Ægir - 01.03.2013, Síða 33
33
Í raun má segja að árið
2012 sé það fyrsta sem smá-
bátaflotinn sýndi í verki að
hann getur tekið marktækan
þátt í þessum nýja veiðiskap.
LS spáði því fyrir, af ýmsum
ástæðum að það myndi taka
félagsmenn nokkur ár, trú-
lega 3‐4, að ná tökum á
makrílveiðunum. Þetta hefur
gengið eftir,“ segir í gögnum
LS frá í febrúar.
Á aðalfundi Landssam-
bands smábátaeigenda í
haust var talsvert fjallað um
makrílveiðar smábáta og er
krafan um 18% aflahlutdeild
byggð á samþykkt fundarins.
Í greinargerð með henni er
bent á bæði hagkvæmni
veiða og gæði afla sem rök
fyrir aukinni hlutdeild þessa
veiðiskipaflokks.
„Ljóst er að mjög hag-
kvæmt er að veiða makríl á
handfæri miðað við önnur
veiðarfæri. Mikill áhugi er fyr-
ir þessum veiðum og mjög
margir hafa hug á þeim á
næsta ári. Samtímis því sem
kaupendum sem hafa áhuga
vegna gæða hans fer ört
fjölgandi, mun úthlutun eins
og hún hefur verið, engan
veginn fullnægja þeirri þörf
sem er fyrir þennan báta-
flokk.
Helstu rök fyrir auknum
veiðiheimildum til smábáta í
makríl eru:
• Veiðarnar eru umhverfis-
vænar
• Þær skila hágæða hráefni
• Þær eru mannaflsfrekar -
atvinnuskapandi
• Þær afla mikillar þekking-
ar um göngur makríls á
grunnslóð
• Makríll étur mikið af seið-
um svo sem grásleppu-,
þorsk- og ýsuseiðum,
sandsíli, rauðátu, ljósátu
og smásíld. Og ekki má
gleyma laxaseiðum,“ segir
í samþykkt aðalfundar LS
2012.
M A K R Í L V E I Ð A R
www.isfell.is
Handfæravörur
Ísfell býður fjölbreytt úrval gæðavöru fyrir handfæraveiðarnar:
Demparar, girni, gúmmí, nælur með sigurnagla, krókar,
sigurnaglar, sökkur og statíf
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður -
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
„Verðlækkunin er gríðarlegt
áfall fyrir grásleppusjómenn
sem margir hverjir hafa nú
lokið vertíð, sem einungis
stóð í 32 daga, en upphafs-
dagur hennar var 20. mars,“
segir í frétt frá Landssam-
bandi smábátaeigenda en
þann 24. apríl síðastliðinn
hafði heildarveiði á grásleppu
skilað 4.700 tunnum af sölt-
uðum hrognum. Meðalverð á
þeim tímapunkti var hins veg-
ar um 39% lægra en í fyrra
þrátt fyrir að aflinn sé var
nema helmingur aflans á síð-
asta ári. LS bendir því á að
svo virðist sem þessi sjávaraf-
urði lútu ekki lögmáli fram-
boðs og eftirspurnar, líkt og
flestar aðrar.
Blaut hrogn hafa að með-
altali selst á 597 kr/kg lengst
af vertíðar í ár en verðið á
sama tímabili á síðustu vertíð
var 973 kr/kg.
Fyrir vertíðina í ár var
veiðidögum fækkað úr 50 og
heildarfjöldi neta var nú
þriðjungi minni en í fyrra.
Ágæt veiði var á Vestfjörðum,
Norðurlandi og Norðaustur-
landi en áhrif þrengri reglna
um veiðarnar sáust best á því
að nú voru 135 báta á grá-
sleppuveiðum en 273 í fyrra.
„Í þessari miklu verðlækk-
un á hrognunum hefur það
verið ljós í myrkrinu að góð-
ur markaður er fyrir skorna
grásleppu sem hefur hækkað
um 30% á milli ára,“ segir í
frétt LS.
Meðalverð grásleppu-
hrogna lækkar um 40%
Grásleppan skorin á miðunum. Aflinn í
ár er aðeins um helmingur þess sem
var í fyrra.
Makrílveiðar gengu vel hjá þeim smábátum sem reyndu fyrir sér síðasta sumar.
G R Á S L E P P U V E I Ð A R