Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Page 82

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Page 82
'Iímarit Aíáls og menningar lífið á 60 dollara mánaðarlaunum eða minna; aðeins 1 prósent höfðu meiri tekjur en 350 dollara á mánuði, en af þeim höfðu margir 5000 dollara eða meira í mánaðarlaun. I heilum héruðum Brasilíu eru meðal- tekjurnar minna en 10 prósent af því sem þær eru í öðrum héruðum. Alveg eins og í Suður-Víetnam Thieus, fá ríkustu 5 prósentin býsna góða læknisþjónustu í brasilískum borgum. En til sveitahéraðanna fást að- eins óverulegar fjárveitingar í læknisþjónusm. Margfalt meira fé er veitt til lögreglu en til heilbrigðisþjónustu, þrátt fyrir það að „Norðaustur- Brasilía, þar sem 35 milljónir íbúa byggja stærsta fátæktarbæli rómönsku Ameríku, er ekkert annað en tilraunastöð með þjáningar mannkynsins".10 Hlutur heilbrigðismálaráðuneytisins í fjárhagsáætlun ríkisins hrapaði úr 4,29 prósenmm árið 1966 í 0,99 prósent árið 1974. Það er Ijóst, að hin nýja Brasilía, eins þóknanleg og hún annars er Business Week og banda- ríska fjármálaheiminum, er ekki beinlínis velferðarríki. Yfirgnæfandi meiri- hluti almennings er ósköp venjuleg vinnudýr — ekkert sérstök nema að- eins hætmlegri, og verða því að fá skammta af hryðjuverkum til að við- halda „stöðugleika". Ognarstjórnin heldur forréttindahópum hinnar nýju nýlendustefnu við völd og fjárfestingahimninum sólríkum og heiðum. Fórnarlömbin eru fjölmörg, en það þarf ekki að hafa áhyggjur af þeim, því að þau eru fjarlæg og óvirk. Ef nauðsyn krefur getum við álasað þeim fyrir eigin leti og óhæfilega mikla viðkomu. Dóminíska lýðveldið: Bandarísk fyrirmynd að þróun í þriðja heiminum í bók sinni Stig hagvaxtarins lýsir Walt W. Rostow þróunarferli landa í þriðja heiminum sem komast inn á bandarískt áhrifasvæði: Þau verða smám saman eins og við, eignast háþróaða iðntækni og lýðræðislegar stofn- anir. Dóminíska lýðveldið birtir skýra mynd af þessu í verki. Það er sér- lega viðeigandi dæmi af eftirfarandi ástæðu: Við innrásina 1965 endur- heimtu Bandaríkin áhrifavald sitt yfir þessu litla landi og hafa síðan alger- lega ráðið efnahags- og stjórnmálum þess. Þar sem engin truflandi mót- stöðuöfl eru til staðar hlýtur atburðarásin í Dóminíska lýðveldinu fremur en í nokkru öðru landi þriðja heimsins að hafa verið í samræmi við vilja bandarískrar utanríkismálaforystu. Það er enn í fersku minni þegar Bandaríkin réðust inn í Dóminíska lýð- veldið árið 1965 í þeim tilgangi að hindra að hin tiltölulega meinlausa 68
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.