verið í forsvari fyrir fram-
haldsnámskeiðin. Nanna Bára
Maríasdóttir hjá Fisktækni-
skólanum í Grindavík hefur
kennt á námskeiðunum og
hún segist ekki í vafa um að
gildi þeirra sé mikið, bæði fyr-
ir starfsfólkið og fyrirtækin.
„Þetta eru kjarasamnings-
bundin námskeið, bæði
grunnnámskeið og framhalds-
námskeið. Starfsfólkið hækkar
um tvo launaflokka með þátt-
töku í grunnnámskeiðunum
og aðra tvo eftir framhalds-
námskeið sem tekur tvo daga.
Ég skynja líka aukinn áhuga
fyrirtækja á námskeiðunum
sem segir að fyrir vinnuveit-
endurna skila þau ávinningi
og eru allra hagur,“ segir
Nanna Bára en yfir 1000
manns sóttu þessi námskeið á
síðasta ári. Hún segir sérstak-
lega eftirtektarverðan áhuga á
námskeiðum á Vestfjörðum
að undanförnu. Þar hafi nám-
skeið verið haldin hjá flestum
fiskvinnslufyrirtækjunum og
almennt sé mikil þátttaka og
áhugi.
„Grunnnámskeiðið er 60
kennslustundir, ein vika. Þar
lærir fólk t.d. um hreinlæti,
gerlagróður, innra eftirlit,
gæðakerfi, öryggismál,
skyndihjálp, kjaramál, sjálfs-
styrkingu og fjölmenningu,
svo dæmi séu tekin,“ segir
Nanna Bára en hún er kenn-
ari með menntun í félagsráð-
gjöf og hefur, jafnframt
kennslu um fisktæknileg at-
riði komið að fræðsluþætti
námskeiðanna um fjölmenn-
ingu og samskipti. „Starfsfólk
í fiskvinnslunni hérlendis er
mjög oft af erlendum upp-
runa og er nauðsynlegt að
efla og styrkja samskipti og
skilning inni á vinnustöðun-
um með fræðslu um fjöl-
menningu.“
Aukinn áhugi á gæða-
þáttunum
Meðferð hráefnis, kæling,
vinnsluferlar og annað sem
að gæðamálum snýr eru um-
talsverður hluti námskeiðanna
og segir Nanna Bára vel
merkjanlegt að áhugi fyrir-
tækja sé vaxandi á þessum
þáttum.
„Í dag er mikil áhersla á
gæðin, að efla þau viðhorf hjá
starfsmönnum að fiskur er
ekki „bara“ fiskur heldur mjög
dýrmæt lúxusvara. Áherslan
er líka á nýtinguna og hversu
miklu máli hún skiptir, kæling
hráefnisins hefur fengið meira
kastljós og þannig má áfram
telja. Allt tengist þetta síðan
saman í verkferlunum en á
námskeiðunum fáum við fólk
gjarnan til að vinna saman í
hópaverkefnum og meðal
annars að greina hvort eitt-
hvað geti farið úrskeiðis í
vinnslunni og finna fyrir-
byggjandi aðgerðir á móti.
Hjá starfsfólkinu er gjarnan
mjög mikil þekking og
reynsla og á námskeiðunum
skapast oft líflegar umræður.
Þekking starfsmannanna er
dýrmæt og mætti virkja hana
enn betur en gert er í dag,“
segir Nanna Bára.
„Íslenskur fiskiðnaður finn-
ur vel fyrir því að kaupend-
urnir gera kröfur, gæðin þurfa
að vera í lagi og það er undir
okkur sjálfum komið að vera
samkeppnisfær á mörkuðun-
um. Stjórnendur fyrirtækjanna
finna þetta í sínum daglegu
störfum og þess vegna finnst
mér mjög jákvætt að finna
aukinn skilning þeirra á því
að nýta endurmenntun fyrir
starfsmenn til að fræða þá um
alla þá þætti sem geta stuðlað
að auknum gæðum fram-
leiðslunnar. Og undantekn-
ingalítið eru starfsmenn í fisk-
iðnaðinum áhugasamir um að
sækja námskeiðin og læra.
Það skilar enn hæfara starfs-
fólki,“ segir Nanna Bára.
Einingar metnar að fullu inn í
nám í Fisktækniskólann
Námskeiðin eru einingabær
og Fisktækniskólinn metur
þau að fullu inn í námið sem
er tvö ár, önnur hvor önn í
skóla og hin í verknámi. „Við
verðum vör við aukinn áhuga
á náminu okkar bæði hjá
greininni og einstaklingum
enda höfum við sett upp
námskránna samkvæmt þarfa-
greiningu hjá þeim sem vænt-
anlega koma til með að ráða
nemendur okkar í vinnu. Ver-
ið er að undirbúa kennslu í
dreifnámi sem auðveldar fólki
á landsbyggðinni að sækja
nám við skólann og við í
Fisktækniskólanum höfum
einnig unnið að því að geta
raunfærnimetið fólk sem hef-
ur mikla reynslu og þekkingu
úr greininni inn í skólann og
er það mjög áhugavert verk-
efni,“ segir Nanna Bára að
lokum.
Mikil ásókn í starfsfræðslu-
námskeið í fiskiðnaði
Útskriftarhópur á grunnnámskeiði í Grindavík. Hér komu nemendur víða að, þ.e.
frá Tælandi, Filipseyjum og Íslandi.
Verkefnavinna á starfsfræðslunámskeiði í fiskiðnaði á Ísafirði.